Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202234
Landnámssetur Íslands í Borg-
arnesi hefur ákveðið að taka virkan
þátt í Veganúar sem Samtök græn-
kera á Íslandi hafa staðið fyrir síðan
2016 og er þetta því í sjöunda sinn
sem áskorunin fer fram. Í janúar
ár hvert máta hundruðir þúsunda
einstaklinga og fyrirtækja um allan
heim sig við vegan lífstílinn. Vegan
eða veganismi er lífsháttur sem sí-
fellt færist í aukana. Það eru þrjár
mismunandi eða samtvinnaðar
ástæður fyrir því að fólk temur sér
veganisma eða tekur þátt í viðburði
á borð við Veganúar; fyrir dýrin,
fyrir umhverfið eða fyrir heilsuna.
Þátttakendur í Veganúar eru eins
og fyrr segir, um allan heim og fjöl-
mörg fyrirtæki, eins og Landnáms-
setur Íslands, taka þátt í átakinu
hérlendis. Veitingastaðir setja nýja
vegan rétti á matseðla, matvöru-
verslanir bjóða upp á tilboð á vegan
vörum og Samtök grænkera á Ís-
landi standa fyrir fræðandi og nær-
andi viðburðum. Með þessu er ver-
ið að kynna veganisma og gera fólki
auðveldara fyrir að prófa vegan
lífstílinn.
Taka yfir samfélags-
miðla Veganúar
„Við ákváðum að taka þátt í þessu
skemmtilega verkefni,“ segir Helga
Margrét Friðriksdóttir, fram-
kvæmdarstýra Landnámsseturs Ís-
lands í Borgarnesi. Landnáms-
setrið hefur verið þekkti fyrir veg-
legt grænmetishlaðborð sem það
býður upp á í hádeginu dag hvern
og margir sækjast í, en nú í janúar
verður allt vegan. „Við förum alla
leið með þetta í janúar á meðan við
tökum þátt í Veganúar. Alla jafna er
hlaðborðið okkar grænmetismið-
að, en við merkjum allt sérstaklega
ef það eru vegan réttir í boði, eða
eitthvað er laktósa- eða glútenfrítt.
Eins með súpuna okkar, hún er
alltaf vegan hjá okkur,“ bætir Helga
Margrét við.
Í gær, 18. janúar tók Landnáms-
setrið yfir Instagram reikning
Veganúar: veganuar_iceland. „Við
ætlum að segja frá öllu því sem við
erum að gera í janúar í tilefni okk-
ar þátttöku í Veganúar en líka segja
almennt frá okkar starfssemi og
kynna okkar flotta veitingastað,“
segir Helga Margrét spennt og
hvetur jafnframt alla til að fylgjast
með því.
Tilraunastarfsemi
í eldhúsinu
Alla jafna býður Landnámssetr-
ið upp á vegan valmöguleika á
matseðli sínum en í tilefni Vegan-
úar þá draga þau fram alla þá vegan
rétti sem nú þegar eru í boði ásamt
því að bæta við tveimur nýjum
vegan réttum svo úr verður sérstak-
ur Veganúar matseðill sem verður í
boði út mánuðinn. „Við bættum til
dæmis við falafel bollum og vegan
lasagne. Svo fá kokkarnir okkar að
prófa sig áfram á hverjum degi og
búa til rétt dagsins sem verður alltaf
vegan og aldrei sá sami,“ útskýrir
Helga Margrét. „Það er svo gam-
an að gefa starfsfólkinu okkar svig-
rúm til að koma með hugmyndir og
prófa sig áfram í því sem það ger-
ir best, nota sitt hugvit og búa til
nýja rétti,“ bætir Helga Margrét já-
kvæð við. „Að því sögðu langar mig
að hvetja alla til að koma til okkar
í janúar og prófa réttina okkar og
segja sína skoðun. Við viljum heyra
hvað fólki finnst og ef fólk er ánægt
þá er það bara hvati til að halda
þessu áfram,“ segir Helga Margrét
bjartsýn að endingu.
glh
Pálmi Þór Jóhannsson opnaði bíla-
þvottastöðina Skagabón á Akranesi
1. nóvember 2020. Fyrst um sinn
var hann með aðstöðu í litlu iðnað-
arbili við Kalmansvelli og rak hann
stöðina á eigin kennitölu. Í dag hef-
ur Pálmi opnað Skagabón í nýrri og
betri aðstöðu við Faxabraut 3 og er
fyrirtækið komið með eigin kenni-
tölu. „Það var stefnan hjá mér að
gera þetta að sjálfstæðu fyrirtæki
árið 2022 og nú er það komið,“ seg-
ir Pálmi ánægður þegar blaðamað-
ur Skessuhorns leit við hjá honum á
mánudaginn.
Pálmi segir Skagamenn hafa
tekið mjög vel á móti bílaþvotta-
stöðinni og verið duglegir að nýta
þjónustuna. Auk þess sem fólk hef-
ur verið að koma langt að með
bílana sína til hans. „Þetta hefur
gengið rosalega vel og í raun far-
ið fram úr öllum mínum vænting-
um,“ segir hann. „Þessa þjónustu
vantaði hér á Akranesi og sést það
bara á því hversu mikið hefur ver-
ið að gera hjá mér. En núna er ég
loksins kominn í framtíðar hús-
næði með frábæra aðstöðu,“ bætir
hann við. Skagabón er nú að leita
eftir starfskrafti en Pálmi er farinn
að bjóða fólki upp á þjálfun í möss-
un og kera míkhúðun bíla og býður
jafnframt þá þjónustu sjálfur.
Er með námskeið á
laugardögum
Aðspurður segir Pálmi að vinsæl-
ast sé að koma með bílana í al-
þrif og djúphreinsun en að ker-
amíkhúðunin hafi líka verið að slá
í gegn. „Keramík húðunin er ótrú-
lega mögnuð, hún verndar lakk-
ið fyrir rispum og svo verður bara
mikið auðveldara að þrífa bílinn á
eftir,“ segir Pálmi og bætir við að
húðunin eigi að veita vernd í heilt
ár. Hann vinnur með Gyeon vör-
ur og er nú orðinn söluaðili fyrir
vörurnar á Akranesi. „Ég er í sam-
starfi við ÓK bón í Reykjavík og er
búinn að fara í sérþjálfun hjá þeim
til að nota þessar vörur og er að
þjónusta þá hér á Akranesi. Svo er
ég líka með námskeið alla laugar-
daga þar sem ég er að kenna fólki
að þrífa bílana sína með þessum
frábæru vörum. Þeir sem hafa próf-
að að nota þessar vörur fara ekki í
annað eftir það,“ segir Pálmi.
arg
Skagabón flutt í nýtt og betra húsnæði
Vegan eftirréttur; sorbet frá Erps-
stöðum í Búðardal og vegan rjómi.
Einnig er hægt að fá ómótstæðilega
hindberja- og heslihnetu köku sem er
algjörlega vegan.
Landnámssetur Íslands er þátttakandi í Veganúar
Helga Margrét Friðriksdóttir, framkvæmdarstýra Landnámsseturs Íslands (til vinstri), heldur hér á sérstökum Veganúar
matseðli sem verður í boði út janúarmánuð. Við hliðina á henni, f.v: Viktor Leifsson, Justyna Jasińska og Weronika
Sajdowska.
Ljúffengar falafel bollur sem blaða-
maður fékk að smakka og getur
hiklaust mælt með.Vegan lasagne er nýr vegan réttur hjá
Landnámssetrinu.
Ljúffengur veganréttur sem finnst á
Veganúar matseðlinum.