Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202120 „Upphafið hjá mér að prjónaskap var að móðir mín kenndi mér og frænda mínum þegar við vorum strákar að prjóna trefla. Við frændur bjuggum í sama húsi við Merkigerðið og vorum jafn gamlir. Móðir mín Fanney Tóm- asdóttir kom okkur upp á lag með þetta og við höfðum bara gaman af að prjóna og kepptumst við það að vera á undan hvor öðrum við prjónaskap- inn. Vorum uppteknir við þessa iðju á meðan áhuginn var fyrir hendi og þarna lærði maður fyrstu handtök- in við prjónaskapinn.“ Sá sem þetta mælir er Skagamaðurinn Hallgrímur Eðvarð Árnason en hann er liðtæk- ur með prjónana og margar fallegar prjónaflíkur liggja nú eftir hann. Betra að hafa eitthvað á prjónunum Þegar Hallgrímur hætti á vinnumark- aðinum fyrir rúmlega þremur árum, segir hann að orðið hafi til ákveðið tómarúm eins og margir þekkja sem hætta að vinna. En hann var nánast alla starfsævi sína sjómaður, lengst af eða í aldarfjórðung til sjós á Höfrungi III frá Akranesi. „Ég byrjaði 17 ára að vinna hjá HB & Co. Fyrsta vertíð- in mín var reyndar í Vestmannaeyj- um, þegar við fórum nokkrir félagar af Skaganum til Eyja. Síðan var ég á Sigurfaranum með Guðjóni Berg- þórssyni og eftir það á bátum annars staðar á landinu, en lengst var ég á Höfrungi III. Fyrstu mánuðirnir eftir að ég hætti að vinna fóru svona í að kíkja í tölv- una og í sjónvarpsgláp, en þá fór kon- an mín Sigþóra Gunnarsdóttir sem er mikil prjónakona, að segja við mig hvort ég hefði ekki áhuga á því að prófa mig áfram við það að prjóna. Mér leist vel á hugmyndina og áhuginn jókst hjá mér og í dag gríp ég í prjónana þegar tækifæri gefst. Hvort sem er á daginn eða yfir sjónvarpinu á kvöldin. Nú finnst mér alveg ómögu- legt að hafa ekki eitthvað á prjón- unum hvort sem ég sit með sjálfum mér, horfi á sjónvarpið, eða hlusta á hljóðbók. Auk þess er prjónaskapur- inn mikil hugarró. Ég hvet karlmenn hiklaust til þess að kynna sér það og læra að prjóna,“ segir Hallgrímur. Eftir að prjónaskapurinn jókst hjá honum segist hann oft hugsa til móð- ur sinnar sem var mikil prjónakona. Hún hafi setið við prjónana nán- ast alla daga og selt prjónaskapinn til Handprjónasambandsins. „Þetta var hennar vinna á þeim tíma,“ seg- ir hann. Gefa stóran hluta til góðgerðarmála Blaðamaður spyr Hallgrím hvort það sé eitthvað sérstakt sem hon- um þykir skemmtilegra en annað að prjóna. „Mér finnst skemmti- legast að prjóna munstraðar peys- ur t.d. eins og skipperinn en þar er maður stöðugt að telja og vera með hugann við prjónaskapinn og einbeita sér og það finnst mér skemmtilegast. Ég er hérna með tvær peysur, sem ég kláraði nýlega af skippernum. Það getur verið vandasamt að prjóna þessar peys- ur en það er bara skemmtilegra,“ segir hann. Hann segir að önnur peysa sem hann er nýlega búinn að prjóna vera fyrir barnabarn og heit- ir krummapeysa. Svo var hann að ljúka við fallegar jólapeysur og jólahúfur eftir norskri uppskrift, en þær eru til jólagjafa. En megnið af prjónaskapnum hans og Sigþóru eru peysur, húfur og vettlingar sem þau gefa til góðgerðarmála, ýmist í Konukot til Samhjálpar eða í gistiskýlið við Lindargötu. se Litla músin varð til sumarið 2019 sem lítið ástríðuverkefni á Akra- nesi. Upphaflega var hugmyndin að selja heimasaumuð barnaföt úr líf- rænum textíl en það þróaðist fljótt í að verða blanda af vefverslun með heimasaumuð barnaföt og textíl. Í lok október urðu tímamót hjá Litlu músinni en þá flutti hún inn með allt sitt hafurtask í einn hluta af verslun Gallerý Snotru við Kirkju- braut á Akranesi. Skagakonan Vera Knútsdóttir er eigandi og starfs- maður verslunarinnar. Skessu- horn kíkti á Veru í síðustu viku og spurði hana fyrst hvernig verslun Litla músin væri? „Þetta er vefnað- arvöruverslun með lífræna vefnað- arvöru, með lífræna bómull eða líf- ræn efni og ef það eru gerviefni að þá eru þau umhverfisvottuð. Svo er ég líka að sauma og selja barnaföt og var að byrja með fullorðinsfatn- að líka.