Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 36

Skessuhorn - 15.09.2021, Síða 36
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202136 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Á mörgum vinnustöðum hér á landi neyðist eldra fólk til að hætta að vinna fyrr en það vildi vegna reglna um starfslok. aldurstengd- ar viðmiðanir varðandi starfs- lok eiga ekkert erindi í því samfé- lagi sem við búum í. Það er viður- kennd staðreynd að í dag lifir fólk lengur og að fólk kringum sjötugt er enn margt fullfært um að vinna sína vinnu án vandkvæða. Við ger- um eldra fólki og vinnumarkaðin- um í heild enga greiða með aldurs- tengdum viðmiðunum sem þess- um. Framsókn vill miða starfslok við hæfni Fjölmargir einstaklingar hafa gíf- urlega margt fram að færa þrátt fyr- ir að vera komið yfir sjötugt. Fólk verður ekki af reynslu, þekkingu, menntun né dugnaði við ákveð- inn afmælisdag. Með þeim reglum sem eru við lýði í dag erum við að neita þeim einstaklingum, sem enn vilja fara út úr húsi, taka þátt í samfélaginu og á atvinnumarkaði, hitta fólk og vinnufélaga og afla tekna (sem stundum er mikil þörf á). að auki missir vinnumarkaður- inn af starfskrafti sem enn er verð- mætur. eitt áherslumála Framsóknar fyrir komandi alþingiskosningar er að afnema reglur um að fólk fari á eftirlaun eða hætti störfum við ákveðinn aldur. Þeir sem vilja áfram vera virkir á vinnumark- aði eiga að hafa kost á því ef vilji bæði launafólks og vinnuveitanda stendur til þess. Samtal um starfslok eiga að eiga sér stað meðal vinnuveitanda og starfsmanns, en ekki innan laga- bálka ríkisins. Að eldra fólk vinni án skerðinga Ásamt þessu er það áherslumál hjá Framsókn að eftirlaunafólk fái að vinna eins og það sýnist án skerð- inga í almannatryggingakerfinu. Framsókn leggur áherslu á að al- menna frítekjumarkið hækki í skrefum og að lífeyrisskerðingar vegna atvinnutekna verði afnumd- ar. Fjölmargir eftirlaunaþegar hafa enn brennandi áhuga á að vinna en sjá ekki virði þess eins og staðan er í dag miðað við þær skerðingar sem mæta þeim. að auki eru brýn þörf á aukatekjum hjá mörgum eftir- launaþegum. Við eigum ekki að láta eldra fólk gjalda fyrir dugnað. Halla Signý Kristjánsdóttir Höf. er þingmaður Framsóknar og situr í 3. sæti á lista flokksins í Norð- vesturkjördæmi Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun er Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá þingmenn í Norðvesturkjördæmi eins og oftast hefur verið frá því að ný kjördæmaskipun tók gildi árið 2003. teitur Björn einarsson sem situr í þriðja sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins er samkvæmt því inni sem kjördæmakjörinn þingmaður ásamt með þeim Þórdísi kolbrúnu R Gylfadóttur og Haraldi Benedikts- syni og mynda þau öflugan hóp. en það er ekkert öruggt þegar fá at- kvæði skilja að framboðslistana sem eru margir og því dreifist fylgið og skapar mikla óvissu. teitur Björn er því vissulega í baráttusæti sem ég vil vekja athygli á og hvetja kjósend- ur til þess að tryggja þessum góða frambjóðanda þingsæti með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. teitur Björn er einn allra öfl- ugasti frambjóðandi til þingsins og þekkir vel þarfir íbúanna, at- vinnulífsins, stofnana og stjórn- sýslu Norðvesturkjördæmis. Hinar margbreytilegu byggðir í kjördæm- inu þurfa slíka þingmenn og það skiptir miklu máli að þrír öflugir þingmenn vinni saman innan þing- flokks Sjálfstæðisflokksins að okkar málum. Það þekki ég vel frá því að ég vann með þeim einari kristni Guðfinnssyni, einari Oddi krist- jánssyni og svo Herdísi Þórðar- dóttur að því að tryggja hagsmuni kjördæmisins innan þingsins. teitur Björn ólst upp á Flateyri og starfaði þar eftir að hafa lok- ið námi í lögfræði. Hann er í dag búsettur í Skagafirði þar sem hann settist að í heimasveit eiginkonunn- ar eftir að hafa setið um tíma á al- þingi, starfað í stjórnarráðinu og unnið sem lögmaður. teitur Björn hefur því mikla reynslu sem mun nýtast honum vel á alþingi og hann nýtur trausts þeirra sem best þekkja til verka hans. Ég vona að teitur Björn nái kjöri því að við þurfum þingmenn með reynslu hans og þekkingu og tengsl við landsbyggð- ina og umfram allt mann sem nýtur mikils stuðninga þeirra sem þekkja hann best. Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi Mikilvægara er nú en nokkru sinni að hlusta á áherslur verkalýðs- hreyfingarinnar. Vinstri græn hafa lagt mikla áherslu á að eiga gott samráð við aðila vinnumarkaðarins allt þetta kjörtímabil og Lífskjara- samningarnir voru gerðir með öfl- ugri aðkomu stjórnvalda sem skil- að hefur mörgum þjóðþrifamálum í höfn. allar þær vinnumarkaðsað- gerðir sem var gripið til sérstak- lega vegna Covid voru gerðar að undangengnu samráði við alla þá aðila sem urðu fyrir miklum for- sendubresti og atvinnumissi vegna efnahagsáfalla í kjölfar Covid. kjarabarátta þeirra sem lakast standa hefur alltaf verið mér hug- leikin enda óx ég upp í verkalýðs- hreyfingunni á Vestfjörðum. Öfl- ugt samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins er undirstaða samfélagslegra framfara, raun- verulegra kjarabóta og efnahags- legs stöðugleika. aðgerðir í húsnæðismálum, þrepaskipt skattkerfi, lágir vextir, lægri kostnaður sjúklinga í heil- brigðiskerfinu, lengra fæðingaror- lof, hærri barnabætur og stytting vinnuvikunnar koma ungu fólki og einnig þeim tekjulægri vel. Halda þarf áfram á þessari braut félags- legra umbótamála á komandi kjör- tímabili meðal annars með upp- byggingu félagslegs húsnæðis um allt land sem tryggir mannsæm- andi og öruggt húsnæði á viðráð- anlegum kjörum. Við viljum vinna áfram gegn fá- tækt barna með enn öflugra barna- bótakerfi sem nær til enn fleiri barnafjölskyldna. Mikilvægt er að skapa öryrkjum fleiri tækifæri til virkari þátttöku í samfélaginu með úrbótum á framfærslukerfi ör- yrkja. Það er brýnt að endurmeta lágmarks framfærsluviðmið þeirra tekjulægstu í hópi aldraðra og ör- yrkja og tryggja þeim mannsæm- andi afkomu. aukin fjárfesting þarf að vera í opinbera heilbrigðiskerfinu sem tryggir gott aðgengi að heilbrigð- isþjónustu um land allt. Hvert heilbrigðisumdæmi þarf að tryggja íbúum greitt aðgengi að læknis- þjónustu en þar hafa sum svæði borið skertan hlut frá borði og úr því þarf að bæta. Mikilvægt er að vinna áfram að því að fjölga hjúkrunarrýmum og efla heimaþjónustu við aldraða og gera breytingu á samspili al- mannatrygginga og lífeyriskerfinu til að auðvelda sveigjanleg starfs- lok og gera fólki kleift að vinna lengur. aðgengi að geðheilbrigðisþjón- ustu hefur verið að aukast á vakt VG um land allt og á þeirri braut ætlum við að halda áfram með auknum úrræðum t.d. fyrir ungt fólk og vinna með einmanaleika eldra fólks. Vinstri græn hafa verið í forystu í heilbrigðismálum á fordæmalaus- um tímum heimsfaraldurs. Með okkar frábæra heilbrigðisstarfs- fólki og því að hlusta á vísindin hefur tekist að byggja upp inn- viði heilbrigðiskerfisins samhliða því að glíma við Covid faraldurinn þar sem Ísland hefur staðið sig vel með þátttöku allrar þjóðarinnar. Með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi getum við tryggt öllum velsæld. Það er leiðarljós Vinstri grænna. Lilja Rafney Magnúsdóttir Höf. er alþingismaður VG í Norð- vesturkjördæmi. Að miða starfslok við færni ekki aldur Pennagrein Kjósum Teit Björn Einarsson á þing Pennagrein Lífskjör og velsæld!

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.