Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022
✝
Guðni Garð-
arsson fæddist
5. mars 1945 á
Ljósalandi í Fá-
skrúðsfirði, Suður-
Múlasýslu og lést
23. mars 2022. For-
eldrar hans voru
Halldóra Hjart-
ardóttir f. 7. októ-
ber 1916 á Vaðli
efri á Barðaströnd,
d. 26. desember
2010 og Garðar Guðnason f. 6.
maí 1913 í Heklu á Höfn í Horna-
firði, d. 11. desember 1996.
Systkini Guðna eru Hörður
Garðarsson f. 24. júní 1937, d. 23.
júlí 2017, Þórður Garðarsson f.
22. febrúar 1940 og Hjördís Jóna
Garðarsdóttir f. 5. júlí 1941. Eig-
inkona Guðna var Helga Að-
alsteinsdóttir f. 4. nóvember
Ósk Valsdóttur f. 15. desember
1972. Börn þeirra eru (a) Friðrik
Valur f. 31. ágúst 2005 (b) Dag-
mar Helga f. 22. október 2008. 4)
Dögg f. 10. febrúar 1976. Unn-
usti hennar er Svavar Þór Ein-
arsson. Sonur Daggar er (a)
Bjartur Eldur Þórsson f. 9. ágúst
2004 faðir hans er Þór Jóhann-
esson.
Guðni vann ýmis störf um æv-
ina og þá oftar en ekki tengd
farartækjum og vélum ýmiss
konar. Hann starfaði sem leigu-
bílstjóri, bílstjóri hjá BP, hjá
Þór, Velti og Fossberg auk ým-
issa annarra starfa til sjós og
lands. Árið 2003 stofnaði Guðni
heildverslunina Logey ásamt
Júlíusi S. Sigurðssyni þar sem
verslað var með verkfæri af
ýmsu tagi. Samstarf þeirra var
farsælt og stóð í tæpan áratug
allt þar til Guðni settist í helgan
stein.
Útför Guðna fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 7. apríl 2022, kl. 15.
1946, d. 22. maí
2012. Þau Guðni
gengu í hjónaband
14. nóvember 1965.
Börn þeirra eru:
1) Garðar f. 24.
maí 1965 kvæntur
Önnu Jónsdóttur f.
30. júlí 1966. Börn
þeirra eru (a)
Guðni, 14. desem-
ber 1987. Sambýlis-
kona hans er Oli-
vera Ilic og sonur þeirra Garðar
Freyr. (b) Edda f. 20. nóvember
1989. Synir hennar eru Birkir
Örn og Helgi Már, faðir þeirra er
Theodór Gaukur Kristjánsson.
(c) Auður f. 22. maí 1997, sam-
býlismaður hennar er Arnar Þór
Skúlason. 2) Andri f. 28. maí
1970. 3) Bjartur Logi f. 13. nóv-
ember 1972 kvæntur Jóhönnu
Það er ómetanlegt að eiga góða
tengdaforeldra og voru móttök-
urnar í Einarsnesinu hjá Helgu og
Guðna frá fyrstu tíð einstaklega
góðar. Það fór frá upphafi vel á
með okkur Guðna og þær voru
ófáar sögurnar af ferðalögum fjöl-
skyldunnar um landið sem mér
voru sagðar, sem og sögur af
uppátækjum ýmiss konar og ekki
má gleyma frásögnum úr þeim
störfum sem hann hafði tekið sér
fyrir hendur um ævina sem voru
mörg og margvísleg. Ef eitthvað
bilaði sem þurfti sérhæfðar græj-
ur til að gera við var næsta öruggt
að tól og tæki til þess arna fundust
í skúrnum hjá Guðna og aldrei var
hægt að reka hann á gat þegar
spurt var út í viðgerðir á allra
handa hlutum. Sjaldan hef ég orð-
ið eins hissa og þegar ég var búin
að fara í allar mögulegar og
ómögulegar verslanir í leit að sér-
stakri skrúfu og var alls staðar
sagt að svona skrúfu fengi ég
hvergi. Ég kom kúguppgefin eftir
þennan þvæling um allan bæ til
Guðna og bar mig aumlega yfir
þessari árangurslausu leit og
sýndi honum skrúfuna. Hann stóð
strax upp úr stólnum og bað mig
að fylgja sér út í skúr, hvar hann
gekk beint að tiltekinni skúffu, dró
upp úr henni skrúfu, rétti mér og
sagði: „Gerðu svo vel, Jóhanna
mín.“ Eftir þetta hvarflaði aldrei
að mér að það hefði neitt upp á sig
að leita í verslanir ef vantaði eitt-
hvað sem laut að viðgerðum eða
smíðavinnu ýmiss konar, hversu
smátt sem það var. Það var allt til í
skúrnum hjá Guðna, og ef það var
ekki þar þá var alveg eins gott að
sleppa því að leita annars staðar.
