Skessuhorn - 09.02.2022, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 202216
Nemendur í Fjölbrautaskóla Vest
urlands eiga frí frá hefðbundinni
stundaskrá í þessari viku þegar ár
legir opnir dagar eru haldnir í skól
anum. Í þeim gefst nemendum
kostur á að taka þátt í mörgum ólík
um námskeiðum og afþreyingu og
velur hver nemandi fjóra viðburði
sem honum líst best á. Dagskráin
hófst á hádegi í gær með fyrirlestr
um og lýkur á morgun, fimmtudag
með íþróttakeppni.
Á meðal þess sem verður í boði
þessa þrjá daga má nefna að á þriðju
daginn voru fyrirlestrar um karl
mennskuna, orkudrykki og áfengi
og UN Women. Um kvöldið var
síðan Kaffihúsakvöld og skemmt
un á sal skólans. Í dag, miðviku
dag, færist meira fjör í leikinn því
þá verður meðal annars fótbolta
mót, púttkeppni, námskeið í hrað
lestri, jóga og djúpslökun og klifri.
Eftir hádegi verður námskeið í
karaoke, brauðbakstri, sjósundi og
handavinnu. Þá geta nemendur
einnig skotist í skíðaferð í Bláfjöll
þar sem farið er af stað um morgun
inn og komið heim seinni partinn.
Á morgun fimmtudag lýkur dag
skránni með íþróttakeppni milli
kennara og nemenda þar sem keppt
verður í blaki, bandý og skotbolta
og þar er búist við miklum hasar og
hörkukeppni.
Að loknum Opnum dögum
verður árshátíð haldin á sal skól
ans fimmtudagskvöldið 10. febr
úar. „Farið verður að ítrustu sótt
varnareglum, salnum er skipt í fjög
ur hólf, númeruð sæti og grímu
skylda,“ segir Steinunn Inga Ótt
arsdóttir skólameistari. Meðal
skemmtiefnis má nefna metnaðar
fullt árshátíðarmyndband Skutlunn
ar kvikmyndaklúbbs FVA, spurn
ingakeppni og Ari Eldjárn verður
með uppistand. Veislustjórar verða
Auddi og Steindi. Dagskránni lýkur
um klukkan 22. Það verður hvorki
ball né aðrir viðburðir á vegum
skólans eftir það, að sögn Steinunn
ar Ingu. vaks/ Ljósm. fva/vaks
Í ársbyrjun 2020 var skipaður
samráðshópur um öldrunarmál á
Vestur landi með það markmið að
geta staðið undir hækkandi aldri
þjóðarinnar. Hópurinn tók til starfa
í september sama ár og hélt í síð
ustu viku kynningu á lokaskýrslu
í gegnum Teams fjarfundabúnað.
Björn Bjarki Þorsteinsson, fram
kvæmdastjóri Brákarhlíðar og for
maður samráðshópsins, fór yfir þau
verkefni sem hópurinn vann að.
Eitt af verkefnunum var að auka
námskeiðahald fyrir starfsfólk í
öldrunarþjónustu og leitaði hópur
inn til Símenntunarmiðstöðv
ar Vesturlands um að standa fyrir
námskeiðum fyrir starfsfólk í öldr
unarþjónustu. Haldin voru fimm
námskeið sem voru þátttakendum
að kostnaðarlausu, en Sóknaráætl
un Vesturlands fjármagnaði þau að
stærstum hluta. Þá leitaði hópur
inn til KPMG um að vinna grein
ingu á rekstri allra sjö hjúkrunar
og dvalarheimila á Vesturlandi og
Guðmundur Hermannsson fór yfir
þær niðurstöður á fundinum. Fram
kom að ýmis tækifæri eru til að bæta
rekstur heimilanna, t.d. með því að
skoða möguleikann á að samnýta
yfirstjórn heimilanna, afleysingar,
lækna, sérfræðinga eða annað sér
menntað starfsfólk t.d. með sam
eiginlegum ráðningum eða þjón
ustusamningum.
Samvinna á Vesturlandi
Að lokum var farið yfir tilraunaverk
efni hópsins um aukna samvinnu
í öldrunarþjónustu á Vesturlandi.
Fyrsta verkefnið sem hópurinn
lagði til var að stofnað yrði endur
hæfingarteymi og að velferðar og
mannréttindasvið Akraneskaup
staðar og HVE færu í samstarf um
að samþætta þjónustu við aldraða
í heimahúsum, m.a. með stofnun
endurhæfingarteymis. Í teyminu
myndu starfa iðjuþjálfar, íþrótta
fræðingar, hjúkrunarfræðingar,
sjúkraþjálfarar, sjúkraliðar, félags
liðar og næringarfræðingar. Þannig
mætti efla þjónustu við aldraða
í heimahúsum og styðja þannig
við að notendur geti búið lengur í
heimahúsum og þar með minnk
að mögulega þjónustuþörf og eftir
spurn eftir hjúkrunarrýmum.
