Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202222
Stykkishólmsbær og Matís hafa
gert með sér samkomulag um sam-
starf í Stykkishólmi með áherslu
á fræðslu, nýsköpun, rannsókn-
ir og atvinnuuppbyggingu inn-
an sveitafélagsins. „Báðir aðilar
samkomulagsins munu nýta styrk-
leika sína og innviði viðkomandi
aðila eins og kostur er,“ segir í til-
kynningu. Stykkishólmsbær stofn-
aði til hugarflugsfundar með Mat-
ís, KPMG og fulltrúum atvinnu-
lífsins á svæðinu 26. nóvember á
liðnu ári. Fulltrúar atvinnulífsins
fjölmenntu og sköpuðust líflegar
umræður um tækifærin til aukinn-
ar verðmætasköpunar og eflingu
atvinnulífsins er varðar sjálfbæra
matvælaframleiðslu á svæðinu.
Jakob Björgvin Jakobsson bæj-
arstjóri heimsótti, ásamt formanni
atvinnu- og nýsköpunarnefnd-
ar, fyrirtæki í Stykkishólmi í þeim
tilgangi að kynnast betur starf-
semi fyrirtækja og stofnana í bæn-
um auk fyrirliggjandi áskorana
og tækifæra og kanna með hvaða
móti Stykkishólmsbær geti bet-
ur stutt við hagsmuni atvinnulífs
í sinni stefnumótun og hagsmuna-
gæslu. „Atvinnulífið er grundvöll-
ur byggðar á hverjum stað og lífæð
allra samfélaga. Að vera í góðum
tengslum við atvinnulífið og skilja
þarfir þess er mikilvægt,“ að sögn
Jakobs.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæj-
ar skipaði í framhaldinu starfs-
hóp um eflingu atvinnulífs í bæn-
um sem vinnur nú að því að greina
tækifæri til eflingar atvinnulífs á
grunni svæðisbundinna styrkleika
sem mun nýtast við stefnumörk-
un bæjarins í atvinnumálum. Í
starfshópnum eiga sæti fulltrúar
frá Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi og Byggðastofnun. Þar er
m.a. horft til verðmætasköpun-
ar í tengslum við sjálfbæra nýt-
ingu auðlinda Breiðafjarðar. Er
samkomulag Matís ohf. og Stykk-
ishólmsbæjar liður í sömu vegferð.
„Með þessu vill Stykkishólmsbær
tryggja fyrirtækjum hagstæð skil-
yrði, vera hreyfiafl góðra verka og
styðja við rannsóknir og nýsköp-
un,“ undirstrikar Jakob.
Samningur
undirritaður
Nokkrir fulltrúar atvinnulífsins í
Stykkishólmi áttu, ásamt bæjar-
stjóra og formanni atvinnu- og
nýsköpunarnefndar, hugarflugs-
fund með fulltrúum frá Matís og
KPMG 26. nóvember síðastliðinn.
Á fundinum voru til umræðu rann-
sóknir, nýsköpun, sprotastarfsemi,
matvælaframleiðsla og ábyrg nýt-
ing auðlinda Breiðafjarðar með
það að markmiði að stuðla að sjálf-
bærri nýtingu auðlinda og auk-
inni verðmætasköpun á svæðinu.
Að loknum fundi rituðu Jakob
Björgvin Jakobsson bæjarstjóri og
Oddur Már Gunnarsson, forstjóri
Matís, undir samkomulag um sam-
starf Stykkishólmsbæjar og Matís.
„Mikil gróska og uppbygging á
sér stað á sviði sjálfbærrar afurða-
og matvælaframleiðslu í Stykk-
ishólmsbæ og er það markmið
Stykkishólmsbæjar og Matís að
styðja eftir megni við einstaklinga
og fyrirtæki á svæðinu til verð-
mæta- og nýsköpunar í matvæla-
iðnaði og frekari vinnslu svæðis-
bundinna afurða, og þannig stuðla
að aukinni hagsæld, fæðuöryggi,
matvælaöryggi og bættri lýðheilsu
fyrir íslenskt samfélag,“ segir í
sameiginlegri tilkynningu Matís
og Stykkishólmsbæjar mm
Árið 1999 var fyrirtækið Gæða-
kokkar stofnað í Mosfellsbæ. Árið
2007 flutti það starfsemina í Borg-
arnes og 2014 var nafninu breytt
í Kræsingar. Eigendur Kræs-
inga voru hjónin Magnús Níels-
son Hansen matreiðslumeistari og
eiginkona hans, Vala Lee Jóhanns-
dóttir. Nú í haust ákváðu þau að
selja rekstur og eignir fyrirtækisins.
Kaupandinn er Álfasaga. Magn-
ús samdi við kaupendurna um að
starfa þar áfram og stýra vöruþró-
un. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í
heimsókn til Magnúsar í fyrirtækið
við Sólbakka í Borgarnesi og spjall-
aði við hann um þessar breytingar.
