Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 28

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Við erum stolt fyrirtæki í 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Morgunblaðið/Eggert Borgarbyggð Borgarbyggð er víðfeðmt sveitarfélag og þar eru íbúarnir tæplega fjögur þúsund. Um helm- ingur í Borgarnesi en fjölmargir í dreifbýli og í minni þéttbýliskjörnum á borð við Varmaland, Hvanneyri, Kleppjárnsreyki og Bifröst. BAKSVIÐ Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Þeim finnst of mikil ládeyða yfir pólitíkinni í Borgarbyggð þeim Skúla Guðmundssyni, starfsmanni Steypustöðvarinnar, og Ingimundi Ingimundarsyni, íþróttafrömuði með meiru. Morgunblaðið tók þá tali á ferð sinni um Borgarfjörð í gær. Þeir voru raunar báðir áhugasamir um stofnun nýs framboðs sem bar yfirskriftina „Heimastjórnarflokk- urinn“ en ekkert varð af áformum þess þar sem erfitt reyndist að fá fólk á lista. Skúli segir örðugt að fá fólk til þátttöku í pólitísku starfi. All- ir vilji fá greitt fyrir vinnu sína og hún lendi öll á fárra höndum. Hann kannast vel við það úr starfi körfu- boltadeildar Skallagríms. Ingimundur var formaður lands- mótsnefndar í tengslum við afar fjöl- mennt og glæsilegt landsmót UMFÍ sem haldið var í Borgarnesi 1997. Þá var ráðist í mikla uppbyggingu íþróttamannvirkja en þeir segja að lítið hafi gerst síðan þá. Bæjar- yfirvöld hafa eyrnamerkt mikla pen- inga til uppbyggingar nýs íþrótta- húss en Skúli minnir helst á efasemdamanninn Tómas þegar hann segist ekki trúa þeim fyrir- heitum fyrr en skóflustunga verði tekin að nýju húsi við hlið þess sem nú stendur við Þorsteinsgötu. Ingi- mundur segist fagna fyrirætlun- unum en segist furða sig á að ekki skuli haft samráð við fólk sem hafi komið að uppbyggingunni á fyrri tímum. Hið sama segir Skúli en hann telur skorta mjög á samráð. Ekki sé gert ráð fyrir fulltrúum íþróttadeilda eða Ungmenna- sambands Borgarfjarðar í nefndinni sem fjallar um fyrirhugaða upp- byggingu. Þarf forystu um uppbyggingu Þeir eru báðir hugsi yfir því að Borgarbyggð hefur ekki tekist að laða til sín nýja atvinnustarfsemi og nýja íbúa í sama mæli og sveitar- félög á borð við Árborg. Þegar minnst er á uppbyggingu á Selfossi að undirlagi fjársterkra aðila segir Skúli raunar að sennilega hefði slík- um hugmyndum verið vísað frá, hefðu þær komið upp í Borgarnesi. Ingimundur segir að skortur á póli- tískri forystu kunni einnig að ráða miklu um þróun mála en tækifærin séu þó sannarlega fyrir hendi. Sveit- arfélagið hafi orðið fyrir búsifjum þegar mjólkurbú og sláturhús voru lögð af og Kaupfélag Borgfirðinga missti fyrri styrk á árum áður. Báðir eru þeir ósáttir við hvernig bæjar- yfirvöld og slökkvilið stóðu að því að loka fyrir starfsemi í gamla slátur- húsinu í Brákarey en þar höfðu ýms- ir hópar komið sér upp aðstöðu, allt frá fornbílasafni til púttaðstöðu. Ingimundur segir að þar hafi verið gengið fram með offorsi og vel hefði mátt ganga þannig frá brunavörnum að starfsemin hefði getað haldið áfram. Víða þörf fyrir mikla uppbyggingu - Borgarbyggð hefur ekki tekist að laða til sín fyrirtæki og fólk í nægum mæli - Knýjandi þörf fyrir uppbyggingu íþrótta- og skólamannvirkja - Skortir samráð við fólkið í bænum - Brákarey er hitamál Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Bæjarmálin Skúli Guðmundsson er fæddur og uppalinn í Borgarnesi. Ingi- mundur Ingimundarson fluttist í héraðið um miðjan áttunda áratuginn og hefur kennt ótalmörgum Borgfirðingum sundtökin í gegnum tíðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.