Morgunblaðið - 07.04.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
Athyglisverðar umræður um
skerðingar á þjónustu Strætó
áttu sér stað í skipulags- og sam-
gönguráði Reykjavíkurborgar í gær.
Fulltrúar systurflokkanna Viðreisnar,
Samfylkingar og Pí-
rata lögðu fram bók-
un og sögðu „miður
að sjá tímabunda nið-
urfellingu á síðustu
ferðum Strætó“ en
tókst svo í bókuninni
að kenna kór-
ónuveirunni og rík-
inu um að dregið hafi
verið úr þjónustunni!
- - -
Þá bættu syst-
urflokkarnir því
við að þeir fögnuðu
því hins vegar að
framkvæmdir við borgarlínu væru að
hefjast og þökkuðu Strætó fyrir und-
irbúning þeirra framkvæmda.
- - -
Fulltúar Sjálfstæðisflokksins í
ráðinu bentu á að það lýsti upp-
gjöf að leggja til svo miklar skerð-
ingar á leiðarkerfi Strætó og bættu
því við að þessar skerðingar væru
„vegna kostnaðar við borgarlínu“. Þá
bentu þeir á að verri þjónusta og
hringl í leiðarkerfi, auk tilfærslu á
stoppistöðvum, yrði til þess að færri
tækju Strætó.
- - -
Með miklum ólíkindum er að
borgarfulltrúar meirihlutans
skuli bera það á borð fyrir borgarbúa
að óhjákvæmilegt sé að skerða þjón-
ustu Strætó til að spara um 200 millj-
ónir króna þegar ekki eru liðnir tveir
mánuðir frá því að sama fólk ákvað að
kaupa hús í Vogunum fyrir hálfan
milljarð króna og rífa til að greiða leið
ímyndaðrar borgarlínu.
- - -
Og það er auðvitað mjög sérstakt
að borgarlínan sé þegar farin að
skaða almenningssamgöngur í borg-
inni þó að hún sé ekki komin af teikni-
borðinu.
Pawel Bartoszek
Rífa 500 milljónir
og spara 200
STAKSTEINAR
Hjálmar
Sveinsson
Rannsóknanefnd samgönguslysa,
siglingasvið, bendir á mikilvægi þess
að útgerð og skipstjórar gefi ekki af-
slátt á notkun persónulegs öryggis-
búnaðar.
Í nýlegu áliti nefndarinnar segir
að slíkur búnaður hefði að líkindum
dregið úr alvarleika atviks er flot-
kúla féll í höfuð sjómanns, sem ekki
var með öryggishjálm.
Tildrög slyssins voru þau að Silf-
urborg SU 22 var á dragnótarveiðum
á Austfjarðamiðum í byrjun septem-
ber í fyrra. Skipverjar voru búnir að
taka nótina inn og hreinsa úr henni
aflann. Þegar skipverjarnir voru að
leggja niður nótina féll ein flotkúlan
á henni í höfuðið á einum skipverj-
anum sem fékk skurð á höfuðið. Siglt
var með hinn slasaða í land.
Fyrirmæli hunsuð
Við rannsókn kom m.a. fram að
hinn slasaði var ekki lögskráður á
skipið. Í lokaskýrslu er haft eftir
skipstjóra að fyrirmæli hans til
áhafnar um að nota öryggishjálma
hafi ítrekað verið hunsuð.
Haft er eftir sjómanninum sem
slasaðist að honum hafi í upphafi
ráðningar verið bent á öryggis-
hjálma og staðsetningu þeirra en
þeir hafi að jafnaði ekki verið not-
aðir.
Gefi ekki afslátt á öryggisbúnaði
- Fékk flotkúlu í höfuðið og slasaðist
- Misbrestur á notkun öryggishjálma
Morgunblaðið/Frikki
Öryggi Hjálmar geta dregið úr al-
varleika slysa á vinnusvæðum.
Engar vísbendingar eru um að eld-
ur um borð í Erling KE 140 um ára-
mótin hafi kviknað með saknæmum
hætti, segir í nefndaráliti siglinga-
sviðs Rannsóknanefndar sam-
gönguslysa. Nefndin telur að upp-
tök eldsins hafi verið í eða við
hleðslu AIS-staðsetningarbúnaðar í
afturhorni setustofu bátsins, sem lá
við landfestar í Njarðvíkurhöfn.
Mikið tjón varð um borð í skipinu.
Ýmis rafbúnaður
Undir borðinu í setustofunni var
AIS-staðsetningarbúnaður fyrir
netabaujur í hleðslu, rafmagnsdrif-
inn flugnabani var festur upp fyrir
ofan borðið og útvarpstæki var á
hillu þar fyrir ofan. Búnaðurinn
hafði verið í sambandi við rafmagn.
Staðsetningarbúnaðurinn var
tengdur í tvö fjöltengi með slökkvi-
rofum. Tíu hleðslustæði fyrir tækin
voru undir borðinu og staðsetning-
artæki voru í þeim öllum en ekki lá
fyrir hvað mörg þeirra voru í sam-
bandi við fjöltengin.
Fjórir skipverjar voru við vinnu
við skipið milli jóla og nýárs við að
undirbúa það
til veiða og
höfðu yfir-
gefið skipið
síðdegis
fimmtudaginn
30. desember.
Erling KE
hafði ekki ver-
ið á veiðum
síðan í apríl
2021, en hefja
átti netaveið-
ar í byrjun
janúar 2022.
Þegar skip-
verjar mættu
til skips að
morgni 2. jan-
úar var
brunaviðvör-
unarkerfið í
gangi og í ljós
kom að eldur hafði komið upp í setu-
stofu áhafnar. Miklar skemmdir
voru á henni eftir eldinn og sót út
um allar íbúðir. Íbúðirnar höfðu
verið lokaðar og eldurinn að lík-
indum kafnað sökum súrefn-
isskorts.
„Nefndin telur að til að auka ör-
yggi skipverja eigi ekki að vera með
búnað sem tilheyrir veiðarfærum í
hleðslu inni í vistaverum,“ segir í
sérstakri ábendingu.
Engar vísbendingar
um saknæmt athæfi
- Upptök elds um
borð í Erling KE í
eða við hleðslubúnað
Netabauja Stað-
setningarbúnaður
með hleðslutæki.
Ljósmynd/RNSA
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15