Morgunblaðið - 07.04.2022, Síða 63

Morgunblaðið - 07.04.2022, Síða 63
Miðarnir voru seldir á rúmum sólar- hring en nýtt heimsmet hjá fé- lagsliðum kvenna var sett á dögunum þegar 91.533 áhorfendur mættu á Camp Nou til að sjá Barcelona sigra Real Madrid 5:2 í átta liða úrslitum keppninnar. Sveindís Jane Jóns- dóttir leikur með Wolfsburg og verð- ur því væntanlega fyrst íslenskra kvenna til að spila frammi fyrir slík- um fjölda áhorfenda. _ LeBron James og félagar í Los Angeles Lakers komast ekki í úr- slitakeppnina í NBA-deildinni í körfu- knattleik en það lá fyrir eftir að liðið tapaði sínum sjöunda leik í röð í fyrri- nótt, 121:110 gegn Phoenix Suns á útivelli. Lakers er í ellefta sæti Vest- urdeildarinnar og getur ekki lengur náð tíunda sæt- inu sem þarf til að komast í um- spil um sæti í úr- slitakeppninni. _ Deildakeppni NBA lýkur um helgina en þegar er ljóst hvaða tíu lið komast ekki í umspil eða úrslitakeppnina. Auk La- kers eru það Sacramento, Portland, Oklahoma City og Houston úr Vest- urdeildinni og Washington, New York, Indiana, Detroit og Orlando úr Aust- urdeildinni. Cleveland, Brooklyn, Atlanta og Char- lotte fara í umspil um tvö sæti í átta liða úrslitum Austurdeildar. LA Clipp- ers, New Orleans og San Antonio verða í umspilinu í Vesturdeildinni, ásamt Denver eða Minnesota. _ Ronald Koeman verður næsti þjálfari hollenska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann tekur við starf- inu af Louis van Gaal eftir að heims- meistaramótinu í Katar lýkur í des- ember. Van Gaal skýrði frá því fyrr í vikunn að hann væri að glíma við krabbamein í blöðruhálskirtli. Koem- an skrifaði undir samning til ársins 2026 en hann varð Evrópumeistari með Hollendingum árið 1988 og stýrði landsliðinu í tuttugu leikjum á árunum 2018 til 2020. _ Hollendingurinn Erik ten Hag mun á næstu dögum skrifa undir samning sem knatt- spyrnustjóri Manchester United, sam- kvæmt frétt ESPN í gær. Hann hefur stýrt Ajax frá árinu 2017 og hol- lenska liðið hefur verið afar sig- ursælt undir hans stjórn. _ Knattspyrnusamband Íslands til- kynnti í gær að fimm skiptingar á lið verði leyfðar í öllum deildum Íslands- mótsins í meistaraflokkum karla og kvenna, sem og í bikarkeppni. Þá má nota einn varamann til viðbótar í framlengdum bikarleikjum. ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 Næsti áfanginn á leið ís- lenska kvennalandsliðsins í fót- bolta á sitt fyrsta heimsmeist- aramót er á dagskrá í dag þegar liðið mætir Hvít-Rússum í Bel- grad. Reyndar er frekar ein- kennilegt miðað við stöðu mála í Úkraínu og þátt Hvít-Rússa í inn- rásinni að þessi leikur skuli yf- irleitt fara fram. UEFA lét sér nægja að setja Hvít-Rússa í heimaleikjabann, og af þeim ástæðum er spilað í Serbíu, en Hollendingar ætla ekki að taka á móti Hvít-Rússum á þriðjudag og þeim leik hefur verið frestað um óákveðinn tíma. En burtséð frá því, þá er þetta leikur sem íslenska liðið verður að vinna til að halda áfram góðri stöðu sinni í riðl- inum þar sem það hefur tapað fæstum stigum til þessa og er í miklum slag við Hollendinga og Tékka um tvö efstu sætin. Besta leiðin á HM er að vinna leikina sem eftir eru. Staðan er þannig að ef Ísland vinnur Hvíta- Rússland heima og heiman og Tékkana á útivelli næsta þriðju- dag, myndi jafntefli í Hollandi í haust koma liðinu á HM, án um- spils. Annað sætið í riðlinum kallar hins vegar á flókna og erf- iða leið. Góð frammistaða margra landsliðskvennanna með fé- lagsliðum sínum undanfarnar vikur gefur fyrirheit um að þær séu í góðri stöðu fyrir þetta verk- efni. Hvíta-Rússland er með tals- vert lakara lið en Tékkland og þótt varhugavert sé að tala um skyldusigra í íþróttum þá er þetta einn slíkur. Fyrir landsliðs- konurnar er hreinlega ekkert annað ásættanlegt en sigur í Belgrad í dag. