Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202136
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Allt frá barnæsku hef ég haft mik-
inn áhuga á félagsmálum og síðar
einnig á stjórnmálum. Þessi áhugi
í bland við ríka réttlætiskennd, hef-
ur nýst mér vel í starfi innan verka-
lýðshreyfingarinnar og sem trún-
aðarmanns og í öðrum störfum
bæði sem frambjóðandi og um-
boðsmaður flokka, ég vil trúa því
að það komi til með að nýtast mér
einnig vel í stjórnmálunum ef þá og
þegar til þess kemur.
Einn af mínum forfeðrum í
föðurætt hét Sighvatur Árnason
og hann var lengi alþingismað-
ur. Þegar ég fór að lesa mér til um
hann þá komst ég að því að hann
var um tíma í stjórnmálaflokki
sem hét Heimastjórnarflokkurinn.
Mér fannst gráupplagt að endur-
nýta nafnið á þeim mæta stjórn-
málaflokki, honum til heiðurs, því
nafnið var á lausu. Aðrar tengingar
eru ekki við þetta nafn.
Heimastjórnarflokkurinn á
í mínum huga að vera frjáls og
þverpólitískur, enda finnst mér að
sveitarstjórnarmálin þurfi alls ekki
að vera föst í viðjum gömlu stjórn-
málaflokkanna og stefnum þeirra
og kreddum. Ég tel reyndar að slík-
ar „fjarstýringar“ að sunnan, hafi
oft og iðulega komið illa niður á
heimamönnum þegar upp er staðið
og horft er til baka.
Í mínum huga er það ljóst að íbú-
arnir þurfa að taka nokkrar stórar
og erfiðar, og jafnvel, sársaukafull-
ar ákvarðanir fyrir framtíð okk-
ar sveitarfélags. En til að forðast
kyrrstöðu og doða í samfélaginu
er nauðsynlegt að skera á nokkra
hnúta sem hafa staðið framþró-
un samfélagsins fyrir þrifum. Allt
í kringum okkur í Borgarbyggð er
verið að byggja upp íbúðir og at-
vinnuhúsnæði. Ný fyrirtæki eru að
flytjast frá höfuðborgarsvæðinu og
út á land. En hjá okkur í Borgar-
byggð hafa hlutirnir gerst mjög
hægt og það er eins og við séum
að missa af lestinni á margan hátt.
Tökum hvert mál fyrir sig:
Brákarey, hvað viljum
við með hana?
Á að rífa þar allt niður og hvað á þá
að koma þar í staðinn? Ef Borgar-
byggð hefði fyrir um 10 árum síð-
an ákveðið að kaupa upp allar eign-
ir þar sem komið hafa á sölu þá
ætti sveitarfélagið í dag nær all-
ar húseignir í eyjunni. Slík fyrir-
hyggja hefði auðveldað framhaldið,
hvað svo sem ákveðið hefði ver-
ið að gera með eyjuna. Það er eins
og hver meirihluti hugsi aðeins til
eins kjörtímabils í einu og reyni að
koma sem best út í augum kjósenda
í lok þess tímabils. Mikil óánægja
er í samfélaginu vegna lokunar slát-
urhússins í Brákarey fyrir allri fé-
lagsstarfsemi sem þar var í mikl-
um blóma. Meirihlutinn skýlir sér
á bak við úrskurð um að allt hús-
ið sé ónothæft og hættulegt. Í stað
þess að skoða lausnarmiðað hvað sé
hægt að gera í stöðunni í samvinnu
við félagasamtökin og notendur
sem telja mörg hundruð manns.
Innan þess fjölda eru tugir iðnað-
armanna sem lýst hafa sig tilbúna
til sjálfboðaliðastarfs við endur-
bætur hússins. Þeim tilboðum hef-
ur ekki verið svarað hingað til nema
með fullyrðingu um að það kosti
yfir 600 milljónir að gera við hús-
ið. Inni í þeim áætlunum eru m.a.
kostnaður við niðurrif á húsunum.
Skólamálin
Það er öllum ljóst að ekki verð-
ur hagkvæmt eða skynsamlegt að
starfrækja fjórar skólastarfsstöðvar
í Borgarbyggð til framtíðar. Skyn-
samlegast er að loka Varmalands-
skóla sem fyrst. Rífa plásturinn af
og tilkynna þá ákvörðun sem fyrst.
Það er erfiðast fyrir alla að hafa
þetta hangandi yfir sér í mörg ár og
allt fer í niðurníðslu á meðan.
Samgöngumálin/
Vegamálin
Þar komum við að heitu kartöfl-
unni til áratuga. Á hringvegurinn
okkar, þjóðvegur allra landsmanna,
að liggja í gegnum Borgarnes
til allrar framtíðar? Er það öll-
um fyrir bestu? Umferðin í gegn-
um bæinn, sérstaklega yfir sum-
artímann, hamlar akandi sem og
gangandi umferð heimafólks, svo
ekki sé minnst á öryggisleysið og
slysahættuna. Ef þjóðvegurinn á að
liggja áfram í gegnum Borgarnes þá
þarf að gera verulegar breytingar til
úrbóta. Leggja þarf mislæg gatna-
mót eða vegleg undirgöng til að
leysa málin að hluta til. Einnig
kæmi til greina að setja hring torg
við Brúartorgið en þá þyrfti að
rýma til fyrir því.