Það verður skrýtið að geta ekki
lengur komið í Einarsnesið og leit-
að ráða hjá tengdapabba varðandi
hin ýmsu mál, eða bara til að
spjalla um daginn og veginn og fá
rauðrunnate í múmínbolla og jafn-
vel ögn af dökku súkkulaði með.
En þá er gott að geta búið að
minningunum um einstaklega
ánægjulega og gefandi samfylgd
með Guðna í rétt tæp 20 ár og fyr-
ir þær ber að þakka að leiðarlok-
um.
Jóhanna Ósk.
Það er óvænt og erfitt að þurfa
að kveðja kæran vin eftir meira en
hálfrar aldar vináttu. Leiðir okkar
Guðna lágu saman á vinnustað
fyrir nær 55 árum. Þá þegar hafði
Guðni stofnað fjölskyldu með
Helgu Aðalsteinsdóttur, æskuást
sinni. Það var auðvelt að vingast
við þennan hægláta, bjarta og
heiðarlega unga mann og gott að
starfa með honum. Við urðum
fljótlega góðir vinir og brölluðum
margt saman. Á sama vinnustað
starfaði þá einnig Þórður, bróðir
Guðna. Við þrír leystum saman
fjölmörg heimsvandamálin og fór-
um létt með það, pældum í bók-
menntum og lásum ljóð. Þórberg-
ur, Laxnes og Steinn Steinarr
voru okkar menn ásamt fleiri góð-
skáldum um heim allan. Við vor-
um allir vel vinstrisinnaðir og
höfðum mikinn áhuga á stjórn-
málum. Það var róstusamt í sam-
félaginu á þessum tíma, iðulega
mótmælagöngur og baráttufundir
sem við félagarnir tókum þátt í af
mikilli og afdráttarlausri sannfær-
ingu um góðan málstað. Ég man
t.d. dæmis eftir Þorláksmessus-
lagnum 1968 þar sem gengin var
önnur leið en löggan af sínu lít-
illæti hafði heimilað. Það endaði
með slagsmálum neðst í Banka-
stræti. Skyndilega stóð tvöföld
röð af löggum í vegi fyrir okkur og
aftari röð þeirra beitti kylfum.
Ungur maður sem stóð milli okkar
Guðna fékk kylfuhögg í hausinn,
vankaðist og riðaði við. Við gátum
dröslað honum úr þvögunni og
fórum með hann alblóðugan niður
á gömlu löggustöðina. Þar vorum
við uppi með kjaft, jafnvel þessi
hægáti og prúði drengur Guðni
gat orðið æstur og reiður ef hon-
um mislíkaði verulega. Varðstjór-
inn hótaði að loka okkur inni í
klefa ef værum með einhvern upp-
steyt.
Við kröfðumst þess að löggan
skaffaði sjúkrabíl fyrir mann sem
hún hafði lamið og blóðgað. Og
það varð úr.
