Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 68

Morgunblaðið - 07.04.2022, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2022 FERÐAKÆFISVEFNSVÉL er ómissandi ferðafélagi Trönuhrauni 8 | 565 2885 | stod.is AirMini ferðavél 199.650 kr. Reynslusaga „Vélin hefur staðist allar mínar væntingar og ég myndi mæla með henni. Hún er lítil, nett og meðfærileg og það er mjög einfalt að nota hana. Ég er búinn að fara með hana í styttri ferðir innanlands sem og í utanlandsferðir.“ Rúnar Halldór Hermannsson Notendur kæfisvefnsvéla ættu ekki að láta þessa öflugu og handhægu ferðavél framhjá sér fara. Hægt að kaupa aukahluti á borð við 12V snúru og hleðslustöð. Þrátt fyrir gríðarmikinn samdrátt í aðsókn að vinsælustu söfnum jarðar vegna heimsfaraldurs kórónuveir- unnar sóttu fleiri gestir þau heim ár- ið 2021 en 2020, þegar faraldurinn brast á. Og Louvre í París er eftir sem áður best sótta safnið. Í samantekt um aðsókn að söfnum sem birt er í The Art Newspaper kemur fram að samtals kom 71 millj- ón gesta í 100 vinsælustu söfnin árið 2021 en 54 milljónir árið 2020. Að baki þeim tölum er sú staðreynd að söfnin voru lokuð færri daga árið 2021 þegar tekið var að aflétta hömlum í faraldrinum. Niður- sveiflan var engu að síður kröpp því gestum í þessi 100 söfn hafði fækkað um 69 prósent frá árinu 2019 þegar 230 milljónir mættu. Í Louvre komu 2,8 milljónir gesta í fyrra en til samanburðar heimsóttu 9,6 milljónir gesta safnið árið 2019. Næstvinsælast var Ríkislistasafnið í Pétursborg, með næstum 2,3 millj- ónir gesta en til þess er tekið að þar var aðeins lokað í 10 daga á árinu vegna faraldursins en 116 daga í Lo- uvre. Þrjú önnur rússnesk söfn eru á meðal þeirra tíu vinsælustu. Marg- miðlunarsafnið í Moskvu var þriðja best sótta safn jarðar í fyrra með rúmlega 2,2 milljónir gesta. Metropolitan-safnið í New York var fjórða best sótta safnið árið 2021, með 1,8 milljónir gesta; í Nat- ional Gallery of Art í Washington DC komu rúmlega 1,7 milljónir manna; og um 1,65 milljónir komu í Hermitage-safnið í Pétursborg. Litlu færri komu í Reina Sofia í Madríd og þá heimsóttu rúmlega 1,6 milljónir gesta dýrgripi páfastóls í söfnum Vatíkansins. Best sótta safn Bretlands í fyrra var Natinal Gallery, með rúmlega 700 þúsund gesti, en það er sam- dráttur um heil 88 prósent frá 2019. Louvre í París er enn vinsælasta safnið - Gríðarlegur samdráttur í aðsókn AFP/Alain Jocard Trekkir Þessi dregur alltaf að gesti. Mona Lisa eftir Da Vinci í Louvre. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Egill Eðvarðsson er á stuttbux- unum þegar blaðamann ber að garði, nokkrum dögum fyrir opnun myndlistarsýningar hans, Óður, í sýningarrými á Geirsgötu 4, Pop- up-galleríi svökölluðu sem gengið er inn í frá Kolagötu. Sýningar- opnun fer fram í dag frá kl. 17 til 19. „Ég er alltaf í stuttbuxum þeg- ar ég mála eða þegar ég er að vinna og stússa og þetta er eigin- lega orðið þannig að ég gleymi mér stundum og er bara á stuttbuxum,“ segir Egill þegar blaðamaður spyr hann út í buxurnar. Enda gott að vera á stuttbuxum. Mikill fjöldi málverka er kominn í hús en ekki búið að hengja þau upp ennþá. Egill segist ekki búinn að ákveða hversu mörg þau eigi að vera en hann gæti hæglega hengt upp hundrað stykki og rúmlega það. Það sé hins vegar fullmikið. „Ég ákvað að gera hundrað mynda syrpu þangað til ég stoppaði,“ seg- ir hann. Verkin sem blaðamaður virðir fyrir sér einkennast af fígúrum og oftar en ekki má sjá rautt nef. Egill segist ekki vita hvaða rauða nef þetta sé sem hann máli hvað eftir annað og greinilegt að hann slær ekki slöku við í myndlistinni enda kominn á eftirlaun eftir um hálfrar aldar farsælt starf í sjón- varpi og við kvikmyndagerð. Nú er loksins almennilegur friður til að mála, þó Egill taki að sér eitt og eitt verkefni í sjónvarpi. Í andstöðu við hugsjónina Egill segist hafa málað lengur en