Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 4

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 vellinum um miðjan júní, þ.e. helgina 18.-19. júni, en þá helgi eiga meistaraflokkar kvenna og karla heimaleiki. Völlurinn tekur 1.600 manns í sæti, sem eru hvít og blá líkt og litir félagsins. „Það er gríðarleg tilhlökkun hjá okkur Frömurum, við höfum beðið lengi eftir þessari stund,“ segir Daði. sisi@mbl.is Nú er unnið að því að leggja gervigras á hinn nýja knattspyrnuvöll Framara í Úlfarsárdal. Það styttist í þá stund að Framarar geti sest í hvítu og bláu sætin á vellinum og hvatt sitt fólk til dáða. Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi Fram segir að vonir standi til að félagið geti leikið fyrstu leikina á Morgunblaðið/sisi Bláhvíti völlurinn brátt tilbúinn Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, hefur veitt séra Davíð Þór Jónssyni formlegt tiltal vegna um- mæla sem hann lét falla um rík- isstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Það virðist þó ekki hafa dregið úr eld- móði Davíðs en í nýrri Facebook- færslu kallar hann Katrínu farísea eftir að hún sagði að orð Davíðs dæmdu sig algjörlega sjálf. „Ég hefði kosið að hann hefði látið stað- ar numið,“ segir Agnes um færsl- una. Davíð birti pistil á Facebook-síðu sinni á þriðjudag þar sem hann lýsti óánægju sinni með þau áform ríkis- stjórnarinnar að vísa um 300 flótta- mönnum úr landi. Sagði Davíð að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna væru „sek eins og syndin“ og að það sé „sérstakur staður í hel- víti fyrir fólk sem selur sál sína fyr- ir völd og vegtyllur“. Til stendur að vísa flóttamönnum úr landi sem ekki var hægt að gera meðan ferða- takmarkanir vegna kórónuveirufar- aldursins voru í gildi. Mörg hver hafa því dvalið hér á landi um árabil og aðlagast samfélaginu. Telur biskup að orð Davíðs stang- ist á við siðareglur presta. Í yfirlýs- ingu frá biskupi kemur fram að prestum beri að haga málflutningi sínum málefnalega og meiða ekki með orðum. Biskup hefur þó gagn- rýnt áform íslenskra yfirvalda um fyrirhugaðar brottvísanir. Þá hefur séra Sindri Geir Ósk- arsson, sóknarprestur í Glerár- kirkju, gagnrýnt ákvörðun biskups að veita Davíð formlegt tiltal. Efast hann um að sterkt myndmál Davíðs feli í sér brot á siðareglum. Stendur biskup þó við orð sín og metur það svo að um brot á siðareglum hafi verið að ræða. Vildi að Davíð léti staðar numið - Kallar Katrínu farísea í nýrri færslu Agnes M. Sigurðardóttir Davíð Þór Jónsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég fæ fyrirspurnir á hverjum degi og jafnvel nokkrar á dag. Fólk hefur greinilega mikla þörf fyrir að skemmta sér,“ segir Ingi Valur Grétarsson trúbador. Eftir að samkomutakmörkunum var aflétt í vor hafa trúbadorar á höfuðborgarsvæðinu vart getað unnt sér hvíldar. Fullt er út úr dyrum á börum þar sem þeir koma fram og veislur eru haldnar í öðru hverju húsi um helgar. „Þetta eru afmæli, útskriftir, brúðkaup, gæsapartí og starfsmannafögnuðir, allt mögu- legt,“ segir Ingi Valur sem hefur verið lengi í bransanum og bæði gengið um dimma dali og upp á hæstu hæðir með gítarinn að vopni. „Ég er kannski að skemmta 4-5 kvöld í viku núna en á sínum tíma fór þetta mest í 12-13 skipti á 8-9 daga tímabili. Ég reyni að taka eins mikið og ég get því auðvitað vill maður reyna að gera sitt fyrir sem flesta. Ég er samt orðinn það gamall í hett- unni að ég hef lært að segja nei líka. Nú heyrir maður af því að menn eru að hlaupa á milli staða til að ná að sinna sem mestu og fyrir vikið verða menn auðvitað útkeyrðir. Það má al- veg merkja þreytu og kulnum í trúbadorum og það er meiriháttar vesen ef einhver forfallast,“ segir Ingi Valur. Hann segir að ekki séu nema 12- 13 trúbadorar sem komi fram á þeim þremur krám í miðborginni þar sem boðið er upp á lifandi tónlist öll kvöld. Tvær vaktir eru um helgar og því þarf ekki flókna útreikninga til að sjá að meira en nóg er að gera þegar einkasamkvæmin bætast við. „Trúbadorum hefur fækkað eftir Covid. Mín tilfinning er sú að margir hafi lagt árar í bát og snúið sér að öðrum störfum. Sem er ekkert skrít- ið þegar starfsvettvangurinn hrundi í einu vetfangi. Það voru ekki allir sem áttu varasjóð, margir lifa bara á milli tékka í þessum bransa. Nýliðun hefur sömuleiðis verið afar hæg.