Skessuhorn - 09.02.2022, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 202218
Eyjólfur Ármannsson, þingmaður
Flokks fólksins í Norðvesturkjör
dæmi, færði í síðustu viku í tal úr
ræðustól Alþingis frjálsar handfæra
veiðar. „Bann við frjálsum hand
færaveiðum er mannréttindabrot,
það sýnir álit mannréttindanefnd
ar Sameinuðu þjóðanna sem kom
fram árið 2007. Í dag byggist nú
verandi strandveiðikerfi á því og
það er bara allsendis ófullnægjandi.
Í dag er ekki skilið á milli stórtækra
veiða togara og veiða smábáta, jafn
vel þótt vitað sé að veiðihæfni hand
færa sé afar lág, en samkvæmt töl
um Hafrannsóknastofnunar sjálfr
ar er hún 0,6%, sem þýðir að að
eins sex fiskar nást af hverjum 1.000
fiskum sem komast í tæri við krók
ana. Mikilvægt er að endurreisa rétt
sjávarbyggðanna til að nýta sjávar
auðlindina á þann hátt að fjölskyld
ur geti lifað af,“ sagði Eyjólfur.
Benti hann á að undan ströndum
landsins væru ein gjöfulustu fiski
mið í heimi. Þessa auðlind hafa Ís
lendingar nýtt frá því land byggð
ist. „Íbúar sjávarbyggðanna eiga til
kall til fiskimiðanna undan strönd
um landsins. Þar hefur byggð frá
landnámi byggst á fiskveiðum og
landbúnaði. Takmarkanir stjórn
valda á veiðum íbúa undan strönd
um sjávarbyggðanna eru skerðing á
búseturétti sjávarbyggðanna. Tak
markanir á atvinnufrelsi þurfa að
byggjast á sterkum rökum og ekki
ganga lengra en nauðsyn krefur
– það er meðalhófið,“ sagði hann
og benti jafnframt á að aflahámark
sem takmarkar fiskveiðar ætti ein
göngu að ná til þeirra veiða sem
ógna fiskistofnum, ekki til veiða
sem ógna þeim ekki. „Handfæra
veiðar ógna ekki fiskistofnum,“
sagði þingmaðurinn. mm
Fyrir og um síðustu helgi var ótt
ast að djúp og víðáttumikil lægð
myndi hafa mikil áhrif hér á landi
aðfararnótt mánudags. Fyrst var
lýst yfir gulu viðvörunarstigi sem
á laugardaginn fór í appelsínugult
og á sunnudaginn bættist rauð
viðvörun við fyrir allt suðvestan
vert landið. Var það í fyrsta skipti
sem rauð viðvörun var gefin út fyr
ir þetta svæði frá því litakóða kerf
ið var tekið upp af Veðurstofunni
og í almannavarnakerfinu. Lægðin
kom vissulega eins og spáð var, en
hún olli blessunarlega minna tjóni
en óttast hafði verið. Það var með
al annars vegna þess að hitastig í
henni var hærra en spár gerðu ráð
fyrir og úrkoman við sjávarsíðuna
því í formi slyddu í stað snjókomu.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við
lögreglustjóra á landinu, lýstu yfir
hættustigi Almannavarna sem tók
gildi á miðnætti á sunnudagskvöld.
Hættustigi var svo aflétt um hádegi
daginn eftir.
Hættustigi var lýst yfir þar sem
veðurspá Veðurstofu Íslands sýndi
ofsaveður um allt land og að mikil
hætta yrði á foktjóni, snjó og ófærð.
Veðurspáin gekk að hluta til eftir
og kom fyrsta útkall til björgunar
sveita á suðvesturhorni landsins um
klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú
aðfararnótt mánudags. Björgunar
sveitir sinntu vel á annað hundrað
útköllum vegna veðurs og færðar
og voru nokkur útköll hjá sveitun
um hér á Vesturlandi. „Veðrið gekk
hratt yfir og greinilegt var að al
menningur fór eftir ábendingum
Almannavarna og viðbragðsað
ila að vera ekki á ferðinni,“ sagði
í tilkynningu frá Almannavörnum
eftir hádegið á mánudaginn. Þar
önduðu menn því léttara.
Veðurhæð hér um vestanvert
landið varð mest við Hafnarfjall þar
sem vindur fór í 59,4 m/sek í hvið
um, og beggja megin Hvalfjarðar
sömuleiðis. Við Þyril mældist vind
hraði 58,8 m/s og við Tíðaskarð,
þekkt vindasvæði sunnan fjarð
ar, mældist vindhraði 65,1 m/sek í
einni hviðunni.
Helstu áhrif veðursins urðu þau
að rafmagn fór af um tíma um
nóttina á Snæfellsnesi og í Borgar
firði. Þá varð Elkem á Grundar
tanga straumlaust í tæpan hálf
tíma um nóttina. Í öllum tilfellum
gekk vel að koma rafmagni á að
nýju. Samgöngur lágu niðri fram
an af mánudegi, skólahaldi var ým
ist aflýst þennan dag eða starfsemin
hafin þegar líða tók á morguninn.
mm
Matís, Reykhólahreppur og Þör
ungaverksmiðjan hafa undirritað
viljayfirlýsingu um samstarf í rann
sóknum á vegum nýstofnaðrar Þör
ungamiðstöðvar Íslands á Reyk
hólum. Þetta kemur fram á vefsíðu
Reykhólahrepps. Á föstudaginn rit
uðu Ingibjörg Birna Erlingsdótt
ir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, og
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjunnar hf., f.h.
