Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2022 23
HVALUR hf.
Reykjavíkurvegi 48 | 220 Hafnarfjörður | Skrifstofa: 555 0565 | Frystihús (pantanasími): 555 0165
BÓNUS - Um allt land
DEPLA, Kolaportinu, Reykjavík
FISKBÚÐIN SUNDLAUGAVEGI 12, Reykjavík
FISKBÚÐIN TRÖNUHRAUNI 9, Hafnarfjörður
FISKBÚÐIN HAFBERG - Gnoðarvogi 44, Reykjavík
FISKBÚÐIN HÓFGERÐI 30, Kópavogur
FISKBÚÐ HÓLMGEIRS - Þönglabakka 6, Reykjavík
FISKVERSLUN HVERGERÐIS - Breiðamörk 2, Hveragerði
FISK KOMPANÍ – Kjarnargata 2 við bónus, Akureyri
FISKBÚÐIN MOS - Háholti 13-15, Reykjavík
FISKBÚÐ FJALLABYGGÐAR - Aðalgötu 27, Siglufirði
FISKBÚÐ SJÁVARFANGS EHF. - Sindragötu 11, Ísafirði
FISKBÚÐ SUÐURLANDS - Eyrarvegi 59, Selfoss
FISKBÚÐIN VEGAMÓT - Nesvegi 100 - Seltjarnarnes
FISKIKÓNGURINN - Sogavegi 3, Reykjavík
FJARÐARKAUP - Hólshrauni 1b, Hafnarfjörður
GALLERÝ FISKUR - Nethyl 2, Reykjavík
HAFBJÖRG FISKVERSLUN Hjallabrekku 2, Kópavogi
HAFIÐ - Spönginni 13, Reykjavík og Hlíðarsmára 8, Kópavogi
HAGKAUP - Um allt land
HNÝFILL EHF. - Drefingaraðili - Brekkugötu 36, Akureyri
KASSINN – Norðurtanga 1, Ólafsvík
KAUPFÉLAG VESTUR HÚNVETNINGA - Strandgötu 1, Hvammstangi
KJÖRBÚÐIN - Um allt land
KJÖTHÖLLIN – Skipholti 70 og Háaleitisbraut 58-60, Reykjavík
KJÖRBÚÐIN - Um allt land
KRAMBÚÐIN - Um allt land
KRÓNAN - Um allt land
KRÆSINGAR EHF. - Sólbakka 11, Borgarnes
LITLA FISKBÚÐIN - Helluhrauni 16-18, Hafnarfirði
MELABÚÐIN - Hagamel 39, Reykjavík
MÚLAKAFFI - Hallarmúla 1, Reykjavík
NETTÓ - Um allt land
SAH AFURÐIR - Húnarbraut 39, Blönduós
SKAGFIRÐINGABÚÐ - Ártorgi 1, Sauðárkrókur
VILLT OG ALIÐ – Þingskálar 4, Hella
VERSLUNIN EINAR ÓLAFSSON EHF. - Skagabraut 9-11, Akranes
VERSLUNIN RANGÁ - Skipasundi 56, Reykjavík
Fæst m.a. á eftirfarandi stöðum á þorranum:
af langreyði, framleitt af Hval hf.
SÝRT HVALRENGI
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 11. janúar 2022 að auglýsa
tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis skv. 1. mgr.
43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingar felast m.a. í að A-hluta deiliskipulagsins er breytt þannig
að í stað fleyglaga lóða og hringleiðar í miðju svæðisins kemur
reglulegri lóðaskipan, umfang gatnakerfis minnkar. Skilmálar
deiliskipulagsins er endurskoðað með það að markmiði að mæta
þörfum iðngarða og fyrirtækjaklasa fyrir gott umhverfi sem styður
við áherslur um samþættingu og sjálfbærni.
Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að
Dalbraut 4, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar,
www.akranes.is frá og með 21. janúar til og með 8. mars 2022.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna
þarf að skila skriflega eigi síðar en 8. mars 2022 í þjónustuver
Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar.
Marie-Thérese Mrusczok leiðsögu-
maður hjá Láki Tours í Grundar-
firði og hvalasérfræðingur hjá Nátt-
úrustofu Vesturlands hefur gefið út
skrá um háhyrninga sem hafa ver-
ið myndaðir við strendur Snæfells-
ness. Borin hafa verið kennsl á tæp-
lega eitt þúsund mismunandi há-
hyrninga sem ljósmyndaðir hafa
verið við Snæfellsnes. Þetta kemur
fram í nýrri skýrsla Orca Guardians
og Náttúrustofu Vesturlands.
Listinn er gefinn út sem vísinda-
skýrsla og er gerð í samvinnu við
Náttúrustofu Vesturlands og Orca
Guardians Iceland sem Marie er í
forsvari fyrir en hún er stofnandi
samtakanna. Háhyrningar þekkj-
ast á bakhyrnunni og gráa svæðinu
fyrir aftan hana en það er einstakt
á hverjum einstaklingi. Með því að
safna saman ljósmyndum af bak-
hyrnum háhyrninga hefur verið
unnt að bera kennsl á 961 einstak-
ling á tímabilinu 2011 til 2021.
Marie fór í gegnum 330 þúsund
myndir sem voru teknar í hvala-
skoðunarferðum hjá Láka Tours á
þessu tímabili.
Í skýrslunni eru einnig myndir frá
öðrum svæðum við Ísland. Þar eru
myndir frá Steingrímsfirði, Ísafirði,
Látrabjargi, Skjálfanda, Borgarfirði
eystri, Hvalfirði, Grindavík, Faxa-
flóa og Vík. Heildarfjöldi þekktra
einstaklinga við Íslandsstrendur
er 987 en árið 2017 voru þeir ekki
nema 322 þannig að fjöldinn hefur
aukist gríðarlega síðustu ár.
Skýrslan er afrakstur átta ára
vinnu og mun reynast vel við þá
vinnu að fylgjast með og skrá-
setja háhyrningana í náinni fram-
tíð. Listinn er aðgengilegur á vef-
síðunni https://orcaguardians.org/
orca-id-catalogues/ tfk
Frá hvalaskoðunarferð með Láka Tours.
Gefur út skrá um háhyrninga
Forsíða á hinum rafræna lista.