Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn og skoðaðu dekkjaúrvalið á nesdekk.is
Fiskislóð 30
101 Reykjavík
561 4110
Tímabókun
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
561 4210
Röð
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Tímabókun
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Tímabókun
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Tímabókun
Skeifan 9
108 Reykjavík
590 2080
Tímabókun nesdekk.is / 561 4200
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Tímabókun
RÉTTU DEKKIN KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ!
Toyo
Proxes CF2
Toyo
Proxes Sport
Toyo
Open Country
AT+
Toyo
Open Country
AT3
Toyo
Open Country
Mud Terrain
7. apríl 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.09
Sterlingspund 169.6
Kanadadalur 103.76
Dönsk króna 19.038
Norsk króna 14.843
Sænsk króna 13.802
Svissn. franki 139.63
Japanskt jen 1.0508
SDR 177.68
Evra 141.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.9552
« Kaffihúsið Café
Adesso í Smáralind
fagnar í dag 20 ára
afmæli, en það var
opnað 7. apríl
2002. Það hefur
með árunum orðið
viðkomustaður
gesta innan sem
utan Smáralindar.
„Margir við-
skiptavinir hafa
sýnt okkur mikla tryggð í gegnum árin,
og það er góður hópur af fólki sem býr
hér í nágrenninu sem kemur um kaffi-
leytið á virkum dögum til að hittast og
fá sér með kaffinu,“ segir Elís Árnason,
veitingamaður og eigandi Café Adesso,
í samtali við Morgunblaðið. Hann segir
að aðsókn gesta sé þannig ekki ein-
göngu háð því hversu mikið af fólki
heimsækir Smáralind hverju sinni, þótt
vissulega sé meira að gera um helgar
og aðra stóra verslunardaga.
Spurður um reksturinn segir Elís að
hann hafi gengið vel, þótt áskoranirnar í
rekstri séu aðrar nú en þær voru fyrir
20 árum.
„Á þeim tíma nam hráefniskostnaður
um 20% af rekstrargjöldum staðarins
og launakostnaður var um 30%, en í
dag eru þessi hlutföll um 30% og 40%.
Þegar um 70% af rekstrarkostnaði
fer í laun og hráefni er ekki mikið
svigrúm og því þarf að halda vel á
spöðunum,“ segir Elís.
„Við höfum gert það eftir bestu getu,
staðurinn er rekinn á sinni upphaflegu
kennitölu en rekstur hans kallar á mikla
yfirlegu og vandvirkni, sérstaklega í
gegnum tíma eins og við fórum öll í
gegnum nýlega með heimsfaraldur. Við
erum þó hvergi af baki dottin og höld-
um ótrauð áfram.“
Breyttar áskoranir
í rekstri á 20 árum
Elís Árnason, eig-
andi Café Adesso.
STUTT
kallað eftir afstöðu fjármálaeftirlits
Seðlabanka Íslands til þess hvort
lagaákvæði um bankaleynd stæðu
því í vegi að upplýsingar um kaup-
endur og um eignarhlut sem hverj-
um og einum var seldur, yrðu gerð-
ar aðgengilegar almenningi, en
svar við því hafði ekki borist í gær.
Áður hafði Bankasýsla ríkisins og
lögfræðiráðgjafar hennar lýst
þeirri afstöðu sinni gagnvart ráðu-
neytinu að óvarlegt væri að birta
upplýsingar um mótaðila ríkisins í
viðskiptunum. Lárus Blöndal, for-
maður stjórnar Bankasýslunnar,
ítrekaði þá afstöðu í viðtali við
Dagmál Morgunblaðsins sem birt
var í gærmorgun.
Bjarni segir að ráðuneytið hafi
ekki haft upplýsingar um það
hverjir tóku þátt í útboðinu fyrr en
yfirlitið barst ráðuneytinu í gær.
„Við höfðum fengið upplýsingar
um meginniðurstöður og það
hvernig úthlutun var háttað, en
ekki yfirlit yfir þá sem fjárfestu
eða tóku þátt,“ segir Bjarni.
