Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 29

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 i í Borgarbyggð Borgarnes● La ng jök ull B or ga rfj ör ðu r Faxa- flói MÝRAR •Hvanneyri Kleppjárnsreykir• Bifröst• •Húsafell Varmaland• HVÍTÁRSÍÐA •Reykholt Eiríks- jökull Þóris- jökull Borgarbyggð Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum Kosið var 26. maí 2018 Kjörskrá: Atkvæði: Kjörsókn: 2.637 1.916 73% ÍBÚAR 3.868 AFGANGUR* 15,6 m.kr. HEILDARSKULDIR 2021 3,6 ma.kr. SKULDAHLUTFALL** 2022: 119% 2024: 118% KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI 2.208 FLATARMÁL 4.927 km² 53% Karlar Konur 47% Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Vinstri græn mynda meirihluta Bæjarstjóri: Þórdís Sif Sigurðardóttir Forseti sveitarstjórnar: Lilja Björg Ágústsdóttir (D) *Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta. 0 200 400 600 800 1000 > 7051-7031-5018-30< 18 ■ B Framsókn 36,2% 4 ■ D Sjálfstæðisfl. 26,7% 2 ■ S Samfylking & óh. 13,9% 1 ■ V Vinstri græn 23,2% 2 Borgarbyggð varð til þegar Borgarnesbær, Hraunhreppur, Norðurárdalshreppur og Stafholts- tungnahreppur sameinuðust árið 1994. Álftaneshreppur, Borgarhreppur og Þverárhlíðar- hreppur bættust við 1998 og Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Kolbeinsstaðahreppur 2006. Þéttbýli er í Borgarnesi, Bifröst, Hvanneyri, Reykholti og Varmalandi. DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Framsóknarflokkurinn er ekki aðeins sögulega sterkur í Borgarfirði. Af níu fulltrúum í sveitarstjórn eru fjórir þeirra undir merkjum flokksins. Samt er hann í minnihluta. Nú þegar kosningar nálgast lýsa oddvitar hinna flokkanna þriggja, sem mynda meiri- hluta gagnvart minnihluta Fram- sóknar því yfir að samstarfið hafi gengið afar vel. Guðveig Eyglóardótt- ir brosir út í annað þegar hún hlustar á lýsingarnar og segir svo í léttum dúr. „Við verðum greinilega að fá hreinan meirihluta til þess að ná inn í meirihlutann.“ Samtalið við oddvitana má finna á helstu streymisveitum og mbl.is. Átök um bæjarstjórastöðuna Nokkur styr hefur staðið um starf sveitarstjóra á kjörtímabilinu í kjölfar þess að Gunnlaugi Júlíussyni var sagt upp störfum. Þegar oddvitarnir eru spurðir út í hvort þeir hafi í hyggju að halda í núverandi sveitarstjóra eða gera breytingar á þeim vettvangi eru svörin nokkuð loðin. Guðveig segir þó að ákveðnir kostir gætu falist í því að fá pólitískan bæjarstjóra á vettvang. Það gæti mögulega hraðað ákvarð- anatöku og ýtt hlutum úr vör með meira afgerandi hætti. Allar eru þær þó, oddvitarnir, sam- mála um að ganga þurfi hreint til verks við uppbyggingu innviða og laða fyrirtæki og fólk til sveitarfé- lagsins. Þar eru margir möguleikar opnir en sá stærsti sem kynntur hef- ur verið er ný byggð, allt að þrjú þús- und íbúa, vestan Borgarvogs. Myndi slík uppbygging meira en tvöfalda íbúafjödann í Borgarnesi.Ljóst er að stjórnsýslan og samfélagið í Borg- arbyggð er enn að takast á við breytt- an veruleika sem fylgir stækkandi rekstrareiningum á sveitarstjórn- arstiginu og breytingum á þeirri þjónustu sem þessar einingar eiga að sinna. Þótt helmingur íbúanna búi í Borgarnesi tekur um klukkutíma að aka frá ystu mörkum sveitarfélagsins í bæinn og því um langan veg að fara fyrir suma íbúa þegar sækja á þjón- ustu. Þar reynir mest á í skólaþjón- ustu og sveitarfélagið heldur úti leik- og grunnskólastarfsemi á nokkrum stöðum. Því fylgir mikill kostnaður. Ný skólastefna er í smíðum en flokk- arnir eru ragir við að varpa fram skýrum línum um hvar þessi þjónusta skuli í boði og hvort sameina eigi bekkjardeildir eða tiltekin skólastig á færri stöðum en nú er. Ekki er ljóst hvort nýja stefnan verður tilbúin fyrir kosningar eða ekki, en þó má gera ráð fyrir að sitt muni sínum sýnast í því þegar þær tillögur liggja fyrir. Miklar breytingar Talsverð endurnýjun er fram- undan í sveitarstjórn á nýju kjör- tímabili. Oddvitar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks munu halda áfram, þær Lilja Björg Ágústsdóttir og Guðveig Eyglóardóttir. Thelma Dögg kemur ný inn fyrir hönd VG og sömu sögu er að segja um Bjarney Bjarnadóttur, oddvita Samfylkingar og Viðreisnar, sú síðastnefnda var inni sem varaþingmaður Viðreisnar í níu klukkustundir síðasta haust með- an greitt var úr nær óleysanlegum kosningaflækjum á Hótel Borg- arnesi. Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Leiðtogar Thelma Dögg Harðardóttir oddviti VG, Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins, Bjarney Bjarnadóttir, oddviti Samfylkingarinnar og Viðreisnar, og Guðveig Eyglóardóttir oddviti Framsóknarflokksins. Meirihlutasamstarfið hefur gengið mjög vel - Stærsti flokkurinn sér kost í pólitískum bæjarstjóra Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kleppjárnsreykir Hluti skólabyggingarinnar var rifinn og leikskóli, sam- byggður, reistur á sömu lóð. Uppbygging skólamannvirkja kostar milljarða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.