Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202238
Hvernig líst þér
á árið 2022?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Sólberg Rafn Haraldsson
„Það er bara nýbyrjað, ekki al-
veg hægt að dæma það strax.“
Magnús Sverrisson
„Ágætlega en hefði mátt byrja
betur.“
Kristinn Þór Óskarsson
„Sæmilega.“
Mariusz Michalek
„Vonandi verðum við laus við
Covid-19 og að allir nái betri
heilsu. Svo vona ég líka að vinna
í lottóinu.“
Lindberg Már Scott
„Alveg ágætlega.“
Gústi afi er fyndnastur
Íþróttamaður vikunnar
Íþróttamaður vikunnar er nýr lið-
ur hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta-
manna úr allskonar íþróttum á öll-
um aldri á Vesturlandi. Íþrótta-
maður vikunnar að þessu sinni
er knattspyrnumaðurinn Bjartur
Bjarmi frá Ólafsvík.
Nafn? Bjartur Bjarmi Barkarson
Fjölskylduhagir? Ég bý hjá for-
eldrum mínum ásamt eldri og yngri
bróður.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótboltinn er mitt helsta áhugamál.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Ég vakna
í skólann á hverjum morgni og eftir
hann stoppa ég stutt við heima áður
en ég fer í ræktina fyrir fótboltaæf-
ingu.
Hverjir eru þínir helstu kost-
ir og gallar? Ég er vinnusamur og
ákveðinn, jákvæður og góður vinur.
Ég á erfitt með að segja nei, það er
svona minn helsti kostur og galli.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi
5-6 sinnum á viku með liðinu ásamt
því að fara í líkamsrækt.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Ég hef alltaf litið upp til Messi.
Af hverju valdir þú knattspyrnu?
Ég veit það í raun ekki, hef bara
sparkað í bolta frá því ég man eft-
ir mér.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Ætli það sé ekki hann
Gústi afi.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt? Það
er skemmtilegast að vinna leiki en
það leiðinlegasta eru hlaup án bolta.
Knattspyrnufélag ÍA hef-
ur gert eins árs samning
við Aron Bjarka Jóseps-
son. Aron Bjarki kemur til
félagsins frá KR þar sem
hann lék 128 leiki í efstu
deild og skoraði í þeim átta
mörk. Aron Bjarki er 32 ára
varnarmaður og hefur leik-
ið með KR frá árinu 2011
en hann var þrisvar sinn-
um Íslandsmeistari og bik-
armeistari með KR á þess-
um tíma. Honum er ætlað
að fylla skarð Óttars Bjarna
Guðmundssonar sem gekk
til liðs við sitt gamla fé-
lag, Leikni Reykjavík, nú í
haust.
Aron Bjarki spilaði sinn
fyrsta leik í búningi ÍA á laugar-
daginn en hann lék fyrri hálfleik-
inn með Skagamönnum þegar
þeir mættu liði FH í fotbolti.net
mótinu. ÍA vann leikinn 5-4 með
tveimur mörkum frá Breka Þór
Hermannssyni, Steinari Þorsteins-
syni, Gísla Laxdal Unnarssyni og
sigurmarki Guðmundar Tyrfings-
sonar skömmu fyrir leikslok.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf-
ari ÍA, sagði í viðtali eftir leik að
Aron Bjarki kæmi inn með gríðar-
lega mikla reynslu og væri strax
byrjaður að miðla sinni reynslu
og þekkingu sem fótboltamaður
þannig að það væri frábært að fá
hann í hópinn.
vaks
Knattspyrnudeild Víkings í Ólafs-
vík hefur samið við enska leik-
manninn Reece Mitchell um að
leika með liðinu í 2. deild karla í
knattspyrnu í sumar. Reece er 26
ára kantmaður og þykir mjög hr-
aður og áræðinn. Hann er uppalinn
í akademíu Chelsea á Englandi
og hefur spilað í neðri deildum á
Englandi, þar á meðal 28 leiki með
Chesterfield frá 2016-2018 og lék
með liði KVK Westhoek í fjórðu
deild í Belgíu árið 2020.
Reece Mitchell var hér á landinu
um helgina til að skrifa undir samn-
ing og er væntanlegur aftur til
landsins í febrúar.
Marvin Darri
fer í Vestra
Vestri frá Ísafirði, sem leikur í
Lengudeildinni í knattspyrnu und-
ir stjórn Jóns Þórs Haukssonar, hef-
ur gengið frá samningi við Skaga-
manninn Marvin Darra Steinars-
son. Marvin Darri er tvítugur og
kemur hann til Vestra frá Víkingi
Ólafsvík þar sem hann var aðal-
markvörður liðsins síðasta sumar.
Hann spilaði 16 leiki þegar Vík-
ingur féll úr Lengjudeildinni síð-
asta sumar en á meistaraflokksferl-
inum hefur hann leikið 14 leiki með
Skallagrími árin 2018 og 2019, einn
leik með Kára árið 2020 og þá lék
hann alla yngri flokkana með ÍA.
vaks
Knattspyrnufélag ÍA hefur á síð-
ustu dögum gert samninga við sex
ungar og efnilegar knattspyrnu-
konur. Fyrst ber að nefna Önnu
Þóru Hannesdóttur sem skrif-
aði undir nýjan samning sem gild-
ir út tímabilið 2023. Anna Þóra,
sem er fædd 2002, lék 14 leiki með
ÍA í Lengjudeildinni síðasta sum-
ar og skoraði eitt mark. Þá hafa
þær Selma Dögg Þorsteinsdótt-
ir og Erna Björt Elíasdóttir einnig
gert nýja samninga við ÍA sem gilda
út tímabilið 2023. Selma Dögg og
Erna Björt léku báðar tvo leiki fyr-
ir ÍA síðasta sumar og eru fæddar
árið 2002.
Þá gerði ÍA nýjan samning við
Lilju Björgu Ólafsdóttur til eins
árs en Lilja Björg, sem er fædd árið
2003, lék 15 leiki á síðasta tímabili
og skoraði eitt mark. Einnig skrif-
aði Þorgerður Bjarnadóttir, fædd
2003, undir sinn fyrsta samning
sem gildir út tímabilið 2023 en hún
lék tvo leiki síðasta sumar. Að lok-
um skrifaði Erla Karítas Jóhann-
esdóttir, fædd 2002, undir samning
sem gildir út sumarið 2022 en Erla
lék 18 leiki og skoraði þrjú mörk á
síðasta tímabili. ÍA leikur í 2. deild
kvenna á Íslandsmótinu í sumar eft-
ir að hafa fallið úr Lengjudeildinni
síðasta sumar. Þjálfari liðsins er
Magnea Guðlaugsdóttir en hún tók
við liðinu í haust.
Að lokum má geta þess að ÍA hef-
ur gert þriggja ára leikmannssamn-
ing við Daniel Inga Jóhannesson.
Daníel Ingi er fæddur árið 2007
og lék 14 leiki með 3. flokki ÍA á
síðasta tímabili og skoraði í þeim
fimm mörk.
vaks
Reece Mitchell að skrifa undir samn-
inginn. Ljósm. af Facebooksíðu Víkings
Víkingur Ólafsvík
fær nýjan leikmann
Jói Kalli og Aron Bjarki að handsala samninginn.
Ljósm. kfia
Aron Bjarki gengur
til liðs við ÍA
ÍA semur við unga og efnilega leikmenn
Selma Dögg og Erna Björt eftir undirritun samningsins. Ljósm. kfia