Skessuhorn


Skessuhorn - 16.02.2022, Page 16

Skessuhorn - 16.02.2022, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 202216 Guðríður Ringsted eða „Mystic Manta“ gaf út sína fyrstu sóló plötu 30. janúar síðastliðinn. Guðríður, eða Dúdda eins og flestir kalla hana, starfar sem hjúkrunarfræðing­ ur á Brákarhlíð í Borgar nesi en á að baki áhugaverðan tónlistarferil með Worm Is Green þar sem hún var söngkona hljómsveitarinnar og fór meðal annars í tónleikaferðalög um Bandaríkin og Kína. Fyrir rúm­ um tveimur árum byrjaði Dúdda að semja sitt eigið efni undir lista­ mannanafninu „Mystic Manta“ með það að markmiði að gefa út sína fyrstu plötu sem varð svo að veruleika í lok janúar síðastliðinn. Platan heitir No Room for Blame or Shame og er aðgengileg á öllum helstu streymis veitum. Stutt í hljóðfærin á bernskuheimilinu „Ég hef verið umvafin tónlist allt mitt líf. Pabbi minn Gunnar Ring­ sted er tónlistarmaður. Hann og mamma mín, Jenný Lind Egils­ dóttir, hlustuðu mikið á allskonar tónlist, allt frá ljúfum tónum Bach, upp í krassandi gítarsóló Sant­ ana. Það voru alltaf hljóðfæri ná­ lægt á bernskuheimili mínu,“ seg­ ir Dúdda um æskuminningar sínar. „Ég söng mikið sem barn og pabbi spilaði undir og tók stundum upp. Ég á til dæmis gamlar upptökur á kassettu þar sem ég er að syngja frumsamin lög, þriggja, fjögurra og fimm ára gömul,“ bætir hún við. En þegar Dúdda varð unglingur þá fór hún að þróa og tileinka sér sinn eigin tónlistarsmekk. „Ég man eft­ ir fyrstu kassettunni minni sem ég hlustaði óspart á með vasadiskóinu mínu, það var Roxette, Look Sharp! Ég man líka þegar ég keypti fyrstu vinyl plöturnar mínar í sportvöru­ deild Kaupfélags Borgfirðinga en það voru Todmobile og Risaeðlan. Nirvana Nevermind og Prodigy Experience voru hins vegar með fyrstu geisladiskunum sem ég eign­ aðist.“ Worm Is Green Á framhaldsskólaárunum þróað­ ist Dúdda meira út í rafræna tónlist og trip­hop, henni fannst það fram­ andi, heillandi og spennandi. „Ég hlustaði mikið á Björk, Portishead, Massive Attack og í gegnum skóla­ félaga mína kynntist ég drum´n bass heiminum, Roni Size var þar í uppáhaldi. Þessir skólafélagar urðu líka bestu vinir mínir og með þeim varð hljómsveitin Worm Is Green til,“ rifjar Dúdda upp. Þetta voru fjórir Skagastrák­ ar sem voru með henni í Worm Is Green; þeir Árni Teitur Ásgeirs­ son, Vilberg H. Jónsson, Þor­ steinn Hannesson og Bjarni Hann­ esson. „Við upplifðum nokkur ár með miklum ævintýrum og svaka tónleikaferðum um heiminn með Worm Is Green. Á þessum árum var ég líka að streða við að klára há­ skólanám. Ég þurfti að fresta nám­ inu mínu á ákveðnum tímapunkti um ár vegna tækifæra í boði Worm Is Green en það voru tvær stórar tónleikaferðir um Bandaríkin. Ég vissi að þessi tækifæri myndu ekki bjóðast á hverjum degi en það væri alltaf hægt að fara í skóla seinna. Ég lét því til leiðast og ferðaðist víða um Bandaríkin í margar vikur. Ég á miklar og skemmtilegar minningar, ljósmyndir og ferðasögu í dagbók út frá þeim ferðalögum. Eftir öll þessi ævintýri útskrifast ég loks sem hjúkrunarfræðingur árið 2008 en þá fór líka að hægjast á ferðalögum og tónleikahaldi. Síðast var farið til Kína árið 2013,“ segir Dúdda um sögu Worm Is Green. Keypti sér fiðlu og fór að semja tónlist Árin hafa liðið hratt og Worm Is Green hefur gefið út þó nokkuð mikið efni í rúmlega 20 ár og má þá helst nefna fimm breiðskífur. „Nú síðustu