Skessuhorn - 16.02.2022, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 20226
Lenti út af í halla
HVALFJ.SVEIT: Rétt eft
ir kvöldmatarleytið á mánu
daginn var hringt í Neyðar
línuna þar sem ökumaður
óskaði eftir aðstoð á Hval
fjarðarvegi við Þyril. Hafði
hann lent út af sjávarmegin í
miklum halla og óttaðist að
bifreiðin gæti oltið. Lögregla
fór á staðinn og björgunar
sveitarbíll frá Akranesi til að
stoðar. Allt fór vel og engin
slys urðu á fólki. -vaks
Tekinn undir
áhrifum
AKRANES: Síðasta föstu
dag var ökumaður bifreiðar
stöðvaður við almennt eftir
lit og viðurkenndi við nánari
skoðun neyslu fíkniefna. Fór
hann í fíkniefnapróf þar sem
fram kom jákvæð svörun og
var hann því handtekinn og
færður á lögreglustöðina. Mál
ökumannsins fer í hefðbundið
ferli en hann á von á kæru fyrir
að keyra undir áhrifum fíkni
efna og lyfja. -vaks
Ók í snjóskafl
NORÐURÁRD: Fimmtu
daginn síðasta var hringt í
Neyðarlínuna um kvöldmatar
leytið og tilkynnt um öku
mann sem sæti fastur í snjó á
Vesturlandsvegi við Norðurá
og væri líklega undir áhrifum
efna. Lögreglan fór á staðinn
og mætti bílnum sem búið var
að bjarga úr snjóskaflinum.
Ökumaðurinn er grunaður
um að hafa verið að aka und
ir áhrifum fíkniefna og fór mál
hans í hefðbundið ferli. -vaks
Kalt í heita
pottinum
SNÆFELLSNES: Síðasta
föstudagskvöld var hringt í
Neyðarlínuna frá Arnarstapa
þar sem erlendir ferðamenn
höfðu læst sig úti á palli í bú
stað eftir að hafa skellt sér í
heita pottinn. Haft var sam
band við aðila á staðnum og
kom fólk til aðstoðar sem end
aði þó með því að brjóta þurfti
rúðu til að komast inn í bú
staðinn. -vaks
Keyrði upp
á vegrið
DALABYGGÐ: Á laugar
daginn rétt eftir hádegi missti
ökumaður stjórn á bíl sín
um í snjóskafli á Vestfjarða
vegi með þeim afleiðingum
að hann ók upp á skaflinn og
á vegrið. Sat bifreiðin föst þar
og kom dráttarbílaþjónusta
frá Búðardal á staðinn til að
fjarlægja bílinn af vettvangi.
Bifreiðin og vegriðið vi rtust
óskemmd og ökumaðurinn
slapp ómeiddur.
-vaks
Sakavottorð
afgreidd sam-
stundis
LANDIÐ: Allir lands
menn geta nú sótt sér staf
rænt sakavottorð á vef sýslu
manna á island.is/syslumenn.
Með rafrænum skilríkjum
geta landsmenn sótt stafrænt
sakavottorð óháð stöðu í saka
skrá. Áður var þessi þjónusta
einungis í boði ef sækja þurfti
einfalt eða hreint sakavott
orð. Umsóknarferlið er tengt
nýju greiðslukerfi Ísland.is og
er vottorðið afhent jafnharð
an í lokaskrefi umsóknarinn
ar. Vottorðið verður jafnframt
aðgengilegt í stafrænu póst
hólfi einstaklinga á Mínum
síðum á Ísland.is. -mm
Fellaskjól lokað
fyrir gestum
GRUNDARFJ: Dvalar og
hjúkrunarheimilinu Fella
skjóli í Grundarfirði hefur nú
verið lokað fyrir gestum vegna
fjölda smita í samfélaginu.
Á Facebook síðu heimilisins
kemur fram að ástandið verð
ur metið að nýju í næstu viku.
