Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 72

Morgunblaðið - 07.04.2022, Page 72
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 AFSLÁTTUR AF ÖLLUM 20% DÖNSKUM VÖRUM* HEAVEN Tungusófi. Nougat rifflað flauel. Hægri eða vinstri tunga. 310 x 172 x 82 cm. NÚ 319.992 kr. 399.990 kr. * Gildir ekki af sérpöntunum eða vörum frá Skovby. Skannaðu QR-kóðann til að skoða bæklinginn. Danskir DAGAR Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir opnar í dag, fimmtudag, klukkan 17 sýninguna „Útjaðar“ í Port- folio-galleríi á Hverfisgötu 71. Sigga Björg sýnir ný verk á pappír og auk þess vídeóverk. Verk Siggu Bjargar hafa á síðustu árum þróast í nýjar áttir þótt miðill hennar sé alltaf fyrst og fremst teikning. Verkin eru unnin með bleki, vatnslit og blýanti á pappír og „eru þau afurð vægðarlauss vinnuferlis þar sem teikningin er notuð til að kanna innri raunveruleika sem birtist á útjaðri mannlegs veruleika,“ segir í tilkynningu. Sigga Björg sýnir nýjar teikningar og vídeóverk í Portfolio-galleríi FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Valsmenn standa betur að vígi í einvíginu við Hauka um deildarmeistaratitil karla í handknattleik eftir sigur í leik liðanna í gærkvöld, 40:34. Næstsíðasta umferðin fór þá öll fram og þar galopnaðist baráttan um sæti í úrslitakeppninni þegar Fram vann stórsigur á Stjörn- unni. Fram og Afturelding mætast í hreinum úrslitaleik um áttunda sætið í lokaumferðinni. »63 Valsmenn standa betur að vígi ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Blúshátíð í Reykjavík verður á Hil- ton Reykjavík Nordica nk. miðviku- dag, 13. apríl, og þar kemur fram hljómsveitin Bláa höndin, sem Jón Ólafsson bassaleikari stofnaði síð- sumars í fyrra. „Við náðum að spila einu sinni í haust en síðan hefur Co- vid tafið okkur,“ segir Jón, sem tal- inn hefur verið einn besti bassaleik- ari landsins. Hann var útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavík- ur á Blúshátíð 2014 fyrir framlag sitt til blústónlistarinnar á Íslandi og verður sjötugur 28. apríl nk. Tónlist hefur fylgt Jóni frá barns- aldri. „Foreldrar mínir voru músíkalskir og frá því ég man eftir mér hef ég hlustað á tónlist. Eftir að Bítlarnir komu varð ekki aftur snú- ið. Þeir útveguðu mér ævistarfið og ég spila enn tónlist eftir þá enda hafa þeir alla tíð heillað mig.“ Um fermingaraldurinn var Jón farinn að vekja athygli fyrir spila- mennsku sína og hann sló rækilega í gegn með hljómsveitinni Töturum 1969, þegar hann var 17 ára. „Þá gáfum við út lagið „Dimmar rósir“, sem náði ótrúlegum vinsældum,“ rifjar hann upp. „Tatarar eru hljóm- sveitin, sem tekið verður eftir“ skrif- aði Svavar Gests m.a. á bakhlið plötuumslagsins og það voru orð að sönnu. Þakklátur samstarfsmönnum Söngvarinn Pétur Kristjánsson heitinn og Jón áttu langa samleið í tónlistinni og voru meðal annars saman í Pelican. „Pelican var vinsæl- asta hljómsveit landsins 1974 og platan okkar, Uppteknir, seldist í um 15.000 eintökum. Samstarfið með Pétri er ógleymanlegt, því hann var sérstakur persónuleiki.“ Jón hefur ekki tölu á öllum þeim hljómsveitum sem hann hefur spilað með, en tekur sérstaklega fram að hann hafi verið í blúsbandinu Vinum Dóra undanfarin 30 ár og með Gunn- ari Þórðarsyni og fleiri snillingum í Gullkistunni undanfarin um 15 ár. „Það er stórkostlegt að hafa fengið að vinna með Gunna. Það var mikil og góð lífsreynsla.“ Hann kom lengi fram með Rúnari Þór og spilaði með honum á mörgum plötum. „Ég var líka með Sveini Guðjónssyni í Huldubransanum, svo dæmi sé tekið.“ Hann hefur spilað inn á ótal plötur með enn fleiri tón- listarmönnum og ber þeim öllum vel söguna. „Ég er mjög þakklátur fyrir að ég hef ekki aðeins fengið að spila með mjög mörgum, góðum spilurum í gegnum árin heldur eiginlega öll- um bestu hljóðfæraleikurunum í bransanum, Fyrir það þakka ég af mikilli auðmýkt.“ Kletturinn Virðingin er gagnkvæm og því kemur ekki á óvart að Jón, sem hef- ur aldrei tranað sér fram heldur haldið sér til hlés að hætti Bills Wymans í Rolling Stones, sé kall- aður „kletturinn“ í bransanum. „Ég held að Sigurður Karlsson trommari hafi byrjað á þessu þegar við spil- uðum í verkefninu „Íslensk kjöt- súpa“ með þeirri skýringu að ég þætti fastur fyrir, traustur.“ Jón hefur mest spilað popptónlist, rokk og blús. „Mér finnst gaman að spila alla tónlist, byrjaði snemma að spila blús og fæ mest út úr því, er al- sæll eftir góða blústónleika. Bláa höndin á hug minn allan núna, ég er sérstaklega upptekinn af hljómsveit- inni og er mjög ánægður með hana.“ Með Jóni í bandinu eru Guðmundur Pétursson gítarleikari, Einar Valur Scheving trommuleikari og Jakob Frímann Magnússon hljómborðs- leikari. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð og ég er bjartsýnn á fram- haldið.“ Þakkar Bítlunum starfið - Jón Ólafsson bassaleikari nær 70 ára og gefur ekkert eftir Ljósmynd/Þorsteinn G. Gunnarsson Flottur Jón var útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur 2014. Bláa höndin Tónlistarmennirnir frá vinstri: Guðmundur Pétursson, Einar Valur Scheving, Jón Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.