Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 27
ur en hægt er að virkja. Því má segja að landsvæðin séu í raun friðuð þang- að til Alþingi ákveður annað. Verði afgreitt fyrir vorið Umhverfis- og samgöngunefnd Al- þingis er langt komin með umfjöllun um þingsályktunartillöguna um þriðju rammaáætlun. Fjöldi umsagna hefur borist og lokið hefur verið við að ræða við gesti sem kallaðir hafa verið fyrir nefndina. „Það hafa farið fram hreinskiptnar umræður í nefnd- inni. Nefndin er að reyna að átta sig á málinu og hvernig skynsamlegt sé að stíga næstu skref,“ segir Vilhjálmur Árnason, formaður nefndarinnar og framsögumaður hennar í þessu máli. Vilhjálmur segir að mörg sjónar- mið hafi komið fram hjá umsagnar- aðilum. Eitt það helsta sé að sú fag- lega ráðgjöf sem felist í tillögum verkefnisstjórnarinnar hafi elst mis- vel á þeim tæpu sex árum sem liðin eru frá því hún var gerð. Að sumu leyti hafi forsendur ráðgjafarinnar brostið. Vilhjálmur segir rétt að halda sig við þá faglegu ráðgjöf sem felst í til- lögunum en máta hana við raunveru- leika dagsins í dag. Í því sambandi vekur hann athygli á því að faghópar 3 og 4 hafi ekki skilað verkefnis- stjórninni fullmótuðu áliti. Því sé ráð- gjöfin ekki fullkomlega fagleg og óvarlegt að setja kosti í verndarflokk sem ekki hafi verið fullunnir. Til við- bótar komi að sú matsvinna sem lokið var fyrir tæpum sex árum hafi elst illa. Meðal atriða sem Vilhjálmur og fleiri nefna að breyti myndinni og taka þurfi tillit til er ný hönnun orku- kosta, ný tækni, nýir orkukostir, hækkun orkuverðs, orkuskortur vegna innrásar Rússa í Úkraínu og viðskiptaþvinganir í kjölfarið og síð- ast en ekki síst þörfin fyrir aukna græna orku vegna loftslagsmark- miða. Vilhjálmur á von á því að nefndin komist að góðri niðurstöðu, án þess að eyðileggja rammaáætlunarkerfið, og afgreiði málið frá sér fljótlega eftir páska. Telur hann að stemning sé fyrir því í þinginu að klára málið í þessari atrennu. Spurður hvort til- lögur verði gerðar um breytingar á flokkun orkukosta segir hann það til umræðu og vísar einnig til stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem slíkum vilja er lýst. Tekur Vilhjálmur fram að röðuninni hafi áður verið breytt í meðförum ráðherra og þings- ins enda geri ferlið ráð fyrir þeim möguleika. Til þess sé aðkoma þings- ins. Vara við hrossakaupum Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar segir að ljúka eigi þriðja áfanga rammaáætlunar og endur- skoða lögin frá grunni. Sérstaklega er tekið fram að fjölga eigi kostum í biðflokki. Engin frekari útfærsla er á því en þetta ákvæði þýðir væntanlega að einhverjir kostir verði færðir úr vernd í bið, kannski á þeim for- sendum að tveir faghópanna hafi ekki lokið umfjöllun sinni. Í umsögn til umhverfis- og sam- göngunefndar kemur fram að Land- vernd telur að tilfærslan verði að byggjast á faglegum rökum en megi ekki snúast um hrossakaup. Segist Landvernd ekki koma auga á nein fagleg rök fyrir því að færa landsvæði úr vernd í biðflokk. Aftur á móti leggja samtökin áherslu á að tilteknir kostir sem tillaga er um að verði í nýtingarflokki færist í biðflokk. Ný sjónarmið og þekking Eins og sést á ummælum for- manns umhverfis- og samgöngu- nefndar átta menn sig á því að for- sendur fyrir ráðgjöf verkefnis- stjórnar 3. rammaáætlunar hafa að sumu leyti brostið. Koma markmið stjórnvalda í loftslagsmálum og þörf- in fyrir aukna græna orku þar mikið við sögu. Stjórn Landverndar segir í sinni umsögn að hafa beri í huga að frá því tillagan var unnin hafi ný sjónarmið og þekking komið fram, þó litið sé til annarra atriða en áður hafa verið nefnd í þessari grein. „Í þessu sam- bandi er sérstaklega mikilvægt að taka tillit til vaxandi áherslu á vernd- un víðerna og stækkunar ferðaþjón- ustunnar sem atvinnugreinar,“ segir stjórnin meðal annars. Morgunblaðið/Rax Þjórsárver Stór hluti hálendisins er þegar friðlýstur en þó er togast á um útfærslu einstaka orkukosta. Þjórsárver njóta sérstakrar verndar. FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 RAFHJÓL MÓTVINDUR? Ekkert mál. Við eigum rafhjólið fyrir þig Faxafen 8 - www.orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.