hann hafi unnið í sjónvarpi enda fór hann upphaflega í myndlistar- nám. „Ég útskrifaðist 1971,“ segir hann og þá sem teiknikennari. „En svo bara rétt áður en ég útskrifast býðst starf uppi í sjónvarpi sem mér fannst alveg fáránlegt og í algjörri andstöðu við myndlistar- hugsjónina,“ segir hann kíminn. Myndlistina gaf hann þó aldrei upp á bátinn og hefur haldið margar sýningar í áranna rás. Egill segist nú mála meira en hann hafi nokkurn tíma gert um ævina. Hann sé með minnstu vinnustofu sem hann hafi nokkurn tíma haft en þó aldrei málað meira og alltaf með olíu á striga, í bland við úrklippur sem hann lími á strigann. „Sumt er líka þannig að ég bara teikna og klippi út og lími,“ segir Egill og bendir á dæmi. Á nokkrum verkum má sjá nöfn Gyrðis Elíassonar skálds og Vík- ings Heiðars Ólafssonar píanóleik- ara. Blaðamaður furðar sig á þessu en á því er auðvitað skýring. „Þeir eru örlagavaldar í því að ég kynnt- ist konunni minni fyrir fimm ár- um,“ segir Egill um þessa vini sína en konan sem um ræðir er Kristín Jórunn Hjartardóttir. Hann segir að sýningin sé tileinkuð Kristínu og öll verkin máluð eftir að þau kynntust nema það fyrsta sem hann málaði kvöldi fyrir fyrsta stefnumótið. Fyrsta stefnumótið áttu þau á tónleikum Víkings þar sem hann lék verk eftir Philip Glass og fagnaði nýútkominni plötu sinni. Egill hafði þá verið að vinna mikið með Víkingi í Hörpu og ákvað að bjóða konu sem hann þekkti ekkert með sér á tónleika. „Það er konan mín í dag,“ segir hann og brosir. Óður til uppáhaldslistamanna „Ef þú spyrð mig að því hvað ég sé að mála er ég ekki viss um að ég viti það, ég er aðallega að mála af því mér finnst svo gaman að mála,“ segir Egill um verkin. „Ég er bara að leika mér, bara að mála. Ég hef svo gaman af því og þetta er ekki með einhverjum boðskap, ég er ekki að reyna að segja neitt sérstakt. Þannig að rauða nefið fyrir þér er eitthvað annað fyrir öðrum.“ Egill nefnir líka að titill sýning- arinnar, Óður, sé nafnorð og sýn- ingin óður til uppáhaldsmynd- listarmanna hans í gegnum tíðina. Af þeim má nefna Picasso, Karo- línu Lárusdóttur, Matisse og Francis Bacon en vísun í verk þeirra má sjá í nokkrum verkum sem komin eru í hús, í ýmsum fí- gúrum og táknum. Morgunblaðið/Eggert Listmálari Egil á stuttbuxum með nokkur verka sinna í bakgrunni í sýningarrýminu á Hafnartorgi. „Ég er bara að leika mér“ - Egill Eðvarðsson opnar sýninguna Óður - „Ég er ekki að reyna að segja neitt sérstakt,“ segir Egill og er sýningin óður til uppáhaldsmyndlistarmanna hans Bobby Rydell, fyrrverandi tánings- poppstjarna og leikari í Bandaríkj- unum, er látinn, 79 ára að aldri. Ry- dell fæddist í Fíladelfíu og átti smelli á borð við „Volare“ og „Wild One“ á sjöunda áratugnum. Þá lék hann í kvikmyndinni Bye Bye Birdie frá árinu 1963 og steig dans í eftirminnilegu atriði með leikkon- unni Ann-Margret. Nafn Rydell var svo samofið bandarískri dægur- menningu sjöunda áratugarins að skólinn í söngleiknum Grease var nefndur eftir honum, Rydell High School, að því er fram kemur á vefnum Deadline. Bíó Ann-Margret með Bobby Rydell í kvikmyndinni Bye Bye Birdie frá 1963. Bobby Rydell látinn, 79 ára Bandaríski tón- listarmaðurinn Kanye West mun ekki koma fram á Coachella- tónlistarhátíð- inni í Kaliforníu sem hefst 15. apríl, samkvæmt fréttum á vefj- unum TMZ og Variety. West var eitt af aðal- nöfnunum á lista flytjenda þetta ár- ið og hefur ekki verið greint frá ástæðu þess að tónleikum hans var aflýst. Gæti hún þó tengst fréttum af því að hann hafi ofsótt fyrrver- andi eiginkonu sína Kim Kardashi- an og unnusta hennar Pete David- son og gert myndband þar sem leirdúkka í líki Davidson er drepin. Einnig var honum meinaður að- gangur að Instagram og bannað að koma fram á Grammy-verðlauna- hátíðinni. West kemur ekki fram á Coachella Kanye West

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.