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, annar leikur: Ásvellir: Haukar – Valur (1:0) ............. 18.15 Njarðvík: Njarðvík – Fjölnir (0:1) ...... 20.15 Umspil karla, þriðji leikur: Egilsstaðir: Höttur – Fjölnir (2:0) ...... 19.15 Höfn: Sindri – Álftanes (1:1)................ 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Eyjar: ÍBV U – Selfoss ............................. 18 ÍSHOKKÍ Annar úrslitaleikur kvenna: Laugardalur: SR – SA (0:1)...................... 19 Í KVÖLD! Subway-deild karla 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Njarðvík – KR .................................... 100:90 _ Staðan er 1:0 fyrir Njarðvík. Þór Þ. – Grindavík ............................. (73:76) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Belgía/Holland Hague Royals – Den Helder............... 82:94 - Snorri Vignisson skoraði 8 stig, tók 4 frá- köst og átti eina stoðsendingu á 23 mín- útum með Hague Royals. NBA-deildin Indiana – Philadelphia ..................... 122:131 Orlando – Cleveland......................... 120:115 Brooklyn – Houston ......................... 118:105 Miami – Charlotte ............................ 144:115 Toronto – Atlanta ............................. 118:108 Chicago – Milwaukee ....................... 106:127 Minnesota – Washington ................. 114:132 Oklahoma City – Portland................... 98:94 Denver – San Antonio ........................ 97:116 Utah – Memphis ...................... (frl.) 121:115 Sacramento – New Orleans............. 109:123 Phoenix – LA Lakers ....................... 121:110 >73G,&:=/D HANDBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valsmenn standa vel að vígi í ein- víginu við Hauka um deildameist- aratitil karla í handknattleik eftir sannfærandi sigur á Hafnarfjarð- arliðinu á Hlíðarenda í næstsíðustu umferðinni í gærkvöld, 40:34. Liðin eru nú jöfn að stigum en þar sem Valsmenn náðu með sigr- inum yfirhöndinni í innbyrðis við- ureignum liðanna nægir þeim að vinna leik sinn á Selfossi í loka- umferðinni á sunnudag til að vinna deildina og vera með heimavall- arréttinn út úrslitakeppnina. Haukar leika á sama tíma við FH og verða að treysta á að fá fleiri stig en Valur í lokaumferðinni til að ná toppsætinu og bikarnum. Róbert Aron Hostert, Magnús Óli Magnússon og Finnur Ingi Stef- ánsson skoruðu fimm mörk hver fyrir Val en Stefán Rafn Sig- urmannsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson sjö hvor fyrir Hauka. Úrslitaleikur í lokaumferð Baráttan um síðustu sætin í úr- slitakeppninni galopnaðist í gær- kvöld. Fram lagði Stjörnuna á sann- færandi hátt í Safamýri, 37:27, á meðan Afturelding tapaði fyrir FH í Kaplakrika, 27:21. Afturelding er tveimur stigum á undan Fram en liðin mætast í Mos- fellsbæ í lokaumferðinni og það verður hreinn úrslitaleikur liðanna um síðasta lausa sætið í úr- slitakeppninni. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði níu mörk fyrir Fram gegn Stjörnunni en Tandri Már Konráðs- son skoraði sjö mörk fyrir Garðbæ- inga sem eru í sjötta sæti og komast ekki ofar. Grótta fór illa að ráði sínu Gríðarleg dramatík var í Vest- mannaeyjum þar sem ÍBV sigraði Gróttu, 37:36. Gróttumenn þurftu stig til að eiga möguleika fyrir loka- umferðina á að komast í úr- slitakeppnina og þeir voru yfir, 35:33, þegar tvær mínútur voru eft- ir. Andri Þór Helgason virtist þó hafa fært Gróttu stigið sem liðið þurfti þegar hann jafnaði úr víta- kasti á síðustu mínútunni. Eyja- menn höfðu þá átta sekúndur til að gera út um leikinn og þær dugðu Sigtryggi Daða Rúnarssyni til að skora sigurmarkið. Afturelding er með 19 stig í átt- unda sæti, Fram og Grótta 17 stig, en Grótta á ekki möguleika vegna innbyrðis úrslita. Sigtryggur Daði skoraði níu mörk fyrir ÍBV og Kári Kristján Krist- jánsson átta en Andri Þór Helgason skoraði ellefu mörk fyrir Gróttu og Birgir Steinn Jónsson níu. Tapið kom ekki að sök KA-menn áttu á hættu að komast ekki í úrslitakeppnina ef þeir töp- uðu fyrir Selfyssingum á heimavelli. Þeir töpuðu leiknum, 25:30, en sluppu fyrir horn fyrst Grótta náði ekki stigi úr leiknum í Vest- mannaeyjum. Selfyssingar tryggðu sér hins vegar fimmta sætið en komast ekki ofar fyrst bæði ÍBV og FH unnu sína leiki. Ragnar Jóhannsson skoraði fimm mörk fyrir Selfyssinga en Óðinn Þór Ríkharðsson og Arnór Ísak Haddsson sex mörk hvor fyrir KA. HK lagði síðan Víking 28:26 í uppgjöri botnliðanna þar sem Hjörtur Ingi Halldórsson skoraði sex mörk fyrir HK og Jóhann Reynir Gunnlaugsson átta fyrir Víking. Valur með bestu stöðu - Valsmenn skoruðu 40 mörk gegn Haukum í toppslagnum - Stórsigur Fram- ara og úrslitaleikur gegn Aftureldingu - KA slapp áfram en Grótta sat eftir Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlíðarendi Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú marka Vals gegn Haukum og sækir hér að vörn Hafnarfjarðarliðsins í toppslagnum. Karim Benzema var allt í öllu fyrir Real Madrid þegar liðið vann Chelsea í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á Stamford Bridge í Lundúnum í gær. Leiknum lauk með 3:1-sigri Real Madrid en Benzema gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum en Kai Havertz skoraði mark Chelsea á 40. mínútu og minnkaði muninn í 1:2. Þá reyndist Arnaut Danjuma hetja Villarreal þegar liðið tók á móti Bayern München á Cerámica- vellinum í Villarreal. Danjuma skoraði sigurmark Villarreal strax á 8. mínútu en leiknum lauk með 1:0-sigri spænska liðsins. Síðari leikir liðanna fara fram 12. apríl. AFP 3 Frakkinn Karim Benzema fór á kostum í rigningunni í Lundúnum í gær. Þrenna í Lundúnum Sara Björk Gunnarsdóttir er mjög líkleg til að spila sinn fyrsta lands- leik síðan í desember 2020 þegar Ís- land mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta í Belgrad í dag. Sara byrjaði að spila á ný með Lyon um miðjan mars og hefur tek- ið þátt í þremur leikjum með liðinu sem varamaður en hún eignaðist dreng í nóvembermánuði. „Sara er ekki í leikæfingu en hún er í fínu standi. Hún er í formi til að spila og getur það léttilega,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðs- þjálfari á fréttamannafundi í gær en gaf ekkert út um hvort hún yrði í byrjunarliðinu eða varamaður. „Ég hef engar áhyggjur af að hún geti ekki spilað í 90 mínútur,“ sagði Þorsteinn. Ingibjörg Sigurðardóttir, varn- armaður Vålerenga í Noregi, verð- ur ekki með í dag vegna meiðsla en reiknað er með að hún verði tilbúin gegn Tékklandi næsta þriðjudag. Þorsteinn sagði að aðrar í landsliðs- hópnum ættu að vera tilbúnar í slaginn í dag. Sara líkleg til að spila í Belgrad í dag Morgunblaðið/Eggert Tilbúin Sara Björk Gunnarsdóttir gæti spilað landsleik númer 137.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.