“ Hvað kom til að þú komst hingað? „Ég var búinn að ræða þetta við Línu, eiganda Gallerý Snotru, að koma eina helgi þegar ég var nýbúin að opna vefversl- un með handavinnu fyrir tveim- ur árum og koma sem gestur þegar covid væri búið. Það gerðist ekkert strax þannig að í sumar á Írskum dögum var ég hérna og það gekk mjög vel og okkur líkaði vel. Við fengum báðar hugmynd að þetta gæti verið mjög sniðugt að ég fengi inni hjá henni. Ég kom inn í lok október því mig vantaði húsnæði og það verður að segjast að það er virkilega erfitt að finna atvinnu- og verslunarhúsnæði hér á Akranesi.“ Hæga tískan mikilvæg Vera er sjálflærð í saumaskap að hennar sögn og langar að læra kjólasaum en það sé frekar erfitt þegar maður er orðinn eldri en 25 ára að komast inn í skólann seg- ir hún og hlær. „Þegar ég byrjaði sjálf af alvöru að sauma þá fannst mér vanta úrval af lífrænni vefnað- arvöru og þó það sé margt fallegt í mörgum verslunum að þá fann ég ekki það sem ég var að leita að og fór því bara einfaldlega að gera þetta sjálf.“ Vera heldur úti heimasíðunni litlamusin.is og er einnig á face- book og instagram og þar er hægt að fylgjast með öllu sem er að ger- ast. En hvernig hefur reksturinn gengið og hvaðan eru vörurnar? „Það hefur gengið vel hingað til og ég er komin með fínan kúnna- hóp sem hefur verið að versla í vef- versluninni en það er alltaf betra að koma og snerta vöruna að mínu mati. Þetta er allt evrópsk hönnun, allt framleitt í Evrópu og mjög vistvænt. Ég er með ástríðu fyrir því að flestir geti saumað þannig að þó það sé ekki endilega úr efnum frá mér heldur það að geta lagað flíkurnar og verið sjálfbærari, ekki henda bara fötunum í Búkollu og kaupa sér nýtt. Það er þessi hæga tíska sem mér finnst gríðarlega mikilvæg.“ Allt öðruvísi gæði En hvernig fer fólk að ef það langar að láta sauma á sig? „Ég sauma yf- irleitt eftir pöntunum og er því ekki með mikinn lager á fötum til sýn- is því það er hugmyndafræðin. En ég er með gríðarlega mikið úr- val af efni og er til að mynda með mesta úrval landsins af svokölluðu bómullarjersey. Eina sem þarf að gera er að kíkja í heimsókn, velja sér efni, fá málin og ég sé um af- ganginn. Það er voða krúttlegt þegar börnin fá að velja sinn eigin fatnað en að sjálfsögðu með sam- þykki foreldra ef það er hægt!“ Vera segir að endingu að verðið fari svolítið eftir því hvaða efni er valið því það er misdýrt í innkaup- um og það geti orðið smá flækjustig hvað fer mikið af efni í hverja flík. Hún segir að hún sé kannski dýr- ari en Lindex og meira á pari við Molo og Polarn og Pyret. „Þetta er allt handgert, allt eftir máli og allt öðruvísi gæði. Ég prófa til dæmis alltaf að sauma úr efnunum áður en ég tek þau inn og þá er tilvalið að láta dætur mínar böðlast endalaust í því.“ segir Vera að lokum. Vera er í Litlu músinni alla þriðjudaga, fimmtudaga og föstu- daga og svo fyrsta laugardag í hverjum mánuði. vaks Með ástríðu fyrir því að flestir geti saumað Vera Knútsdóttir, eigandi Litlu músarinnar. Hvet karlmenn hiklaust til þess að læra að prjóna - einbeiting og hugarró í senn segir Hallgrímur Eðvarð Árnason, fyrrum sjómaður sem prjónar á eftirlaunaárum sínum Hallgrímur Eðvarð með peysu á prjónunum. Jólapeysa og húfur eftir norskri uppskrift. Krummapeysa komin af prjónunum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.