Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Chelsea – Real Madrid ............................ 1:3 Villarreal – Bayern München.................. 1:0 England Burnley – Everton ................................... 3:2 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Staða neðstu liða: Leeds 31 7 9 15 35:68 30 Everton 29 7 4 18 32:52 25 Burnley 29 4 12 13 25:42 24 Watford 30 6 4 20 29:57 22 Norwich City 30 4 6 20 18:63 18 B-deild: Middlesbrough – Fulham ........................ 0:1 Nottingham F. – Coventry...................... 2:0 WBA – Bournemouth .............................. 2:0 Þýskaland Augsburg – Mainz ................................... 2:1 - Alfreð Finnbogason var varamaður hjá Augsburg og kom ekki við sögu. Ítalía B-deild: Pisa – Brescia........................................... 0:0 - Hjörtur Hermannsson var varamaður hjá Pisa og kom ekki við sögu. Noregur Bikarkeppnin, undanúrslit: Molde – Strömsgodset ............................ 3:0 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. Molde mætir Bodö/Glimt eða Viking í úrslitaleik. - Ari Leifsson kom inn á hjá Strömsgodset á 79. mínútu og skoraði sjálfsmark. Hvíta-Rússland Bikarinn, undanúrslit, fyrri leikur: Neman – BATE Borisov ......................... 2:1 - Willum Þór Willumsson lék fyrri hálf- leikinn með BATE. EM U19 kvenna Milliriðill á Englandi: Belgía – Ísland ......................................... 2:1 Luna Vanzeir 27., Lore Jacobs 74. – Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 57. England – Wales ...................................... 3:0 _ Ísland mætir Englandi á laugardag og Wales á þriðjudag. Sigurlið riðilsins kemst í átta liða lokakeppni EM í vor. 50$99(/:+0$ Olísdeild karla KA – Selfoss.......................................... 25:30 HK – Víkingur ...................................... 28:26 Fram – Stjarnan................................... 37:27 FH – Afturelding.................................. 27:21 Valur – Haukar..................................... 40:34 ÍBV – Grótta ......................................... 37:36 Staðan: Valur 21 15 2 4 614:530 32 Haukar 21 14 4 3 639:584 32 ÍBV 21 13 3 5 645:631 29 FH 21 13 3 5 588:536 29 Selfoss 21 12 2 7 586:560 26 Stjarnan 21 10 2 9 596:596 22 KA 21 9 2 10 575:597 20 Afturelding 21 6 7 8 575:584 19 Fram 21 7 3 11 583:594 17 Grótta 21 7 3 11 582:589 17 HK 21 2 2 17 549:615 6 Víkingur 21 1 1 19 485:601 3 Olísdeild kvenna ÍBV – Afturelding ................................ 31:28 Staðan: Fram 19 14 1 4 535:453 29 Valur 19 14 0 5 517:432 28 KA/Þór 19 13 1 5 533:488 27 ÍBV 19 11 0 8 516:493 22 Haukar 19 9 1 9 527:504 19 Stjarnan 19 8 0 11 491:502 16 HK 19 5 1 13 436:499 11 Afturelding 19 0 0 19 435:619 0 Meistaradeild karla 16-liða úrslit, seinni leikur: Montpellier – Porto............................. 35:27 - Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki með Montpellier vegna meiðsla. _ Montpellier áfram, 64:56 samanlagt, og mætir Kielce í 8-liða úrslitum. Veszprém – Vardar Skopje ................. 31:31 _ Veszprém áfram, 61:53 samanlagt, og mætir Aalborg í 8-liða úrslitum. Noregur Drammen – Fjellhammer................... 40:24 - Óskar Ólafsson skoraði 3 mörk fyrir Drammen sem endar í öðru sæti. Pólland Bikarkeppnin, undanúrslit: Kielce – Kalisz ..................................... 37:22 - Haukur Þrastarson skoraði eitt mark fyrir Kielce en Sigvaldi Björn Guðjónsson er frá keppni vegna meiðsla. Danmörk Fallkeppni úrvalsdeildarinnar: Ajax – Skanderborg............................ 28:24 - Steinunn Hansdóttir skoraði ekki fyrir Skanderborg. Þýskaland Sachsen Zwickau – Thüringer .......... 22:24 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Sachsen Zwickau. .