Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 38

Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 Hvað var í matinn á aðfangadag þegar þú varst lítil? Spurning vikunnar (Spurt á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi) Ásthildur Einarsdóttir „Rjúpur með brúnuðum kartöfl- um, grænum baunum, rauðróf- um og sósu. Frómas í eftirrétt.“ Sigurbjörg Márusdóttir „Hangikjöt og uppstúf með kar- töflum og grænum baunum. Ávaxtagrautur með rjóma í eft- irrétt.“ Sigríður (Sigga Lauga) Hjart- ardóttir „Hangikjöt og uppstúf með kar- töflum og grænum baunum ef þær voru til. Á eftir var svo ávaxtagrautur með rjóma.“ Ragnheiður Þorsteinsdóttir „Hangikjöt og uppstúf og ávext- ir og rjómi í eftirrétt.“ Ásrún Jóhannesdóttir frá Þyrli „Lambakjöt, brúnaðar kart- öflur, grænar baunir og sósa. Heimagerður frómas í eftir- rétt.“ Víkingur Ólafsvík skrifaði und- ir nýjan tveggja ára samning við Brynjar Vilhjálmsson 1. desem- ber síðastliðinn. Brynjar er fædd- ur 2000 og uppalinn í Ólafsvík og getur leyst ýmsar stöður á vellin- um. Hann lék 14 leiki fyrir Víking í Lengjudeildinni á síðasta tímabili. þa Árleg jólatrjáasala Skógræktarfé- lags Skilmannahrepps í Álfholts- skógi verður dagana 11. og 12. des- ember og laugardaginn 18. desem- ber frá kl. 11.30 til 15.30 alla dag- ana. Frá þessu er sagt á vef Hval- fjarðarsveitar en jólatrjáasalan er fjáröflunarstarfsemi félagsins til að viðhalda skóginum og bæta við hann en hann er nú „Opinn skóg- ur“ til útivistar allan ársins hring. Fimm stór jólatré úr skóginum hafa verið sett upp í Akranesbæ að vanda og eitt í Hvalfjarðarsveit. Trén eru einkum sitkagreni og stafafura, vistvæn að sjálfsögðu og fyrir hvert tré sem fellt er, er plantað tíu trjám næsta vor. Fé- lagar skógræktarfélagsins fá 500 krónu afslátt af einu keyptu tré. Allir eru velkomnir og bent er á að hafa sög með sér. Skógarmenn munu leiðbeina á svæðinu og eftir skógarhöggið er boðið upp á kaffi og kakó og piparkökur ef guð lofar. Þá er öllum velkomið að gerast fé- lagar í skógræktarfélaginu og er ár- gjald 2.500 kr. vaks Skallagrímur heimsótti lið Breiða- bliks í Kópavoginn á sunnudags- kvöldið í Subway deild kvenna í körfuknattleik. Fyrir leikinn voru liðin í tveimur neðstu sæt- um deildarinnar, Breiðablik í sjö- unda sæti með einn sigurleik og Skallagrímur í neðsta sæti án sig- urs. Breiðablik var sterkari í upp- hafi leiks og leiddi 7:2 eftir þriggja mínútna leik en Skallagrímur náði að koma til baka og var með for- ystu eftir fyrsta leikhluta, 19:23. Breiðablik hóf annan fjórðunginn með miklum látum, skoraði 14 stig gegn engu gestanna en Skallagrím- ur setti sín fyrstu stig eftir rúmar fjórar mínútur. Skallagrímur náði síðan 7:0 áhlaupi í kjölfarið og leik- urinn í járnum en Breiðablik hitti betur utan af velli gegn svæðisvörn Skallagríms og staðan í leikhléi, 44:37, Breiðablikskonum í vil. Breiðablikskonur komu grimmar til leiks í seinni hálfleik og komust tíu stigum yfir snemma í þriðja leikhlutanum. Skallagrímur náði að halda sér inni í leiknum með sjö stigum í röð og í hvert skipti sem Breiðablikskonur gerðu