Seinna þegar við báðir vorum
orðnir virðulegir heimilisfeður
ferðuðust fjölskyldur okkar sam-
an, oft um hálendið. Guðni átti þá
sinn ágæta Volvo Lapplander,
sem var duglegur og öruggur
ferðabíll en ég amerískan jeppa.
Það var farið í Eldgjá, um Fjalla-
bak nyrðra, Lakagíga, Kaldadal
og fleiri fallegar og áhugaverðar
leiðir. Þetta voru ánægjulegar
ferðir og uppbyggilegar í íslenskri
náttúru.
Guðni las mikið, sílesandi alla
ævi, bækur af öllu tagi. Hann var
því fjölfróður og vel heima á flest-
um sviðum. Sterk réttlætiskennd
og samúð með þeim verst settu
einkenndu alla tíð skoðanir hans
og afstöðu til samfélagsins og lífs-
ins.
Guðni og Helga voru samhent-
ir, góðir foreldrar og börnin urðu
fjögur, þrír drengir og ein stúlka.
Á heimilinu ríkti jafnan glaðleg ró
og yfirvegun. Einn af drengjunum
þeirra glímdi frá fæðingu við erf-
iðan sjúkdóm. Helga og Guðni
höfðu drenginn sinn heima eins
lengi og hægt var en að lokum
varð að búa honum stað á sambýli.
En nær allar helgar var hann
heima hjá foreldrum sínum sem
önnuðust hann ætíð af mikilli um-
hyggju og ástríki. Og það var þeim
báðum eðlislægt. Helga lést árið
2012, Guðna mikill harmdauði, líf
hans ekki samt eftir það.
Nú að leiðarlokum er Guðna af
hjarta þökkuð samfylgdin og vin-
áttan. Á meðan minningar lifa um
góðan dreng er hann á sinn hátt
meðal okkar. Megi minning hans
lengi lifa.
Steinar og Dagný
Ég kynntist Guðna sennilega
fyrst um miðjan níunda áratuginn
í gegnum son hans, Garðar. Guðni
var meðalmaður á hæð, grá-
skeggjaður, hægur en gat verið
glettinn. Oft fór ég með Birnu, þá-
verandi eiginkonu minni, upp í
Hæðarsel til Guðna og Helgu eig-
inkonu hans og kynntist þeim
ágætlega. Ekki renndi ég þó grun
í að við Guðni ættum eftir að verða
samstarfsmenn.
Árið 1989 tók ég við fram-
kvæmdastjórastarfi hjá GJ Foss-
berg vélaverslun en hafði reyndar
unnið þar í nokkur ár. Árið 1993
var svo komið að okkur vantaði
starfsmann í verslunina og ég varð
var við að Guðni sýndi starfinu
áhuga. Einhverra hluta vegna var
ég hikandi, enda hafði ég aldrei
tengt Guðna við þessi störf. Fljót-
lega kom í ljós að mín stærstu mis-
tök voru að hafa ekki ráðið Guðna
miklu fyrr til starfa í verslunina.
Guðni tók starfið mjög föstum
tökum og reyndist vera vandaður
starfsmaður í hvívetna. Allir báru
mikla virðingu fyrir honum og
hann var mjög góður félagi. Guðni
kom frá Norðfirði ef ég man rétt
og var vinstrisinnaður eins og
fleiri góðir Austfirðingar. Hann
var mjög ljúfur í umgengni og
Fossberg-verslunin dafnaði á
Skúlagötunni með hann sem
starfsmann.
Seinna skildi leiðir. Ég yfirgaf
Fossberg og hann stofnaði þá í fé-
lagi við Júlíus S Sigurðsson, versl-
unarstjóra hjá Fossberg, nýtt
fyrirtæki á sama sviði, Logey. Ég
er ekki í vafa um að hann hafi not-
ið sín þar. „Það er mín stærsta
eign,“ sagði hann við mig um Lo-
gey.
