Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tillögur verkefnisstjórnar 3. áfanga
áætlunar um vernd og orkunýtingu
landsvæða, svokölluð rammaáætlun,
sem nú er umfjöllunar í umhverfis- og
samgöngunefnd Alþingis, er komin til
ára sinna. Tæp sex ár eru liðin frá því
verkefnisstjórnin afhenti ráðherra til-
lögurnar en stjórnmálin hafa enn
ekki afgreitt málið. Á þessum tíma
hefur margt breyst, ekki síst umræð-
an í loftslagsmálum og þörf fyrir
aukna græna orku hefur aukist ef ná
á markmiðum stjórnvalda. Í því ljósi
kæmi ekki á óvart að áherslurnar
breyttust í umfjöllun Alþingis, svo
ekki yrði búið að útiloka allt of marga
möguleika til öflunar grænnar orku í
framtíðinni.
Núgildandi rammaáætlun, 2.
áfangi, var samþykkt á Alþingi í byrj-
un árs 2013. Síðan hafa tvær verkefn-
isstjórnir starfað og skilað af sér til-
lögum án þess að Alþingi hafi afgreitt
3. áfanga sem skilað var til ráðherra
26. ágúst 2016 og lagt hefur verið fyr-
ir Alþingi í formi þingsályktunar-
tillagna nokkrum sinnum.
Deilt um umfang friðunar
Og nú er verkefnisstjórn 5. áfanga
starfandi, nokkuð í lausu lofti. Vegna
þessarar málsmeðferðar og ýmissa
ágreiningsmála eru eðlilegar þær
spurningar sem hafa vaknað um
hvort þessi aðferðafræði sé sú rétta
til að finna jafnvægi á milli orkunýt-
ingar og náttúruverndar. Ríkis-
stjórnin hyggst endurskoða lögin á
kjörtímabilinu. Meðal ágreinings-
mála sem komið hafa upp er sú aðferð
fyrrverandi umhverfisráðherra að
friða heilu vatnasviðin og stór jarð-
hitasvæði þótt aðeins hafi verið fjallað
um einn virkjanakost á viðkomandi
svæði og hann settur í verndarflokk.
Þessi túlkun rataði inn í tillögu til
þingsályktunar um 3. áfanga ramma-
áætlunar og núverandi umhverfis-
ráðherra fór með þær tillögur
óbreyttar inn í þingið.
Um þetta er efnislegur og laga-
legur ágreiningur. Hvað sem því líður
þá leiðir túlkun fyrrverandi umhverf-
isráðherra til þess að stór vatnasvið
og jarðhitasvæði verða lokuð fyrir
virkjun og friðun landsins gegn orku-
öflun gengur mun hraðar fyrir sig en
vinna að rammaáætlun í raun gerði
ráð fyrir. Sem dæmi má nefna að
verði kostir í 3. áfanga friðlýstir á
sama hátt og gert hefur verið yrði
enginn stór virkjanakostur eftir á
Norðurlandi frá Blönduvirkjun og
austur að Kárahnjúkavirkjun. Þá má
búast við að verulega saxist á hag-
kvæmustu virkjunarkostina.
Hvaðan kemur græna orkan?
Í umsögn Samorku um þingsálykt-
unartillöguna er bent á að áður en
frekari ákvarðanir um slíkar tak-
markanir verði teknar sé nauðsynlegt
að því verði svarað hvaðan hreina
orkan sem eigi að uppfylla þarfir
samfélagsins nú og til framtíðar eigi
að koma.
Bætast þessar friðanir við þá þjóð-
garða og friðlýsingar sem taka nú
þegar til stórs hluta landsins. Líklega
er þessi flokkun óafturkræf, að
minnsta kosti verður ekki auðvelt að
snúa til baka og færa svæðin aftur í
biðflokk eða orkunýtingarflokk eftir
að búið er að friðlýsa þau. Ekki verð-
ur hægt að breyta áformum um virkj-
anir eða koma með nýjar hugmyndir
á þeim svæðum.
Orkufyrirtækin og samtök þeirra
hafa einnig sett fyrirvara við tillög-
urnar sem nú liggja fyrir Alþingi
vegna þess að faghópar um sam-
félagslega þætti og um efnahagsleg
áhrif tillagna hafi ekki lokið vinnu
sinni en lögin kveði skýrt á um að
meta skuli þau áhrif jafnhliða öðrum.
Landsvirkjun segir í sinni umsögn að
vegna þessa vanti mikilvæg gögn til
grundvallar fullnægjandi flokkun
orkukosta.
