Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á fy rir va ra .Tenerife sl ík u. . tá n f 20. apríl í 14 nætur Ævintýraeyjan 595 1000 www.heimsferdir.is Flug & hótel frá 98.000 14 nætur Verð frá kr. 119.900 Fermingartilboð ÍSLENSK HÖNNUN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Ég skora á ríkisstjórnina að skýla sér ekki á bak við einhverjar fyrning- arreglur. Þau eiga að taka ábyrgð á þessum verknaði og gera að fullu upp við þá sem hafa síðan 2009 þurft að draga fram lífið á upphæðum sem ná ekki einu sinni lágmarksframfærslu- viðmiðum, sem eru lögbundin,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for- maður Öryrkjabandalags Íslands. Óheimilt er að skerða sérstaka framfærsluuppbót á þeim forsendum að bótaþegi hafi búið hluta starfsævi sinnar erlendis. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar í máli öryrkja gegn Tryggingastofnun. Málið gæti kostað ríkið nokkra milljarða og svo í fram- haldinu árlega hundruð milljóna. Hæstiréttur staðfesti í gær niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi í síðasta mánuði dóm í máli konu gegn Tryggingastofnun ríkisins vegna þeirrar framkvæmdar stofnun- arinnar. Konan hefur verið metin með há- marksörorku (75%) frá 1. mars 2011. Hún er íslenskur ríkisborgari, fædd og uppalin hér á landi en bjó tíma- bundið í Danmörku. Í samræmi við lög um almannatryggingar á fólk rétt á fullum bótum hafi það búið 40 ár á Íslandi milli 16 og 67 ára aldurs, en hafi það búið styttra fær það bætur í hlutfalli við búsetutímann. Fær konan því 78,5% af fullum örorkulífeyri á Ís- landi. anton@mbl.is Óheimilt að skerða framfærsluuppbót - Mikill kostnaður fyrir ríkissjóð Reykjavíkurskákmótið var sett í Hörpu í gær. Alls eru 270 keppendur á mótinu og þar af 24 stórmeistarar. Po- uya Idani frá Íran er stigahæstur (2.638) og hér leikur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fyrsta leik mótsins. Morgunblaðið/Eggert Kviku Reykjavíkurskákmótið 2022 hafið Matvælaráðuneytið vinnur að því að útvega aðstöðu svo hægt verði að setja gæludýr flóttafólks frá Úkra- ínu í einangrun eftir komu til lands- ins. Reiknað er með að málið verði leyst á næstu dögum. Að sögn ráðu- neytisins mun ríkið væntanlega standa straum af kostnaði við ein- angrunina líkt og aðra aðstoð við flóttafólkið. Matvælaráðherra ákvað að veita undanþágu frá gildandi banni við innflutningi gæludýra frá Úkraínu að uppfylltum skilyrðum, svo fólk geti haft gæludýrin með sér. „Það þarf sér einangrunaraðstöðu fyrir þessi dýr,“ segir Hrund Hólm, dýralæknir og deildarstjóri hjá Mat- vælastofnun (MAST). Ástæðan er sú að dýr frá Úkraínu hafa ekki farið í gegn um sama undirbúningsferli og almennt gildir um dýr sem flutt eru inn. Rætt hefur verið við tvær ein- angrunarstöðvar fyrir dýr sem eru í rekstri, önnur í Höfnum og hin rétt hjá Hellu. Þetta mun kalla á lengri einangr- un dýranna en venjulega gildir um dýrainnflutning. Hundaæði fyrir- finnst í Úkraínu. Þurfi að bólusetja við því er gerð mótefnamæling mán- uði seinna til að skoða hvort bólu- setning tókst. Þá tekur við bið því meðgöngutími hundaæðis getur ver- ið margar vikur. Sömu reglur gilda hér og í löndum ESB varðandi inn- flutning frá