Guðni glímdi við vanheilsu síð-
ustu árin eftir að hann missti
Helgu en minningin um góðan
mann lifir. Ég votta börnum hans
og aðstandendum samúð mína.
Sýnist mér fyrir handan haf
hátignarskær og fagur
brotnuðum sorgar öldum af
upp renna vonar dagur.
(Hjálmar Jónsson)
Einar Örn Thorlacius.
Guðni Garðarsson
Elsku mamma mín, amma og langamma,
SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
til heimilis að Birkimel 6 í Reykjavík,
lést á Landakotsspítala föstudaginn
25. mars. Útförin fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Örninn, minningar- og styrktarsjóð.
Lilja Ósk Úlfarsdóttir
Benjamín Stacey
Camilla Stacey Þórir Fannar Þórisson
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
ÞURÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR,
andaðist 24. mars á Hrafnistu,
Sléttuvegi 25. Útför hennar hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Ólöf Bettý Grétarsdóttir
Hinrik Grétarsson
Sigurður Grétarsson
barnabörn og barnabarnabörn
HELGI ÁSGEIRSSON,
Njálsgötu 5, Reykjavík,
lést á Landakoti fimmtudaginn 31. mars.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 15.
Innilegar þakkir til heimaþjónustu
Reykjavíkurborgar og starfsfólks L-5 á Landakoti fyrir
elskulega umönnun.
Fyrir hönd vina,
Þórólfur Árnason
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
SÓLVEIG JÓHANNA JÓNASDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 13.00.
Hafsteinn Már Línbergsson
Sigrún Línbergsdóttir
Linda Alísa Meissner Ivan G. Pietronigro
Svava S. Svavarsdóttir Gunnar Örn Gunnarsson
og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
KJARTANS REYNIS ÓLAFSSONAR
bifreiðarstjóra,
Kristjánshaga 2,
Akureyri.
Þuríður Þorsteinsdóttir
Ólafur Már Kjartansson
Hrannar Þór Kjartansson Soffía Rut Guðmundsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Bala,
Þykkvabæ,
lést mánudaginn 7. mars á Landspítalanum.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jón Þ. Magnússon
Aðalsteinn Ingvarsson Katrín Harðardóttir
Eva Aðalsteinsdóttir Kristgeir Orri Grétarsson
Telma Aðalsteinsdóttir
Elís Þór Aðalsteinsson
Óskírður Kristgeirsson
Okkar ástkæri eiginmaður, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
JÓN HREINSSON,
Lækjarvaði 1,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum
við Fossvog föstudaginn 1. apríl.
Útför fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 11. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Jóns er
bent á menntasjóð Rúnars Mar (0113-18-751447, kt.
110307-2920).
Regína Sigurgeirsdóttir
Rúnar Mar Regínuson
Jón Þór Sigmundsson
Elínborg Anna Erludóttir
Viktor Máni Bogguson Jónsson
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ANDRÉSDÓTTUR,
Hæðargarði 33.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu
Sléttuvegi fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Einar Snorri Sigurjónsson Edda Hannesdóttir
Guðrún Birna Einarsdóttir Einar Garðarsson
Ragnar Einarsson Linda Benediktsdóttir
og langömmubörn
Ástkær bróðir okkar,
YNGVI ÞÓR KJARTANSSON,
bifvélavirki frá Egilsstöðum,
lést á heimili sínu í Moss í Noregi.
Útför auglýst síðar.
Helga Kjartansdóttir
Héðinn Kjartansson
Kolbrún Gerður Kjartansdóttir
Ingveldur Margrét Kjartansdóttir
og fjölskyldur
Faðir okkar,
HRAFNKELL BJARNI KJARTANSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
fimmtudaginn 31. mars.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir
Linda Björk Hrafnkelsdóttir
Soffía Margrét Hrafnkelsdóttir
Sigurlaug Hrafnkelsdóttir