Nefna má í þessu sambandi að all-
ar stærri virkjanir þurfa að fara í
gegnum mikið leyfisveitingaferli og
að lokum samþykkjast af Alþingi áð-
Forsendur rammans brostnar
- Tæp sex ár eru liðin frá því tillögur að flokkun orkukosta voru unnar og málið er enn óafgreitt
- Umhverfis- og samgöngunefnd mun væntanlega leggja til að orkukostir verði færðir úr vernd í bið
Friðlýst svæði á Íslandi 2022 Þegar friðlýst svæði úr verndarflokki
2. rammaáætlunar
Drjúgur hluti landsins hefur verið friðlýstur eftir átak síðustu ára
Tillaga umverndarflokk í 3. rammaáætlun
kemur til viðbótar þegar friðlýstumorkukostum
Friðlýst svæði byggð á rammaáætlun
2 og 3 ásamt núverandi friðunum
(friðlýst svæði og náttúruminjaskrá)
Friðlýst svæði
Friðlýst svæði
Morgunblaðið/Hari
Hellisheiði Virkjanasvæði taka aðeins til um 0,4% landsins í heild.
VIKUR
Á LISTA
4
1
1
3
2
1
2
1
1
2
HUNDRAÐÓHÖPPHEMINGWAYS
âJµü ߺ ½´uNº·L<
ß¶ü ߺ ½´uNº·L<ý i kº
ásamt öðrum leikröddum
HVARFIÐ
âJµü Ạ¼¶
ß¶ü áLº ½´uNº
HELKUDI
âJµü »s¶¸º ½w¶
ß¶ü ⺺ Þºdº ືL<
F´´ÓRNIN
âJµü ẹ Þ¶º·¶
ß¶ü â ½f ãuNº
LITLA BAKARÍIÐ VIÐ STRANDGÖTU
âJµü á¶q ú´º
ß¶ü äw¶ ¼ºdº úº¶q
NÁHVÍT JÖRÐ
âJµü ߺ ½´uNº·L<
ß¶ü äd ãuº·L<
BARNIÐ SEM HRÓPAÐI Í HLJÓÐI
âJµü áLdº ß¶L·L<
ß¶ü äd ãuº·L<
EPLAMAÐURINN
âJµü û¶ Þ¶<¶ ⺸¸
ß¶ü ½ºº åJ´´ k´¶·L<
VELKOMIN HEIM
âJµü Ý ½¸uº
ß¶ü áLº ½´uNº
DAGBÓKKIDDAKLAUFA -
EKKI Í HERINN
âJµü á¶> à¶q
ß¶ü Ü··u áGdu
1.
2.
3.
4.
7.
8.
6.
10.
9.
5.
-
›
›
›
›
TOPP 10
VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI
VIKA 13
Verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) er
stefna um það hvort landsvæði þar sem er að finna
virkjunarkosti megi nýta til orkuvinnslu eða hvort
ástæða sé til að friðlýsa þau eða kanna frekar. Virkj-
unarkostir eru flokkaðir í orkunýtingarflokk, vernd-
arflokk eða biðflokk og segja heiti flokkanna sína sögu
um hvað verður um kosti sem þar lenda.
Í kynningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyt-
isins segir meðal annars: Markmiðið er að tryggja að
nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti
byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hags-
munamati þar sem tekið er tillit til verndargildis nátt-
úru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arð-
semi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða
þjóðarhag, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Málsmeðferðin er sú að Orkustofnun leggur virkj-
unarkosti sem hún telur nægilega vel skilgreinda fram
til umfjöllunar verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Fag-
hópar fjalla um kostina frá ólíkum sjónarhólum og
meta þá með stigagjöf. Verkefnisstjórn leggur faglegt
mat á málið og gerir tillögur til ráðherra.
Ráðherra leggur tillögu fyrir Alþingi.
Annar áfangi rammaáætlunar var samþykktur á Al-
þingi í byrjun árs 2013. Ætlunin er að slík áætlun sé af-
greidd á fjögurra ára fresti en engin áætlun hefur verið
afgreidd síðan þá. Verkefnisstjórn þriðja áfanga lagði
tillögur fyrir ráðherra í ágúst 2016 og hafa þær fjórum
sinnum verið lagðar fyrir Alþingi í formi þingsálykunar-
tillögu en enn ekki hlotið afgreiðslu. Verkefnisstjórn
fjórða áfanga gerði tillögur sem lagðar voru inn í vinnu
verkefnisstjórnar fimmta áfanga sem tók til starfa á
síðasta ári.
Langtímasjónarmið ráði för
RAMMAÁÆTLUN