$0-!)49, ÍTALÍA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þetta gerðist hratt. Ég fékk sím- hringingu í síðustu viku og var sagt að forráðamenn Tortona vildu reyna að kaupa mig út úr samningnum hjá Antwerp Giant. Þeim tókst það og ég ákvað að taka slaginn því þarna var líka um að ræða samning fyrir næsta tímabil. Ég sá þetta sem kjör- ið tækifæri til að komast í eina af sterkustu deildum Evrópu,“ sagði Elvar Már Friðriksson, landsliðs- maður í körfuknattleik, við Morgun- blaðið í gær. Hann samdi á sunnudaginn við ítalska félagið Tortona og er mættur þangað en Tortona er lítill 20 þús- und manna bær miðja vegu á milli Mílanó og Genúa á Norður-Ítalíu. „Þetta er frekar lítill og rólegur bær, stutt í allt hérna og bara 40 mínútur sitt í hvora áttina til Mílanó og Genúa,“ sagði Elvar sem flytur þangað frá 500 þúsund manna borg, Antwerpen í Belgíu, þar sem hann hefur leikið á yfirstandandi tímabili og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. Verðugt verkefni „Ég stefndi að því að vera kominn í eina af þessum bestu deildum á næsta tímabili og taldi að það yrði gott skref fyrir mig. Nú er það geng- ið eftir þannig að næsta mál er að sanna sig í þessari deild. Það verður verðugt verkefni en ég held að ég sé tilbúinn í það.“ Sex umferðir eru eftir af ítölsku A-deildinni en Tortona er í sjötta sæti af sextán liðum í hnífjafnri deild og stefnir á að komast í átta liða úr- slitin um ítalska meistaratitilinn í vor. Um leið yrði líkast til Evrópu- sæti í höfn en Tortona gæti líka fengið boð um það eftir að hafa kom- ist í bikarúrslitin gegn stórliðinu Olimpia Mílanó fyrr í vetur. Elvar veit ekki hversu mikið hann muni spila með liðinu til vorsins. „Ef horft er til yfirstandandi tíma- bils þá var þetta kannski ekki besti tíminn til að koma hingað. Það verð- ur eflaust erfitt að komast strax inn í einhvern takt með liðinu. En ég held að ég græði á þessu fyrir næsta ár, að vera búinn að kynnast hlutunum, og það ætti að auðvelda mér fram- haldið. Ég veit ekki alveg hvert mitt hlutverk verður núna, mér er fyrst og fremst ætlað að vera smá viðbót við liðið, reyna að hjálpa því að kom- ast í úrslitakeppnina og enda tíma- bilið sem best,“ sagði Elvar. „Síðan er ekki víst að það verði miklar breytingar á liðinu fyrir næsta tímabil. Þeir ætla að reyna að halda sama kjarna leikmanna, ég veit að nokkrir þeirra eru þegar búnir að semja. Það var hluti af ástæðu þess að þeir vildu fá mig strax en ekki í sumar, þannig að ég kæmist fyrr inn í hlutina.“ Ætla sér stóra hluti Tortona hefur komið mjög á óvart sem nýliði í A-deildinni í vetur en Elvar segir að verkefnið hjá félaginu sé spennandi. „Þeir eru með mjög háleit mark- mið til næstu ára og ætla sér að gera stóra hluti. Þeir vilja komast í Evr- ópukeppni og festa sig vel í sessi. Mér fannst mjög spennandi hversu hátt þeir setja markið og sá ekki ástæðu til annars en að slá til og taka þátt í því,“ sagði Elvar. Hann kvaðst hafa fylgst dálítið með ítölsku deildinni á undanförnum árum. „Já, ég þekki þokkalega til hennar og kannast við nokkra leik- menn. Ég er viss um að styrkurinn er mikill og þetta verður erfitt og krefjandi, sérstaklega að koma inn á miðju tímabili. Stökkið ætti að vera frekar stórt því það er dálítill getu- munur á deildinni hér og í Belgíu en ég er mjög ánægður með þetta.“ Ítalíusigrarnir hjálpuðu til Elvar átti tvo stórleiki með ís- lenska landsliðinu gegn Ítölum í febrúar, bæði þegar Ísland vann óvæntan sigur á Ásvöllum og svo þegar Ítalir unnu nauman átta stiga sigur í Bologna. Hann tók undir þá spurningu hvort sú frammistaða hefði ekki hjálpað til við þessi fé- lagaskipti. „Jú, hún gerði það að einhverju leyti. Þjálfari Tortona kom á leikinn í Bologna og forráðamenn liðsins hafa talað mikið um þessa leiki og hversu mjög við gerðum ítalska landsliðinu erfitt fyrir. Þeir leikir hjálpuðu mér klárlega. Svo vorum við í Antwerp Giant í riðli með Reg- giana í Evrópukeppninni í vetur. Mér gekk líka vel í þeim leikjum þannig að það hefur eflaust líka hjálpað til. Ég er farinn að þekkja vel til hérna á Ítalíu því ég er kom- inn hingað í þriðja sinn á tveimur mánuðum!