Þörungamiðstöðvar Íslands annars
vegar, og Oddur Már Gunnars
son, forstjóri Matís, hins vegar
undir viljayfirlýsingu um samstarf
við rannsóknir og vöktun í tengsl
um við Þörungamiðstöð Íslands
á Reykhólum í þeim tilgangi að
auka þekkingu, atvinnu og verð
mætasköpun úr þangi og þara með
rannsóknum, fræðslu, nýsköpun og
vöruþróun.
Fjölbreyttari
atvinnusköpun
Þörungamiðstöð Íslands er ætlað
að vera hlutafélag með lögheim
ili í Reykhólahreppi í eigu Þör
ungaverksmiðjunnar hf. og Reyk
hólahrepps sem og fleiri aðila.
Samkvæmt drögum að stofnsamn
ingi er tilgangur félagsins m.a. að
stuðla að aukinni þekkingu og safna
í þekkingarbanka um öflun og nýt
ingu sjávarþörunga við Ísland, bæði
ræktaðra og villtra, stunda rann
sóknir með áherslu á sjávarþör
unga, vera í samstarfi við rann
sóknarstofnanir og fyrirtæki, veita
þjónustu til rannsóknarstofnana og
fyrirtækja, taka þátt í mennta og
fræðastarfi, efla ræktun þörunga
og þróa afurðir úr þeim til að auka
verðmætasköpun úr þessu sjávar
fangi um leið og stuðlað er að fjöl
breyttari atvinnu í Reykhólahreppi.
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, mun
móta starfsemi Þörungamiðstöðv
ar Íslands.
Fimmtíu ára saga
Saga þörungavinnslu á Reykhól
um er orðin 50 ára og staðbundin
þekking á auðlindinni hefur safnast
upp. Leitun er að heppilegri stað
á landinu fyrir rannsóknastarfsemi
og hagnýtri vöruþróun á sjávar
þörungum. Við Breiðafjörð er um
fjórðungur strandlengju Íslands
og vaxtarskilyrði einstök. Fram til
þessa hefur Þörungaverksmiðjan
stutt rannsóknir í firðinum með því
að bjóða farartæki, reynda sæfara
og öryggisbúnað til að athafna sig
við rannsóknir. Byggst hefur upp
mikil þekking á vinnsluferli innan
Þörungaverksmiðjunnar. Með þátt
töku í stofnun Þörungamiðstöðvar
Íslands vill Þörungaverksmiðjan hf.
efla stuðning við rannsóknir á auð
lindinni og nýjar úrvinnsluleiðir,
enda er Reykhólahreppur heima
völlur hennar og íbúarnir undir
staða starfseminnar. Þörungaverk
smiðjan framleiðir og selur há
gæða þurrkað og malað klóþang og
hrossaþara úr Breiðafirði. Þörunga
mjölið er vottað sem óblönduð líf
ræn vara og sjálfbær uppskera. Með
aukinni tækniþróun hafa skapast
gríðarleg tækifæri til fjölbreyttari
nýtingar á þörungum og vinnslu
verðmætra efna í matvæla, snyrti
og lyfjaiðnað með tilheyrandi verð
mæta og atvinnusköpun.
vaks
Segir bann við handfæra-
veiðum mannréttindabrot
Eyjólfur Ármannsson. Ljósm. arg.
Þörungamiðstöð Íslands
verður á Reykhólum
Á meðfylgjandi mynd eru María Maack verkefnisstjóri Þörungaklausturs, Finnur
Árnason framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar hf, Ingibjörg Birna Erlings-
dóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps, Oddur Már Gunnarsson forstjóri Matís og
Anna Kristín Daníelsdóttir rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís. Ljósm af vef
Reykhólahrepps
Á sunnudaginn voru félagar í Björg-
unarfélagi Akraness að gera búnað og
tæki klár fyrir útköll næsturinnar og
næsta dags. Hér eru nokkrir að yfirfara
strappa, nauðsynlegan búnað til
grípa til ef hefta þarf fok á tækjum og
mannvirkjum. Ljósm. mm.
Óveðrið olli minni usla en óttast hafði verið
Strompur með áföstum gervihnattadisk féll á þessu húsi við Heiðargerði á Akra-
nesi. Steyptur strompurinn olli tjóni á þaki hússins. Ljósm. vaks.
Ekki virðist sem óveðrið hafi valdið miklum usla í Grundarfirði. Rólegt var hjá
björgunarsveitinni Klakki á meðan lægðin mjakaðist yfir landið. Heimaskipin
voru í höfn og biðu af sér versta veðrið áður en þau héldu til veiða á ný. Ljósm. tfk.
Færð og veður á vegum var með ýmsu móti síðastliðinn mánudagsmorgun.
Póstbíll, sem ekur með póst á Snæfellsnes, fór út af veginum áleiðis á Vatnaleið
á níunda tímanum um morguninn eftir að hafa lent í krapa. Ökumaðurinn fékk
fljótlega aðstoð hjá BB & Sonum í Stykkishólmi og tafðist því stutt á ferð sinni með
póstinn. Ljósm. þa.
Guðni Haraldsson og Júlíus Már Þórarinsson, félagar í Björgunarfélagi Akraness,
voru á sunnudaginn að gera Talibanann kláran í útköll næturinnar. Ekkert óveður
haggar þessum brynvarða Unimoc árg. 1986. Ljósm. mm.