Vegurinn upp með landinu er á
Samgönguáætlun til ársins 2025.
Samþykkt fyrri sveitarstjórnar
Borgarbyggðar breytir þar engu
um. Það var reyndar mjög undar-
legt að taka ekki upp viðræð-
ur við Vegagerðina áður en slíkt
var ákveðið, ég tala nú ekki um að
láta gera skoðanakönnun meðal
íbúa Borgarness. Hver ætli sé vilji
íbúa Borgarness í þessu máli, ég tel
raunhæfara að spyrja þá frekar en
alla íbúa sveitarfélagsins.
Nýtt íþróttahús
og aðrar byggingar
Mér er tamt að ræða um Borgarnes
enda er ég Borgnesingur sjálfur.
En ég hef líka verið Hvanneyring-
ur um tíma og ber einnig sterkar
taugar til þess staðar. Á Hvann-
eyri eru miklir möguleikar fyrir
Borgarbyggð. Þar er nóg pláss til
að byggja íbúðarhús og atvinnu-
húsnæði. Þar væri hægt að byggja
nýja íþróttahúsið sem að svo sár-
lega vantar, það eru ekki nema 12
km á milli þessara staða, jafnlangt
frá Hvanneyri til Borgarnes og frá
Borgarnesi til Hvanneyrar.
Ég sé líka fyrir mér uppbyggingu
í Reykholtsdalnum; í Reykholti og
á Kleppjárnsreykjum. Uppbygging
er nú þegar á fullri ferð í Húsafelli,
þar er verið að reisa sumarhús og
íbúðarhús til dvalar á árs grund-
velli. Það mun svo koma aftur að
því að Bifröst hljóti uppreisn æru.
Sá sögulegi og fallegi staður á skil-
ið að verða endurreistur ef svo má
segja.
Þróun byggðar
Af nógu er að taka þegar byrjað er
að ræða um framtíðarmöguleika
uppbyggingar í Borgarbyggðinni.
En líta verður til lengri tíma en
gert hefur verið til þessa. Í Borg-
arnesi verður að taka ákvörðun
um hvort að þétta eigi byggðina
eða láta hana þróast „upp í sveit“,
jafnvel allt að Einarsnesi. Öldu-
hryggurinn, svæðið vestan við Borg
á Mýrum er í eigu Borgarbyggðar
og það hefur oft komið til greina
sem íbúðabyggð. Rétt fyrir hrun
var verktaki í viðræðum við Borg-
arbyggð um að reisa þar nokkurs
konar sjálfbært þorp, íbúðarbyggð
með verslun og leikskóla. Í dag er
Borgarbyggð búin að gæla við frið-
un Borgarvogs sem girða myndi
fyrir möguleika á að byggja í Öldu-
hryggnum.
Stjórnsýslan
Heimastjórnarflokkurinn er ekki
hugsaður sem eins máls flokkur og
heldur ekki sem óánægju framboð
eingöngu. Hann er hugsaður sem
vettvangur fyrir fólk með skoðan-
ir og hann vill að litið sé til fram-
tíðar varðandi skipulag byggðar en
ekki bara til hvers kjörtímabils fyr-
ir sig. Hann vill að fólk fái að njóta
sín til athafna án þess að regluverk-
ið sé notað hamlandi gegn því. Að
sveitarfélagið vinni ekki gegn sjálf-
sögðum rétti fólks til félagsstarf-
semi og tómstundaiðkunar.
Það ætti að vera sjálfsagt að
starfsfólk sveitarfélagsins vinni
með og fyrir íbúana en ekki gegn
því á hamlandi hátt. Heilu deild-
irnar hjá sveitarfélaginu hafa ver-
ið hálf lamaðar til margra ára.
Margir sem sent hafa inn erindi
til Borgarbyggðar á undanförn-
um árum hafa ekki fengið svör við
sínum erindum eða verið svarað
seint og illa. Of mörg dæmi eru
um ranga stjórnsýslu og nægir þar
að nefna „Húsafellsmálið“ eitt og
sér. Endurbætur hafa átt sér stað
í stjórnkerfinu og er það til bóta en
betur má ef duga skal. Aðhalds og
umbóta er þörf.
Stofnfundurinn
Stofnfundur Heimastjórnarflokks-
ins verður haldinn á Hótel B59
laugardaginn 11. desember kl.
16:00. Ég hvet að sjálfsögðu alla
sem áhuga hafa á sveitarstjórnar-
málum til að mæta á fundinn. Ef
við íbúarnir ætlum að hafa áhrif á
gang mála verðum við að stíga fram
og lýsa skoðunum okkar. Það þýðir
ekkert að tuða um málin eftir kosn-
ingarnar í maí á næsta ári. Stígum
fram og styðjum Heimastjórnar-
flokkinn til góðra mála. Allir vel-
komnir.
Eiríkur Þór Theodórsson
Velkomin á stofnfund
Heimastjórnarflokksins í Borgarbyggð