“ Ekki einasta hefur uppsöfnuð skemmtanaþörf eftir Covid- tímabilið skapað umræddar annir hjá trúbadorum heldur er gítar- músíkin farin að njóta meiri vin- sælda nú en verið hefur síðustu ár. „Þessi bransi fer alltaf í hringi. Nú erum við að koma út úr nokkuð löngu tímabili þar sem plötusnúð- arnir hafa verið allsráðandi. Fólk þyrstir meira og meira í lifandi tón- list.“ Mikið álag á trúbadorum - Erfitt að sinna uppsafnaðri skemmtanaþörf landsmanna eftir Covid-faraldur - Trúbadorum hefur fækkað og þeir sem enn standa eru útkeyrðir vegna álags Annir Ingi Valur Grétarsson segir að mikil ásókn sé í trúbadora í dag. Edda Björk Arnardóttir, sem nam þrjá syni sína á brott frá suðurhluta Noregs í lok mars og flutti þá til Ís- lands, var handtekin á föstudaginn að beiðni norsku lögreglunnar. Farið var fram á að Edda yrði framseld til Noregs og jafnframt var farið fram á farbann yfir henni, sem var strax hafnað í héraðsdómi. Í gær hafnaði ríkissaksóknari svo framsalsbeiðni norskra lögreglu- yfirvalda og féll einnig frá kæru til Landsréttar vegna kröfu um far- bann. Þetta staðfesti Edda í samtali við mbl.is. Hún sagði íslensku lögregluna hafa staðið eins vel að málum og hægt var, en lögreglumenn hafi einfaldlega verið að framfylgja kröfu norskra lögregluyfirvalda. Faðir drengjanna, sem búsettur er í Noregi, hefur enn ekki höfðað innsetningarmál til að fara fram á að fá þá afhenta, líkt og búist var við að hann gerði. Edda segir hann augljóslega hafa sett það í forgang að eltast við hana og að reyna fá hana fyrir dóm í Noregi. „Það eina sem hann hefur áhuga er að ná mér, öll þessi orka fer í mig,“ segir Edda. Þetta snúist um hefnd af hans hálfu. Hann vilji ná sér niðri á henni. Móðir drengjanna þriggja verður ekki framseld til Noregs Félag sjúkrahúslækna lýsir yfir áhyggjum vegna opinberrar um- fjöllunar um einstaka atvik í heilbrigðismálum „og mikillar dóm- hörku á samfélagsmiðlum í kjölfarið í umræðu um slík mál“. Aðalfundur félagsins var haldinn í síðustu viku í Kópavogi. Félagið er eitt fjögurra aðildarfélaga Lækna- félags Íslands og eru félagar þess um 450 læknar sem starfa á sjúkra- húsum og heilbrigðisstofnunum. „Heilbrigðisstarfsmenn eru bundnir þagnarskyldu og geta því ekki tjáð sig eða varið opinberlega. Öll umræða í kjölfar atvika verður því óneitanlega mjög einhliða þar sem annar aðili málsins má ekki tjá sína hlið málsins,“ segir í ályktun sem samþykkt var á aðalfundinum. Þar segir einnig að þó sé eðlileg heilbrigð gagnrýni alltaf réttmæt og að fagna beri tillögum til úrbóta. „Á sama tíma eru hins vegar dæmi um rangar fullyrðingar og ásakanir, en engin leið fyrir við- komandi lækni að stíga fram til að leiðrétta rangan málflutning eða verja nafn sitt.“ Er biðlað til fjölmiðla að taka til- lit til takmarkana heilbrigðisstarfs- manna til að svara fyrir sig. Aðalfundurinn telur einnig brýnt að hafi sjúklingur tjáð sig opinber- lega um mál er snúa að nafngreind- um læknum megi líta svo á að lækn- irinn hafi heimild til þess að leiðrétta rangfærslur í fjölmiðlum. Þá telja læknarnir þörf á úrræð- um fyrir sjálfstætt starfandi um- boðsmann sjúklinga og að umræða í fjölmiðlum endurspegli það. Aðalfundurinn lagði einnig fram kröfu um að stjórnvöld og heil- brigðisstofnanir landsins ráðist í að- gerðir til að hindra brottfall lækna vegna kulnunar þar sem margt bendi til að kulnun lækna vegna langvarandi álags sé vaxandi vanda- mál. Áhyggjur af umræðunni - Læknar vilja eiga þess kost að leiðtrétta rangfærslur Morgunblaðið/Eggert Spítali Sjúkrahúslæknar hafa áhyggjur af opinberri umræðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.