ár eru það aðallega ég og Árni sem vinnum saman í WIG, hann semur og ég syng. Hann byrj­ aði hins vegar að pressa á mig fyr­ ir nokkrum árum að gera mína eig­ in músík. Ég hafði alltaf eingöngu verið söngkona í Worm Is Green, ekki laga­ eða textahöfundur. Ég hélt hreinlega að ég kynni það ekki og reyndi það þess vegna ekki,“ segir Dúdda hreinskilin. Eftir að Árni fór að ýta nokkrum sinnum á Dúddu um að búa til sína eigin tónlist, þá fór hún að semja laglínur á píanó, skrifaði nótur og hljóma í litla stílabók af og til en gerði lítið meira en það. „Ég keypti mér síðan ódýra fiðlu á netinu og fór að rifja upp gamla takta þar en ég lærði á fiðlu í Tón­ listarskóla Borgarfjarðar í níunda og tíunda bekk. Eldri sonur minn, Hörður Gunnar, sem er næstum jafn gamall og hljómsveitin Worm Is Green, hafði í nokkur ár verið að leika sér með tónlistarforritið Fruity Loops. Hann var líka alltaf að reyna að kenna mér á það og var ég farin að geta samið lagabúta í því forriti. Hörður Gunnar hefur líka samið mikið efni sjálfur og er nú í hljómsveitinni E.C. Þeir hafa gefið út nokkur lög sem finnast á helstu streymisveitum eins og Spotify og eru, þó ég segi sjálf frá, mjög góð. Þar eiga þeir til dæmis lagið Free sem hefur fengið mikla spilun en það væri nú kannski efni í aðra blaðagrein,“ segir hún létt í lund. Fékk upptökugræjur í jólagjöf Það var síðan jólin 2020 sem að maðurinn hennar Dúddu, Gunnar Halldórsson, gaf henni nýjar upp­ tökugræjur að boltinn fór að rúlla almennilega. „Ég byrjaði að semja fullt af nýjum lögum og klára göm­ ul demo úr stílabókinni minni í byrjun janúar 2021. Ég setti fram það markmið að gefa út mína eigin plötu á árinu, allavega byrja á einu eða tveimur lögum. Ég gaf því út þrjár smáskífur árið 2021 og samdi mörg demo á árinu. Nú í byrjun janúar 2022 er loksins komin til­ búin breiðskífa en Árni vinur minn hjálpaði mér mikið með að mastera og mixa öll lögin. Hún ber titilinn „No Room for Blame or Shame“. Lögin fjalla mikið um tilfinningar og bara lífið almennt,“ segir hún um fyrstu sóló plötuna sína. Dúdda er í fullu starfi sem hjúkr­ unarfræðingur í Brákarhlíð með­ fram tónlistinni og það hefur al­ veg litað hennar sköpun. „Sérstak­ lega hafa undanfarin tvö ár ver­ ið krefjandi og lærdómsrík. Ég sæki líka mikið í sköpunarkraftinn í náttúrunni og stundum í gegn­ um draumana mína. Það má líka segja að þessi plata sé ákveðið upp­ gjör við fortíðina en verandi orðin „miðaldra“ þá er það ákveðinn tímapunktur þar sem maður lítur yfir farinn veg. Ég horfi hins vegar spennt fram í tímann, tilbúin að skapa og semja meira. Tónlistin nærir sál mína og ég tel það vera mjög mikilvægt að allir hafi eitt­ hvað til að næra sig á heilbrigð­ an hátt. Hvort sem það er tón­ list, náttúran, hreyfing eða bara að prjóna peysu. Sama hvað, bara að það haldi manni í ákveðnu heilbrigðu jafnvægi til að takast á við lífið almennt,“ segir Dúdda að endingu. Hægt er að hlusta á tónlistina hennar Dúdda undir listanafninu Mystic Manta á öllum helstu streymisveitum eins og til dæmis Spotify. glh Dúdda á sviði í Shanghai, Kína 2013 með hljómsveit sinni Worm Is Green. Ljósm. Bing Wen. „Ég hef verið umvafin tónlist allt mitt líf“ –rætt við tónlistarkonuna Guðríði Ringsted sem nýlega gaf út sína fyrstu sóló plötu Guðríður Ringsted er Mystic Manta. Plötuumslag „No Room for Blame or Shame“.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.