þriðju ríkjum sem ekki eru á lista og þar sem hundaæði er til staðar. Einnig eru hér viðhafðar miklar varnir gegn því að dýrasjúk- dómar og ýmis sníkjudýr berist til landsins. Tiltölulega lítið er um dýra- sjúkdóma hér á landi. MAST hefur fengið töluvert af fyrirspurnum um innflutning hunda og katta frá Úkraínu og þær hafa verið skráðar niður. Hrund segir að um leið og málin skýrast verði haft samband við fyrirspyrjendur. Oft er um að ræða fólk hér á landi sem er að aðstoða flóttafólk sem er að undir- búa komu sína. Eins hafa komið fyr- irspurnir frá samtökum og sendiráð- um. MAST hefur ekki upplýsingar um fjölda dýranna. gudni@mbl.is Koma gæludýra frá Úkraínu undirbúin - Þurfa allt að fjögurra mánaða einangrun vegna aðstæðna Morgunblaðið/Eggert Gæludýr Spurt hefur verið um innflutning hunda og katta frá Úkraínu. Dýrin fara í einangrun við komu til landsins. Mynd tekin í Kattholti. Emil Hilmarsson tölvunarfræð- ingur hefur verið ráðinn í nýtt starf forstöðu- manns upplýs- ingatæknisviðs hjá Árvakri. Hann starfaði áð- ur sem deild- arstjóri upplýs- ingatæknideildar Norðuráls. Undir upplýsingatæknisvið heyra netdeild og tæknideild sem sinna öllu því sem snýr að bæði hugbúnaði og tölvubúnaði fyrir- tækisins. Miklar breytingar hafa orðið í upplýsingatækni hjá fjöl- miðlum á liðnum árum og fram undan eru sömuleiðis breytingar á þessu sviði. Ráðning öflugs stjórn- anda til að leiða nýtt upplýsinga- tæknisvið er liður í frekari sókn Árvakurs á þessum vettvangi. Nýr forstöðumaður upplýsingatækni Emil Hilmarsson Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefur brugðist við beiðni félagsmála- ráðuneytisins og aflað húsnæði sem dugir fyrir um þúsund hælisleitendur að hverju sinni. Stendur fólkinu til boða að dvelja þar í mislangan tíma, allt frá tveimur vikum og upp í ein- hverja mánuði. Eignirnar sem um ræðir eru stað- settar á suðvesturhorni landsins. Eru 70% þeirra ætlaðar til fyrstu dvalar en 30% þeirra eru ætlaðar sem úr- ræði sem duga í þann tíma sem líður frá því að hælisleitandi hefur fengið landvistarleyfi og fer úr umsjá Út- lendingastofnunar, þar til sveit- arfélög geta tekið við fólkinu. Unnið er að því að afla húsnæðis víðar um landið og hafa yfir 20 aðilar boðið fram aðstoð sína við það, að því er fram kemur í tilkynningu FSRE. Þar segir einnig að engin leiga verði innheimt fyrir hluta þess hús- næðis sem stendur til boða, eða því sem nemur gistiplássi fyrir ríflega 600 manns. Ríflega 600 komið frá Úkraínu Frá ársbyrjun hafa 1.020 ein- staklingar sótt hér um alþjóðlega vernd, þar af eru 624 með tengsl við Úkraínu sem hafa komið hingað frá því að stríðið hófst. Þeir samningar sem eru í gildi núna kveða á um pláss fyrir tvö þús- und einstaklinga á öllum þremur stig- um dvalar flóttamannanna. Enn gæti þó verið þörf fyrir meira húsnæði. Í samtali við mbl.is á þriðjudaginn sagði Guðmundur Ingi Guðbrands- son, félags- og vinnumarkaðs- ráðherra húsnæðisþörf vegna mót- töku flóttamanna frá Úkraínu vera mikla hér á landi. hmr@mbl.is Húsnæði fyrir 1.000 flóttamenn - 600 þurfa ekki að greiða leigu Morgunblaðið/Eggert Börn Ríflega 600 frá Úkraínu hafa sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.