Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 55

Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 55 Starfssvið sálfræðings • Almenn ráðgjöf og leiðsögn um sértæk úrræði til starfsfólks skóla og foreldra. • Athuganir, greiningar og ráðgjöf vegna einstakra nemenda. • Skipulögð fræðsla til starfsfólks skóla og foreldra. • Þverfaglegt samstarf við samstarfsfólk og aðrar stoðþjónustur. Starfssvið náms- og starfsráðgjafa • Náms- og starfsfræðsla í elstu bekkjum grunnskóla. • Fræðsla í bekkjum um námstækni, skipulag og markmiðssetningu. • Fyrirlögn og úrvinnsla áhugasviðskannana. • Stuðningur og ráðgjöf um líðan og námsframvindu einstakra nemenda. • Ráðgjöf um markmið, námstækni og námsval til einstakra nemenda. Menntunar- og hæfnikröfur má sjá á heimasíðu Skólaþjónustunnar; vefur.skolamal.is. Hvort stöðugildi fyrir sig er 100%. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022. Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir eiga að berast forstöðumanni á netfangið thorunnjona@skolamal.is. Áhugasamir eru hvattir til að skoða heimasíðu Skólaþjónustunnar eða hafa sambandi við Þórunni Jónu Hauksdóttur, forstöðumann (s. 488-4231). Náms- og starfsráðgjafi og sálfræðingur óskast til starfa hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu — Góðir skipulagshæfileikar — Góð færni í mannlegum samskiptum — Jákvæð og sjálfstæð vinnubrögð — Frumkvæði, drifkraftur og gott þjónustuviðmót — Góð íslensku- og enskukunnátta — Góð færni á Word og Excel MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að slást í hóp starfsmanna hjá RE/MAX sem hefur verið í mikilli þróun og er með sterka stöðu á fasteignamarkaði. Við leitum að úrræðagóðum, talnaglöggum einstaklingi sem er einnig góður í mannlegum samskiptum og kann listina að skapa traust á milli aðila. Ef þú býrð yfir þeirri færni ásamt því að sýna nákvæm vinnubrögð og góða eftirfylgni hvetjum við þig til að sækja um. Um er að ræða þjónustustarf sem felur í sér móttöku viðskiptavina, símsvörun ásamt almennu skrifstofustarfi og bakvinnslu í skjaladeild fasteignasölunnar. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og hvetjum við alla sem telja sig búa yfir þeirri getu og færni sem leitast er eftir til að sækja um starfið. Hjá RE/MAX starfar samhentur og skemmtilegur hópur fólks og er mikið kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda. Umsóknir og starfsferilskrá má senda á netfangið starf@remax.is VIÐ LEITUM AÐ METNAÐARFULLUM EINSTAKLINGI Í FJÖLBREYTT STARF HJÁ RE/MAX Aðalstræti 3, Akureyri · Engihjalli 8, Kópavogi · Lóuhólar 2, Reykjavík Ömmur óskast! Brynjuís óskar eftir að ráða konur 60 ára og eldri til starfa á höfuðborgarsvæðinu, 4 - 6 tíma vaktir í boði. Starfið felur í sér afgreiðslu á ís, þrif og samskipti við viðskiptavini. Ef þú hefur áhuga máttu senda tölvupóst á daniel@brynju.is. Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfstöðva grunnskóli með um 220 nemendur. Starfstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans, á slóðinni http://www.gsnb.is/ Auglýst er eftir fagfólki í eftirfarandi stöður norðan Heiðar (Ólafsvík og Hellissand) Umsjónarkennara í yngri deild (1.-7. bekk). Kennara í heimilisfræði. Íþróttakennara í 50% starf. Þroskaþjálfa í 100% starf. Auglýst er eftir kennurum við Lýsudeild skólans. Viðfangsefni eru: Kennsla yngri barna, list- og verkgreinar og tungumál í 5.-10. bekk, 90% starf. Menntunar- og hæfniskröfur: Leyfisbréf. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum. Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Laun eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknir sendist fyrir 20. apríl 2022 til skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11, 355 Snæfellsbæ eða á netfangið hilmara@gsnb.is. Í þeim skulu koma fram upplýsingar um menntun, réttindi og starfsreynslu. Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason í síma 894 9903 eða hilmara@gsnb.is. Óskum eftir kennurum og þroskaþjálfa fyrir skólaárið 2022-2023 intellecta.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.