Skessuhorn


Skessuhorn - 16.02.2022, Side 10

Skessuhorn - 16.02.2022, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 202210 Á fundi Bæjarráðs Akraness á mánudaginn var samþykkt að gera leigusamning við Línuvélar ehf. um húsnæði fyrir Fjöliðjuna að Smiðju­ völlum 28. Samningurinn verð­ ur til þriggja ára, vegna tímabilsins 1. maí 2022 til og með 28. febrú­ ar 2025. Var bæjarstjóra falin frek­ ari úrvinnslu málsins og undirritun samnings. Fjöliðjan hefur verið með starf­ semi sína í leiguhúsnæði hjá Tré­ smiðjunni Akri frá því í maí árið 2019 eftir að eldur kom upp í hús­ næði Fjöliðjunnar við Dalbraut 10. vaks Það var frekar kuldalegt um að lítast þegar Kap II VE lagðist að bryggju í Grundarfirði fimmtudagskvöldið 10. febrúar eftir róður. Skipverjar gengu vasklega til verks þegar bát­ urinn hafði lagst að og tryggðu all­ ar landfestar, en Kap hefur landað tæplega 176 tonnum það sem af er febrúar mánuði. tfk Akraneskaupstaður leitar nú að­ stoðar íbúa með að velja gatnaheiti á Sementsreitnum og er um að ræða fimm gatnaheiti en kosningin er í tveimur liðum. Annars vegar er kosið um gatnaheiti á götu sem á mynd er titluð Gata A og svo hins vegar er kosið um gatnaheiti á hin­ um fjórum götunum saman en þar er kosið um þemu. Tillögur að gatnaheitum fyr­ ir götu A eru alls sjö: Ástarbraut, Baldursbraut, Sementsbraut, Sjáv­ arbraut, Sjávarbryggja, Skerjabraut og Stórabryggja. Tillögur um þemu að gatnaheit­ um fyrir götur B, C, D og E eru fimm og eru eftirfarandi: Fyrsta tillagan vísar í kennileiti um fjöru­ gerðir við Akranes; Klettaströnd, Leiruströnd, Sandströnd og Skelja­ strönd. Önnur tillagan er vísun í bakka; Faxabakki, Langibakki, Sandabakki og Smiðjubakki. Sú þriðja er vísun í bryggju sem byggð er við sjó; Bátabryggja, Litla­ bryggja, Sementsbryggja og Skútu­ bryggja. Fjórða er vísun í sjó; Sjáv­ aralda, Sjávarblær, Sjávarströnd og Sjávarsýn. Fimmta og síðasta til­ lagan er vísun í eldri götunöfn á Akranesi; Freyjugata, Óðinsgata, Skímisgata og Sleipnisgata. Hægt er að kjósa um tillögurn­ ar á vef Akraneskaupstaðar; akra­ nes.is. vaks Þrjú snjóflóð hafa fallið á veginn um Skarðsströnd í Dölum á viku­ tíma. Tvö snjóflóð féllu þar í byrj­ un síðustu viku og það þriðja féll á mánudagskvöldið og lokaði vegin­ um. Vegurinn um Skarðsströnd var þá lokaður beggja vegna þar sem tveggja metra þykkur skafl lokaði veginum um Klofningsskarð. Sæmundur Kristjánsson hjá Vegagerðinni gat ekki sagt til um stærð flóðsins þegar Skessuhorn heyrði í honum í gær en stærsta flóðið sem búið var að mæla í vet­ ur var á um 80 metra lengdarkafla á veginum og 1,5 metrar á þykkt yfir vegi. Þá segir hann alls ekki ólíklegt að fleiri flóð muni falla á svæðinu á næstu vikum. „Þetta er snjóflóða­ svæði og það eru miklar hengjur þarna sem eiga eftir að koma nið­ ur,“ segir hann. Aðspurður segist hann ekki vita til þess að fólk hafi farið sér að voða í flóðinu á mánu­ daginn. „Íbúar á þessu svæði vita allir af hættunni og haga held ég ferðum sínum eftir því. Það er líka jákvætt að það er ekki skólaakstur á þessum slóðum,“ segir hann. arg Snjóþekja, stórhríð og lokað, voru orðin sem Vegagerðin not­ aði á mánudagsmorgun til að lýsa ástandinu á vegum suðvestanlands. Kjalarnesið var meðal þeirra stofn­ vega sem voru lokaðir, sömuleiðis Hellisheiði og fleiri vegir á Suður­ landi og Reykjanesi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni um morgun­ inn sagði að um allt suðvestanvert landið yrði mjög svo krefjandi að­ stæður fyrir vegfarendur. Þegar leið á daginn var gul viðvörun þegar herti vind, sneri sér til suðausturs með ofankomu, skafrenningi og ófærð. Þá var ófært um stofnvegi, eins og Kjalarnes og við Hafnar­ fjall. Töluvert hafði snjóað á Vestur­ landi aðfarnótt mánudags og þung­ fært var í þéttbýli. Í fyrsta skipti í nokkur ár varð illfært í íbúðagötum innanbæjar á Akranesi, en fljótlega var búið að ryðja snjó af stofngöt­ um. Meðfylgjandi mynd var tekin á Jaðarsbraut að morgni dags. mm Mynd tekin í gær undir Nýpurhyrnu á Skarðsströnd. Ljósm. Halla Sigríður Steinólfsdóttir. Snjóflóð féllu á Skarðsströnd Kosið um ný gatnaheiti á Sementsreit Horft yfir svæðið sem um ræðir. Ljósm. mm. Kort sem vísað er til í fréttinni. Húsnæðið að Smiðjuvöllum 28 er nýlega standsett að innan sem utan. Ljósm. vaks Fjöliðjan flytur tímabundið í nýtt húsnæði Ófærð á stofnvegum og þæfingur í þéttbýli Skipverjar á Kap II VE-7 voru kuldalegir á að líta þegar þeir komu í land þetta fimmtudagskvöld. Kap II leggur að

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.