Morgunblaðið - 26.05.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Kristrún Frostadóttir, verðandi
formannsframbjóðandi Sam-
fylkingarinnar og fyrrverandi
bankastarfsmaður, fann að því á
þingi í fyrradag að fólk keypti
íbúðir sem ekki ætl-
aði sjálft að búa í
þeim. Þetta átti ber-
sýnilega að skýra
hátt fasteignaverð,
en Kristrún hefur
lagt mikið á sig til
að reyna að sýna
fram á að það sé
ekki meirihluta
Samfylkingar Dags B. Eggerts-
sonar í borginni að kenna að allt of
lítið hefur verið skipulagt til bygg-
inga og þar með byggt.
- - -
Ekki er langt síðan lágum vöxt-
um Seðlabankans var kennt
um fasteignaverðið sem Samfylk-
ingin hefur keyrt upp í höfuð-
borginni en nú eru það ósvífnir
fjárfestar sem bera ábyrgðina.
- - -
Til að „sanna“ þetta tók Krist-
rún tölur frá árinu 2005 og
þróunina síðan en láðist að geta
þess að breyting varð á mark-
aðnum skömmu síðar, aðallega á
árunum 2006-2009, þegar lög-
aðilum og einstaklingum sem eiga
fleiri en eina íbúð fjölgaði hlut-
fallslega.
- - -
Frá þeim tíma, í um eða yfir
áratug, hefur nánast engin
breyting orðið á þessu, sem bendir
til, þvert á það sem Kristrún hélt
fram í ræðu sinni, að kaup fjár-
festa á íbúðarhúsnæði hafi ekkert
með verð á markaði að gera nú.
- - -
Skiljanlegt er að Samfylkingin
vilji koma sökinni á háu hús-
næðisverði annað, en sú þrá breyt-
ir því ekki að ábyrgðin liggur fyrst
og fremst í rangri stefnu meiri-
hlutans í Reykjavík undir forystu
Samfylkingarinnar.
Kristrún
Frostadóttir
Villandi talnaleikur
um íbúðaverð
STAKSTEINAR
Læknar á heilsugæslustöðvum
landsins voru með nærri 643 þúsund
viðtöl við einstaklinga á seinasta ári
ef tekið er mið af fjölda koma til
læknanna á stöðvunum yfir allt árið.
Þetta samsvarar 1,7 viðtölum á
hvern íbúa. Þessar upplýsingar má
finna í Talnabrunni landlæknis sem
birtur var í gær um starfsemi heilsu-
gæslustöðva. Á seinasta ári var
heildarfjöldi skráðra samskipta við
einstaklinga á heilsugæslustöðvum
ríflega 2,7 milljónir, eða sem sam-
svarar nærri 7,7 samskiptum á
hvern íbúa og var aðsóknin umtals-
vert meiri en á árinu á undan.
„Um 326 þúsund manns nýttu sér
þjónustu heilsugæslunnar árið 2021
eða nærri 88% allra landsmanna. Er
það heldur hærra hlutfall en árið
2020 þegar 84% íbúa leituðu til
heilsugæslunnar. Þá áttu tæplega
244 þúsund einstaklingar viðtal við
lækni á heilsugæslustöðvum lands-
ins í fyrra, eða um 65% allra íbúa,“
segir í greininni.
Fram kemur að aðsókn á heilsu-
gæslustöðvarnar er breytileg eftir
staðsetningu þeirra á landinu. Kom-
ur á stöðvarnar voru fæstar á Suð-
urnesjum í fyrra eða 2,3 á hvern
íbúa. Litlu fleiri á Vestfjörðum (2,5 á
íbúa) en flestar hins vegar á Austur-
landi eða 3,7 á íbúa. Í fyrra voru
hjúkrunarfræðingar sú starfsstétt á
heilsugæslustöðvunum sem sinnti
næststærstum hluta viðtala á eftir
læknum eða liðlega 279 þúsund við-
tölum.
Enn fremur kemur fram að konur
nýta þjónustu heilsugæslunnar í
talsvert meiri mæli heldur en karlar
og flest samskipti voru vegna yngsta
aldurshópsins, þ.e.a.s. barna undir
eins árs aldri. Átti hvert barn í þeim
aldurshópi að jafnaði um sex komur
á heilsugæslustöðvar á árinu 2021.
omfr@mbl.is
643 þúsund komur skráðar til lækna
- Þorri þjóðarinnar notfærði sér þjónustu heilsugæslunnar á landinu í fyrra
Íslendingar eru neðarlega á lista í
samanburði á útbreiðslu háskóla-
menntunar meðal 25 til 34 ára í 30
Evrópulöndum. Í nýjum samanburði
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins, á hversu margir hafa lokið
menntun á háskólastigi í Evrópu-
löndum á seinasta ári kemur fram að
41,5% Íslendinga á aldrinum 25 til
34 ára hafa lokið háskólanámi. Hlut-
fallið er hærra í 19 Evrópulöndum
en tíu lönd eru fyrir neðan Ísland í
þessum samanburði. Lúxemborg
trónir á toppnum. Þar hafa 62,6%
fólks á þessum aldri lokið háskóla-
námi og Írland er í öðru sæti en þar
er hlutfallið 61,7%. Mikill munur er
þó á stöðu landanna og er meðaltalið
í 27 löndum Evrópusambandsins
svipað og á Íslandi eða 41,2%.
Kynjabilið hefur stækkað
Skýr munur er á háskólamenntun
kynjanna. Í öllum löndunum höfðu
47% kvenna á aldrinum 25 til 34 ára
lokið menntun á háskólastigi á sein-
asta ári en hlutfallið var 36% meðal
karla. Á Íslandi voru hlutföllin 33,9%
meðal karla en 50,2% meðal kvenna
á þessu aldursbili á árinu 2021.
Bent er á í umfjöllun Eurostat um
stöðuna meðal allra Evrópuþjóð-
anna að þótt sífellt fleiri Evrópubúar
á aldrinum 25 til 34 ára ljúki há-
skólanámi hefur vöxturinn á umliðn-
um árum verið mun meiri meðal
kvenna en karla og kynjabilið því
aukist.
Lönd Evrópusambandsins hafa
sett sér það markmið að hlutfalli 25
til 34 ára sem hafa lokið háskólanámi
verði komið yfir 45% á árinu 2030 og
hefur um helmingur ESB-landanna
þegar náð þessu marki.
Í 20. sæti á lista yfir
háskólamenntun
- Mikill kynjamunur
25-34 ára sem hafa
lokið háskólanámi
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Brautskráning 41,5% fólks 25-34
ára eru með háskólanám að baki.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/