Miðstöð
öldrunarþjónustu
Annað verkefnið sem hópur
inn lagði til var nýtt skipulag á
rekstri öldrunarmála eða mið
stöð öldrunarþjónustu. Þetta verk
efni er í umsjón Borgarbyggð
ar, Skorradalshrepps, Brákarhlíð
ar og HVE og hefur verkefnið það
markmið að skapa grundvöll fyr
ir eins skilvirka öldrunarþjónustu
og kostur er alla daga ársins. Verk
efnið snýst um að stofna sameigin
lega miðstöð öldrunarþjónustu til
að sinna samskiptum og þjónustu
við aldraða. Þjónustan væri hugs
uð út frá þörfum hvers og eins og
til að samþætta félagslega og heil
brigðislega heimaþjónustu, dag
vistun, hvíldarinnlagnir, félagsstarf
og hjúkrun. Þannig gæti sameigin
leg upplýsingagátt sem geymir allar
upplýsingar um notandann og hans
aðstandendur einfaldað aðgengi að
þjónustu á svæðinu.
Eitt verkefnið snéri að nýju
skipulagi á rekstri öldrunarmála í
Dalabyggð með það markmið að
skapa skilvirka og hagkvæma öldr
unarþjónustu í sveitarfélaginu
allan ársins hring. Í þessu verk
efni verður til sameiginleg miðstöð
öldrunarþjónustu og sameigin leg
rekstrarstjórn fyrir Silfurtún og
Fellsenda. Þannig er hægt að sam
þætta þjónustu við neytandann og
stuðla að heildstæðari þjónustu.
Þetta verkefni snýst líka um að ná
betur um rekstur beggja heimila og
auka samstarf þeirra fagaðila sem
starfa við stofnanirnar og hjá HVE
í Búðardal.
Einnig lagði hópurinn til verk
efni um heilsueflingu og félagslega
þátttöku eldri borgara. Markmið
verkefnisins er að auka hreyfingu
eldri borgara og þar með að bæta
heilsu þeirra og auka félagslega
þátttöku. Þannig má bæta heilsu
eldra fólks svo það geti dvalið leng
ur í heimahúsi og þar með minnkar
eftirspurn eftir hjúkrunarrým
um. Að lokum lagði hópurinn til
að gerður yrði samráðsvettvangur
öldrunarmála á Vesturlandi. Þannig
mætti hagræða í rekstri og bæta
þjónustu með auknu upplýsinga
flæði milli aðila í öldrunarþjónustu
og auknu samstarfi í landshlutan
um. arg
Þessi hressu ungmenni voru í útihlaupi og styrktaræfingum hjá Kristínu Eddu
Búadóttur kennara eftir hádegi í gær, við upphaf Opinna daga í FVA.
Opnir dagar standa yfir í Fjölbrautaskóla Vesturlands
Stjórn NFFA með kennurum sem stýra skipulagi Opinna daga í FVA, þeim Helenu
Valtýsdóttur og Kristínu L. Kötterheinrich.
Samráðshópur um öldrunarmál á
Vesturlandi kynnti skýrslu sína
Það má með sanni segja að erils
samt hafi verið hjá björgunarbátn
um Björgu í Rifi og áhöfn hans á
þessu ári. Fimmta útkallið frá ára
mótum barst í vikunni sem leið
þegar vélarbilun varð í Gullhólma
SH 201 og þurftu skipverjar að
stoð við að komast í land. Veður
var gott, eða sex til átta metrar að
norðaustan, og gekk heimferðin
vel. Komið var með Gullhólma að
landi í Rifi fimm tímum eftir að út
kallið barst.
þa
Í fundargerð skipulags og um
hverfisráðs Akraneskaupstaðar frá
31. janúar síðastliðinn kemur fram
beiðni til Vegagerðarinnar um að
hefja ferli við undirbúning að gerð
nýs hringtorgs við Akranesveg. Þar
segir að Skógahverfið á Akranesi sé
í hraðri uppbyggingu og því mikil
vægt út frá nokkrum sjónarmiðum
að hringtorg komi sem allra fyrst.
Í fyrsta lagi að þá sé mikilvægt að
tvær útleiðir séu úr Skógahverfi
gagnvart umferð, í öðru lagi að við
hringtorg sé áætlaður tengipunkt
ur lagna hjá Veitum, meðal annars
er varða Skógahverfi og í þriðja lagi
að gönguleið upp í Flóahverfi sé
áætlað að fari yfir/eða undir Akra
nesveg við hringtorg.
Þá segir einnig í bókuninni að af
ofangreindu megi ljóst vera að til
að viðhalda þeim uppbyggingar
áformum sem eru uppi hjá Akra
neskaupstað að hringtorg komi sem
allra fyrst. Ef þessar framkvæmdir
verða að veruleika verður hring
torgið staðsett á núverandi gatna
mótum Akranesvegar og Akrafjalls
vegar.
vaks
Fimmta útkallið frá áramótum
Nýtt hringtorg í undirbúningi
við Akranesveg