Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 20218
Færa
Mæðrastyrks-
nefnd peninga-
gjöf
VESTURLAND: Líkt og síð-
ustu ár hefur Norðurál fært
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands
styrk til að standa straum af ár-
legri jólaúthlutun nefndarinn-
ar. Í ár er framlag Norðuráls
ein milljón króna. Fyrir síðustu
jól þáðu 106 fjölskyldur á Akra-
nesi, í Hvalfjarðarsveit og Borg-
arbyggð stuðning fyrir hátíðirn-
ar. „Það er okkur sönn ánægja
að geta stutt við þetta mikilvæga
starf nefndarinnar,“ segir í til-
kynningu frá Norðuráli. -mm
Ríkið styður
hjálparsamtök
LANDIÐ: Ríkisstjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
veita samtals fimm milljónum
króna af ráðstöfunarfé sínu til
tíu hjálparsamtaka sem starfa
hér á landi. Sú venja hefur skap-
ast á undanförnum árum að
ríkisstjórnin styrki slík sam-
tök í aðdraganda jóla. Um er
að ræða Fjölskylduhjálp Íslands,
Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálp-
ræðisherinn á Íslandi, Mæðra-
styrksnefnd Akureyrar, Mæðra-
styrksnefnd Hafnarfjarðar,
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs,
Mæðrastyrksnefnd Reykjavík-
ur, Mæðrastyrksnefnd Vestur-
lands, Rauða krossinn á Íslandi
og Samhjálp. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
27. nóvember til
3. desember.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 11.825 kg.
Mestur afli: Ebbi AK-37: 5.172
kg. í fimm löndunum.
Arnarstapi: 2 bátar.
Heildarlöndun: 62.121 kg.
Mestur afli: Kristinn HU-812:
48.322 kg. í fjórum löndunum.
Grundarfjörður: 17 bátar.
Heildarlöndun: 1.515.490 kg.
Mestur afli: Björg EA-7:
194.526 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 10 bátar.
Heildarlöndun: 122.504 kg.
Mestur afli: Brynja SH-236:
32.512 kg. í fjórum löndunum.
Rif: 10 bátar.
Heildarlöndun: 245.107 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH-270:
69.968 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 25.209 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7: 8.454
kg. í fimm löndunum.
Topp fimm
landanir á tímabilinu:
1. Björg EA-7 GRU: 194.526
kg. 1. desember.
2. Akurey AK-10 GRU:
191.929 kg. 28. nóvember.
3. Björgvin EA-311 GRU:
142.974 kg. 27. nóvember.
4. Drangey SK-2 GRU:
130.464 kg. 3. desember.
5. Sighvatur GK-57 GRU:
114.489 kg. 1. desember.
-frg
Nýjar bækur!
Hjá Vegagerðinni var fyrr í haust
opnað tilboð í endurnýjun 5,4 km
vegarkafla á Snæfellsnesvegi (54)
um Skógarströnd. Er þetta jafn-
framt með stærri útboðum í vega-
framkvæmdum sem boðin hafa ver-
ið út á Vesturlandi í langan tíma.
Eitt tilboð barst í verkið og var
það frá Borgarverki í Borgarnesi.
Hljóðaði það upp á 970 milljón-
ir króna sem er 12,6% yfir kostn-
aðaráætlun Vegagerðarinnar. Inni-
falið í verkinu er bygging tveggja
brúa. Gera á 43 m langa brú yfir
Straumu og 52 m langa brú yfir
Dunká. Samkvæmt útboðslýs-
ingu skal verkinu lokið að fullu 30.
júní 2023. Til stóð að skrifa und-
ir verksamning hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi síðastliðinn föstudag,
en vegna Covid var því frestað um
sinn. mm
Í síðustu viku voru opnuð tilboð í
bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum
fyrir árin 2022 til 2024. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á sléttar 70
milljónir króna. Gísli Stefán Jóns-
son ehf. á Akranesi var lægstbjóð-
andi með 79.980.000 krónur sem
er um 14% yfir kostnaðaráætlun.
Vaka hf. í Reykjavík bauð talsvert
hærra, 187.673.000 krónur en það
er um 168% yfir kostnaðaráætl-
un. Verkið felst í fjarlægingu og
flutningi bifreiða, ferðavagna og
annarra ökutækja sem hamla um-
ferð og umferðaröryggi í eða við
göngin, t.d. vegna bilana, óhappa
eða slysa. Einnig er um að ræða
fjarlægingu og flutning aðskota-
hluta á vegi.
Helstu magntölur fyrir hvert ár
eru 300 klukkustundir vegna bíla-
flutningabifreiðar fyrir minni bif-
reiðar, 60 klukkustundir vegna
stærri bifreiða og 20 klukkustundir
vegna dráttarbifreiðar annars vegar
og kranabifreiðar hins vegar.
Klausa í útboðsgögnum hefur
vakið nokkra athygli og umræð-
ur á Facebook síðunni Til örygg-
is á Kjalarnesi. Í klausunni seg-
ir: „Viðbragðstími verktaka, frá
tilkynningu/útkalli vaktstöðvar
þar til verktaki er kominn á verk-
stað eða að göngum/gangamunna,
skal að jafnaði ekki vera lengri en
45 mínútur.“ Þykir mörgum þessi
viðbragðstími langur enda er um-
ferðin um Hvalfjarðargöng gríðar-
lega mikil og fer vaxandi. Bili bíll
í göngunum veldur það miklum
töfum á umferð og þessi langi við-
bragðstími því ekki boðlegur. Það
mál er sjálfleyst því viðbragðstími
Gísla, sem rekur fyrirtæki sitt á
Akranesi, er mun skemmri.
Áður en Vegagerðin tók við
rekstri Hvalfjarðarganga var ávallt
vakt við göngin og viðbragðstími
vegna bilaðra bíla í göngunum því
afar skammur. frg
Nýverið var undirritaður samning-
ur milli lögreglustjórans á Vestur-
landi og fyrirtækis Stefáns Gísla-
sonar í Borgarnesi, Umhverfisráð-
gjafar Íslands, um sérfræðiráðgjöf
vegna loftslagsstefnu, aðgerðaráætl-
unar og grænna skrefa í ríkisrekstri.
Stefán mun samkvæmt samningn-
um vinna náið með umhverfisnefnd
lögregluembættisins varðandi öll
ofangreind atriði. „Um gríðarstórt
verkefni er að ræða sem mun ná til
nær allra rekstrarþátta embættisins.
Það að kalla til utanaðkomandi sér-
fræðinga til verkefnastjórnar lýsir
því hversu föstum tökum embættið
hyggst taka umhverfismál, enda eru
umhverfis- og loftslagsmál á ábyrgð
okkar allra sameiginlega,“ segir í til-
kynningu frá Lögreglunni á Vestur-
landi. mm
Gísli Jónsson bauð lægst í
bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum
Gísli S Jónsson. Ljósm. úr safni/mm.
Í verkinu felst m.a. bygging tveggja brúa, yfir Dunká og Straumu sem hér sést.
Myndin er skjáskot af Google Maps.
Borgarverk byggir upp 5,4
kílómetra kafla á Skógarströnd
Fulltrúar lögreglu ásamt Stefáni Gíslasyni (fyrir miðri mynd). Ljósm. LV.
Lögreglan semur um sérfræði-
ráðgjöf í umhverfismálum