Tveir fengu neitun
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var tveimur aðilum neitað
um þátttöku í útboðinu, en eins og
blaðið greindi frá í síðustu viku er
það hlutverk söluaðila útboðsins að
meta hæfi fjárfesta, þó í umboði
Bankasýslunnar.
Þó hefur komið fram gagnrýni á
hæfi einstakra aðila, bæði einstak-
linga og félaga, sem tóku þátt en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Bankasýslan ekki
gert neinar athugasemdir.
Eins og áður hefur komið fram
var lífeyrissjóðurinn Gildi stórtæk-
astur í útboðinu og fjárfesti fyrir um
3,5 milljarða króna. LSR og Brú
fjárfestu fyrir 2,5 milljarða og
Lífeyrissjóður verslunarmanna fyr-
ir 2,1 milljarð. Á listanum yfir fjár-
festa má sjá fjölda ólíkra félaga, allt
frá lífeyrissjóðum til einstakra
rekstrarfélaga. Minnsta upphæðin
sem afgreidd var í útboðinu var um
1,1 milljón króna.
Listinn yfir fjárfesta birtur
- Ráðherra telur bankaleynd ekki eiga við þegar verið sé að selja eigur ríkisins
- Birt gegn andstöðu Bankasýslunnar og án þess að afstaða Seðlabankans liggi fyrir
Morgunblaðið/Eggert
Einkavæðing Rúmlega tvær vikur eru liðnar frá því að að ríkið seldi um 22,5% hlut í Íslandsbanka í lokuðu útboði.
BAKSVIÐ
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Alls tóku 209 hæfir fjárfestar þátt í
útboði Bankasýslu ríkisins á hlut
ríkisins í Íslandsbanka þann 22.
mars. sl. Sem kunnugt er seldi ríkið
22,5% hlut í bankanum fyrir um 52,7
milljarða króna.
Um 85% fjárfesta voru innlendir
en 15% erlendir. Lífeyrissjóðir voru
umfangsmestu
fjárfestarnir í út-
boðinu og fjár-
festu fyrir um
19,5 milljarða
króna, sem er um
37% af þeirri
upphæð sem seld
var. Einkafjár-
festar fjárfestu
fyrir um 16 millj-
arða, eða tæplega
31%, og verð-
bréfasjóðir fyrir um 5,6 milljarða
sem gerir tæplega 11%.
Þetta kemur fram í yfirliti yfir þá
aðila sem fjárfestu í útboðinu sem
birt var síðdegis í gær á vef fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins.
Þar kemur fram að ráðuneytið hafi í
gær, miðvikudag, fengið afhent yf-
irlit yfir þá aðila sem keyptu hluti í
útboðinu. Einnig kemur fram að
ráðuneytið hafi lagt sjálfstætt mat á
þær röksemdir sem settar hafa ver-
ið fram fyrir því að framangreint yf-
irlit falli undir bankaleynd og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að svo væri
ekki.
Ólík sjónarmið um birtingu
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir í samtali
við Morgunblaðið að það hafi verið
mat ráðuneytisins að birting yfirlits-
ins væri í samræmi við lög, en um
það hefur verið deilt síðustu daga.
„Það er mat okkar að þegar verið
er að selja ríkiseign til hæfra fjár-
festa eins og í þessu tilviki, þá eigi
bankaleynd ekki við,“ segir Bjarni.
Hann segir að ráðuneytið hafi
Bjarni
Benediktsson
Á lista þeirra sem fjárfestu í út-
boðinu má finna félagið Haf-
silfur ehf., sem er í eigu Bene-
dikts Sveinssonar, föður Bjarna.
Hafsilfur keypti fyrir tæpar 55
milljónir króna í bankanum.
Spurður um þátttöku föður síns
segir Bjarni að hann hafi ekki
haft vitneskju um hana fyrr en
ráðuneytið fékk listann afhent-
an í gær. „Það er rétt að ítreka
að ég kem ekki að ákvörðun um
úthlutun til einstakra aðila,“
segir Bjarni í framhaldinu.
„Bankasýslan er sjálfstæð
stofnun sem útfærir söluna í
samræmi við lög sem gilda.“
Kom ekki að
úthlutun
FJÁRFESTING