sig líklegar til að stinga af svaraði Skallagrímur því ávallt. Breiðablik átti þó síðasta áhlaupið í leikhlutanum og staðan 62:53 fyrir fjórða og síðasta leik- hlutann. Heimakonur náðu að auka forskotið enn meira í byrjun síðasta fjórðungsins en Skallagrímskonur neituðu að gefast upp og minnkuðu muninn í sex stig þegar rúmlega þrjár mínútur voru til leiksloka. En lengra komst Skallagrímur ekki og lokastaðan 81:74 fyrir Breiðablik. Stigahæstar hjá Skallagrími voru þær Maja Michalska og Breana Destiny Bay með 21 stig hvor og Leonie Edringer var með 18 stig. Hjá Breiðablik var Michaela Kelly með 20 stig, Anna Soffía Lár- usdóttir með 18 stig og Iva Georgi- eva með 16 stig. Næsti leikur Skallagríms er gegn Fjölni í Fjósinu í Borgarnesi í dag, miðvikudag, og hefst klukkan 18.15. vaks Skallagrímur gerði sér ferð í Graf- arvoginn á föstudagskvöldið og lék gegn Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta en Skallagrímur var með fjögurra stiga forystu þegar honum lauk, 21:25. Fjölnismenn náðu að jafna um miðjan annan leikhluta og höfðu tveggja stiga forystu í hálfleik, 39:37. Fjölnismenn voru sterkari í seinni hluta þriðja leikhlutans og komu sér í góða stöðu fyrir síð- asta fjórðunginn, staðan 64:55. Skallagrímsmenn reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn í fjórða leikhluta en gekk lítið og Fjölnir sigldi sigrinum örugglega í höfn, lokastaðan í leiknum 98:86 fyrir Fjölni. Stigahæstir hjá Skallagrími voru Bryan Battle með 27 stig, Simun Kovac var með 14 stig og 10 fráköst og Marinó Þór Pálmason með 11 stig. Hjá Fjölni var Dwayne For- eman Jr. með 34 stig og 11 fráköst, Daníel Ágúst Halldórsson með 19 stig og Ólafur Ingi Styrmisson með 18 stig og 11 fráköst. Næsti leikur Skallagríms var á dagskrá í gærkvöldi gegn Sel- fossi syðra en leikurinn var ekki hafinn þegar Skessuhorn var sent í prentun. vaks Nýverið var gengið frá endurráðn- ingu Sölva Gylfasonar sem þjálf- ara hjá meistaraflokki Skallagríms í fótbolta, en hann hefur þjálfað liðið frá árinu 2020. Declan Red- mond verður áfram aðstoðarþjálf- ari liðsins. „Undanfarin tvö ár hef- ur verið markvisst unnið að því að gefa ungum leikmönnum uppöld- um hjá Skallagrími tækifæri og því er að verða til ágætur kjarni ungra leikmanna. Stefnt er að því að efla þennan hóp áfram, jafnframt því að styrkja liðið og vera með í bar- áttunni um sæti í úrslitakeppninni í 4. deild,“ segir í tilkynningu frá Skallagrími. Þá var Jón Theodór Jónsson ný- verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Skallagríms, en Jón hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka hjá félaginu með góð- um árangri. Jón mun halda áfram þjálfun auk þess að stýra starfinu. mm Sölvi Gylfason, Jón Theodór Jónsson og Declan Redmond. Ljósm. Skallagrímur. Sölvi og Declan verða áfram þjálfarar Skallagríms Brynjar framlengir við Víking Marinó Þór Pálmason var með 11 stig gegn Fjölni. Hér í leik gegn Tindastól. Ljósm. glh Skallagrímur með ósigur gegn Fjölni Skallagrímskonur töpuðu botnbaráttuslagnum Jólatrjáasala í Álfholtsskógi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.