-arg
Gengið hefur verið frá samningi við
Jónas Guðmundsson ehf. á Bjart
eyjarsandi um lagningu hitaveitu
að Heiðarskólasvæðinu og í Leirár
sveit, en frá þessu var greint á vef
Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða
lögn sem liggur frá tengingu inn á
lögn Veitna ohf. við Beitistaði það
an sem hitaveita verður lögð að
þeim bæjum í Leirársveit sem ósk
að hafa eftir tengingu og ekki hafa
haft aðgengi að hitaveitu fram að
þessu. Framkvæmdir munu hefjast
14. febrúar og eru áætluð verklok
16. júní í sumar.
Það var á haustmánuðum 2020
sem sveitarfélagið óskaði eft
ir tengingu við lögn Veitna í landi
Beitistaða fyrir hitaveitu að Heiðar
skóla og frumathugun verkefnis
ins hófst. Fram til vorsins 2021
var unnið að samanburðargrein
ingu á hagkvæmni hitaveitukosta
ásamt viðræðum við Veitur ohf. og
Hitaveitufélag Hvalfjarðar sf. um
möguleg kjör við kaup á heitu vatni
úr stofnæðum félaganna. Í mars
2021 samþykkti sveitarstjórn Hval
fjarðarsveitar að ganga til samninga
við Veitur ohf. Í beinu framhaldi
var leitað eftir tilboðum í verkefnis
stjórn, hönnun og aðra umsýslu
með verkefninu. Ritað var undir
þann verksamning 14. maí 2021 og
í júlí sama ár var gerð verðkönnun
á jarðvinnu fyrir verkið sem lá fyr
ir í byrjun ágúst 2021. Í október
síðastliðnum var ritað undir samn
ing við Veitur ohf. um heildsölu á
heitu vatni og í kjölfar þess hófst
vinna við gerð samninga við land
eigendur á lagnaleiðinni ásamt um
sóknum um tengingar við veituna.
Samningar voru frágengnir rétt fyr
ir síðustu áramót og í beinu fram
haldi hefur nú verið ritað undir
verksamning vegna jarðvegsfram
kvæmda og hitaveitulagna. vaks
Við undirskrift samningsins, frá vinstri: Hlynur Sigurdórsson, Linda Björk Pálsdóttir, Guðbjörg Jónasdóttir og Jónas Guð-
mundsson. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Samningur um lagningu
hitaveitu í Hvalfjarðarsveit
Næstkomandi laugardag ganga
íbúar tveggja sveitarfélaga á Snæ
fellsnesi til kosninga um samein
ingu þeirra, þ.e. Snæfellsbæjar og
Eyja og Miklaholtshrepps. Tölu
verðrar eftirvæntingar gætir um
niðurstöðuna. Á kjörskrá í Snæ
fellsbæ eru 1.174 og í Eyja og
Miklaholtshreppi 83. Íbúar í Eyja
og Miklaholtshreppi kjósa í íþrótta
sal Laugargerðisskóla en kjörstað
ir verða þrír í Snæfellsbæ. Á öll
um stöðum er kosið frá klukkan 10
til 18. Í Snæfellsbæ verður kosið í
grunnskólahúsunum í Ólafsvík, á
Hellissandi og á Lýsuhóli. Rétt til
að kjósa hafa allir 18 ára og eldri
sem eru á kjörskrá í viðkomandi
sveitarfélagi.
Talning atkvæða fer fram á
laugardagskvöldið, annars vegar
í íþróttahúsi Laugargerðisskóla
og hins vegar í Grunnskólanum í
Ólafsvík og hefst eftir að kjörstöð
um hefur verið lokað og búið að
stemma af kjörgögn. Verða atkvæði
talin og úrslit birt í hvoru sveitarfé
lagi fyrir sig og á vefnum snaefell
ingar.is síðar á laugardagskvöldið.
mm
Kosið um sameiningu á laugardaginn