“ Elvar var á leið á sína fyrstu æf- ingu með liðinu þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. „Síðustu dag- ar hafa farið í læknisskoðun og frá- gang á skiptum og samningum, þannig að ég hef bara verið á ein- staklingsæfingum þessa fyrstu daga. Nú fer þetta af stað og svo er leikur í deildinni um helgina. Ég veit ekki hvort ég tek einhvern þátt í honum, það verður bara að koma í ljós. Ég mun eflaust koma hægt og rólega inn í liðið,“ sagði Elvar Már Friðriksson. Sá þetta sem kjörið tækifæri fyrir mig - Háleit markmið Ítalanna í Tortona heilluðu Elvar Má Friðriksson Ljósmynd/FIBA Ítalir Elvar Már Friðriksson átti tvo mjög góða leiki gegn Ítölum í febrúar en allir ítölsku landsliðsmennirnir verða mótherjar hans í A-deildinni. Fotios Lampropoulos átti stórleik fyrir Njarðvík þegar liðið lagði KR að velli í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfu- knattleik í Ljónagryfjunni í Njarð- vík í kvöld. Lampropoulos skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf þrjár stoð- sendingar fyrir Njarðvík sem vann með tíu stiga mun, 100:90. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Njarðvík leiddi með 8 stigum í hálf- leik, 48:40. Njarðvíkingar voru með yfirhöndina í síðari hálfleik en KR tókst að minnka muninn í fjögur stig, 90:94, þegar 30 sekúndur voru til leiksloka. Lengra komust KR- ingar ekki og Njarðvík fagnaði sigri. Dedrick Basile skoraði 18 stig og gaf átta stoðsendingar fyrir Njarð- vík en Carl Lindbom var stigahæst- ur KR-inga með 26 stig og 12 frá- köst. Liðin mætast næst á Meist- aravöllum í Vesturbæ hinn 9. apríl og leiðir Njarðvík 1:0 í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Ís- landsmótsins. _ Þór og Grindavík léku fyrsta leik sinn í Þorlákshöfn í gærkvöld en honum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Morgunblaðið/Skúli B. Sig. 28 KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson reynir að halda aftur af Fotios Lampropoulos sem fór á kostum fyrir Njarðvík í gær og skoraði 28 stig. Njarðvík byrjaði betur gegn KR _ Ísak Máni Wíum hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍR í körfuknattleik til þriggja ára en hann er aðeins 22 ára gamall. Ísak er yfirþjálfari yngri flokka ÍR, hefur áður þjálfað kvennalið félags- ins og var aðstoðarþjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá karlaliði ÍR seinni hluta keppnistímabilsins en Friðrik ákvað að því loknu að láta stað- ar numið í þjálfun. „Aldurinn ætti ekki að vera vandamál,“ sagði Ísak m.a. í viðtali við hann sem birtist á mbl.is í gær. _ Steinunn Björnsdóttir úr Fram, ein besta handboltakona landsins síðustu ár, er komin aftur í landsliðið eftir árs fjarveru vegna meiðsla. Hún er í átján manna hópi sem Arnar Pét- ursson þjálfari tilkynnti í gær fyrir leikina gegn Svíum og Serbum í und- ankeppni EM sem fram fara 20. og 23. apríl. Karen Knútsdóttir úr Fram, sem á 104 landsleiki að baki, kemur einnig aftur inn í landsliðið en hún var ekki með í síðustu leikjum. Leikurinn við Serba verður hreinn úrslitaleikur um sæti á EM. _ Markverðir landsliðsins í þessu verkefni eru Elín Jóna Þorsteinsdóttir (Ringköbing) og Hafdís Renötudóttir (Fram) en aðrir leikmenn eru Andrea Jacobsen (Kristianstad), Elísa Elías- dóttir (ÍBV), Harpa Valey Gylfadóttir (ÍBV), Helena Rut Örvarsdóttir (Stjörnunni), Hildigunnur Ein- arsdóttir (Val), Jóhanna Margrét Sig- urðardóttir (HK), Lovísa Thompson (Val), Rakel Sara Elvarsdóttir (KA/ Þór), Rut Jónsdóttir (KA/Þór), Sandra Erlingsdóttir (Aalborg), Sunna Jónsdóttir (ÍBV), Thea Imani Sturludóttir (Val), Unnur Ómarsdóttir (KA/Þór) og Þórey Rósa Stef- ánsdóttir (Fram). _ Gunnar Magnússon handknatt- leiksþjálfari hefur skrifað undir nýjan samning við Aft- ureldingu og mun þjálfa áfram karlalið félagsins næstu þrjú ár. Gunnar er að ljúka sínu öðru tímabili með Mosfellsbæj- arliðið sem er í áttunda sæti úr- valsdeildarinnar. Hann er jafnframt aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Ís- lands. _ Barcelona tilkynnti í gær að uppselt væri á heimaleik liðsins gegn Wolfs- burg frá Þýskalandi í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta en liðin mætast á Camp Nou 22. apríl. Eitt ogannað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.