Magnús segir að fyrirtækið sem
keypti af þeim heiti Álfasaga en það
rekur meðal annars Móður Nátt-
úru og Dagnýju og Co. „Þetta eru
fjársterkir aðilar með öfluga mark-
aðssetningu og komu þeir til dæm-
is núna inn í dreifingu á Paté vör-
um sem við höfum verið að fram-
leiða. Við erum mjög sterkir á því
sviði og seldum núna fyrir síðustu
jól eitthvað um tuttugu þúsund ein-
ingar af paté í þessum helstu versl-
unum; svo sem Krónunni, Hag-
kaup, Fjarðarkaupum og Melabúð-
inni. Álfasaga ætlaði fyrst einung-
is að kaupa tæki Kræsinga, en svo
sáu forsvarsmenn þess það sem við
höfum verið að gera og urðu mjög
hrifnir. Þeir eru mjög sterkir á
markaðinum og einnig í dreifingu
þannig að þetta var hvalreki fyrir
mig að fá þessa menn inn í dæmið,“
segir Magnús.
Hann segir að það sé ekkert
leyndarmál að fyrirtækið hafi í raun
verið rekið með tapi undanfar-
ið í Covid faraldrinum. Til dæm-
is hafa Kræsingar verið öflugar á
þorrablótamarkaðinum undanfar-
in ár og verið að gera góða hluti
þar. „Það voru engin þorrablót í
fyrra en við náðum í hittifyrra, áður
en Covid-19 skall á, góðu svingi.
Hér við Sólbakka munum við nú
einbeita okkur að þróun og fram-
leiðslu á bökum,“ segir Magnús.
Starfsmaður á plani
Hefur starfsmönnum fjölgað eftir
breytingarnar? „Það er vilji til þess
að fjölga aðeins og að við förum í
fleiri verkefni fyrir eigendurna.
Núna eru hér fjórir starfsmenn og
bókari í hlutastarfi. Við verðum
ekkert í sölu sjálf, komum til með
að framleiða fyrir Dagnýju og Co
sem sér um neytendamarkaðinn.
Hvað mig varðar má segja að ég sé
orðinn starfsmaður á plani. Þannig
að ég er mjög sáttur við mitt hlut-
skipti og það er gott að þeir hafa trú
á manni.“
Magnús segir að það sé virki-
lega gott að vera með fyrirtækið í
Borgarnesi en bendir þó á að þessi
rekstur geti ekki byggst á mark-
aðinum innan héraðs. Hann seg-
ir að sterkasta vígi þeirra áður fyrr
hafi verið Akranes og hafi Kræs-
ingar m.a. selt í Brekkubæjarskóla,
alla leikskólana og í fjölbrautaskól-
ann. En hvað eruð þið að framleiða
hérna núna? „Við erum að fram-
leiða kjúklingabökur, koma okkur
upp lager og þær fara síðan í búð-
irnar. Allar vörur sem við framleið-
um í dag eru undir nafninu Dagný
og Co og fara á neytendamarkað.
Okkar nafn, Kræsingar, er fram-
leiðslufyrirtæki en aðrir munu sjá
um sölu og markaðssetningu.“
Bökumarkaðurinn
verið í svelti
En er Magnús bjartsýnn á framtíð-
ina? „Það er ég, maður verður að
taka þátt í samfélaginu og fyrirtæk-
ið á eftir að eflast á næstu árum.
Nú eru horfur aðrar hjá okkur og
við höfum fengið fjársterka aðila
til að koma inn í reksturinn með
okkur. Þeir eru nú þegar sterkir á
neytendamarkaði með sínar vörur
og eiga eftir að bæta við nokkrum
vörutegundum sem framleidd-
ar verða hjá okkur. Við ætlum að
koma sterk inn á markaðinn með
bökur sem verða unnar í samvinnu
með þeim. Bökumarkaðurinn hefur
verið í svelti síðan við hættum fram-
leiðslu á þeim og margir sem sakna
þeirra gífurlega. Við verðum með
grænmetisbökur, kjúklingabökur,
pizzabökur og kúrekabökur til að
byrja með en sjáum svo til hvort við
bætum við fleiri tegundum. Fram-
leiðslan er komin í gang og stutt er
í að bökurnar verði keyrðar í versl-
anir. Þær verða kælivara nú en voru
frystivara hjá mér hér áður. Það má
að sjálfsögðu frysta vöruna en neyt-
andinn gerir það þá sjálfur.“
Magnús segir að lokum að hann
sé bjartsýnn á framtíðina og hlakki
til að vinna með nýjum eigendum
að vöruþróun og á nýjum markaði.
„Hver veit nema maður geti svo
boðið konunni í sumarfrí í fyrsta
skipti í langan tíma,“ segir hann
brosandi. vaks
Þorski landað í Stykkishólmi á síðasta ári. Ljósm. sá.
Matís og Stykkishólmsbær taka höndum saman
Magnús að aðstoða í framleiðslunni.
Álfasaga keypti rekstur Kræsinga í Borgarnesi
Magnús með ylvolgar kjúklingabökur í fanginu.