Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 BAKSVIÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga hafa ekki einungis skilað flókinni stöðu í Reykjavík, því í höfuðstað Norðurlands hefur nýkjörnum bæj- arfulltrúum gengið erfiðlega að mynda meirihluta. Greint var frá því í gær að slitnað hafi upp úr hinum svo- kölluðu BDSM-viðræðum á Akureyri hjá Framsóknarflokki, Sjálfstæð- isflokki, Samfylkingunni og Mið- flokki. Samfylkingin sleit viðræðunum en áður hafði slitnað upp úr meirihluta- viðræðum á milli Sjálfstæðisflokks- ins, Framsóknar og Bæjarlistans. Sunna Hlíf Jóhannesdóttir, oddviti Framsóknar, sagði við mbl.is í gær að nú væru einfaldlega allir að tala við alla. Rósa tekur þrjú ár í viðbót Í Hafnarfirði var hins vegar gengið frá því í gær að Rósa Guðbjartsdóttir verður áfram bæjarstjóri næstu þrjú árin en hún tók við embættinu árið 2018. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hélt velli en hlutföllin breyttust hvað það varðar að Framsókn bætti við sig manni en Sjálfstæðisflokkurinn tapaði manni á milli kosninga. Oddviti Framsóknar, Valdimar Víðisson, verður bæjarstjóri fjórða og síðasta ár kjörtímabilsins. Valdi- mar er Bolvíkingur sem búið hefur lengi í Hafnarfirði. Hefur hann gegnt starfi skólastjóra Öldutúnsskóla í Hafnarfirði frá árinu 2013. Tíðindi í Mosfellsbæ Framsókn, Samfylkingin og Við- reisn hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Mosfellsbæ en þar féll meirihluti Sjálfstæð- isflokks og Vinstri grænna. Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti Fram- sóknar, verður formaður bæjarráðs en Anna Sigríður Guðnadóttir, odd- viti Samfylkingarinnar, og Lovísa Jónsdóttir, oddviti Viðreisnar, munu gegna embætti forseta bæjarstjórnar á tímabilinu. Samkvæmt frétta- tilkynningu verður lagt til á fyrsta fundi bæjarráðs að fara í ráðning- arferli til að finna bæjarstjóraefni. Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélagið og voru þar tæplega tíu þúsund á kjörskrá. Viðræður ganga vel Í næstfjölmennasta sveitarfé- laginu, Kópavogi, ættu línur að skýr- ast fyrir helgi. Meirihluti Sjálfstæð- isflokks og Framsóknar hélt og samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins ganga viðræður um áframhald- andi samstarf vel. Þar varð sama niðurstaða og í Hafnarfirði hvað það varðar að Framsókn bætti við sig manni frá síð- ustu kosningum en sjálfstæðismenn misstu einn. Hvernig sem fer verða bæjarstjóraskipti því Ármann Kr. Ólafsson lætur af störfum. Oddvit- arnir Ásdís Kristjánsdóttir hjá Sjálf- stæðisflokki og Orri Hlöðversson hjá Framsóknarflokki munu bæði vera opin fyrir því að taka við af Ármanni. Algengt munstur Í Reykjanesbæ liggur niðurstaðan fyrir og þar munu sjálfstæðismenn og framsóknarmenn vinna saman eins og nokkuð víða. Eru flokkarnir með sex bæjarfulltrúa af ellefu. Þar urðu breytingar því á síðasta tímabili en þá myndaði Framsókn meirihluta með Samfylkingunni og Beinni leið. Þessir flokkar gátu haldið meiri- hlutasamstarfi áfram, hefði verið til þess vilji. Sama staða er uppi á teningnum í Múlaþingi en tilkynnt var í vikunni að þar muni Sjálfstæðisflokkur og Framsókn vinna saman. Er meiri- hlutinn með sex fulltrúa af ellefu. Stefnt er að því að Björn Ingimars- son sveitarstjóri gegni starfinu áfram. Jónína Brynjólfsdóttir, odd- viti B-lista, verður forseti sveitar- stjórnar og Berglind Harpa Svav- arsdóttir, oddviti D-lista, formaður byggðaráðs. Nýr meirihluti á Skaganum? Nokkuð hitnaði í kolunum á Akra- nesi þegar upp úr viðræðum slitnaði hjá Framsókn og Samfylkingunni um að halda meirihlutasamstarfi áfram. Í framhaldi hóf Samfylkingin viðræður við Sjálfstæðisflokkinn en athyglis- verð niðurstaða kom upp úr kjör- kössunum á Skaganum því flokkarnir þrír fengu þrjá bæjarfulltrúa hver í níu manna bæjarstjórn. Í gærkvöldi hafði verið boðað til fundar í full- trúaráðum flokkanna sem eru í meirihlutaviðræðum. Samkvæmt frétt á Skessuhorni í gær gæti nýr meirihluti orðið til fyrir helgi að því gefnu að drög að samstarfinu falli í kramið. Þegar skoðuð eru önnur sveitar- félög með 5 þúsund íbúa eða fleiri þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í Garðabæ, Árborg og á Seltjarnarnesi. Um stöðuna í höfuð- borginni er fjallað annars staðar í blaði dagsins. Meirihlutar að taka á sig mynd - Víða hlýtt á milli sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í stærri sveitarfélögunum - Viðræðum að ljúka í Kópavogi - Niðurstaða liggur fyrir í Hafnarfirði og Mosfellsbæ - Galopið á Akureyri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kópavogur Oddvitarnir Orri Hlöðversson og Ásdís Kristjánsdóttir eru í meirihlutaviðræðum. Að óbreyttu fer Almar Guðmunds- son, oddviti sjálfstæðismanna, í embætti bæjarstjóra í Garðabæ á næsta kjörtímabili. Valdimar Víð- isson, oddviti Framsóknarflokks- ins, verður að óbreyttu bæjarstjóri í Hafnarfirði 2025 til 2026 eða síð- asta ár kjörtímabilsins. Fyrir áhugafólk um ættfræði má nefna að töluverður skyldleiki verður með bæjarstjórunum í ná- grannasveitarfélögunum Garðabæ og Hafnarfirði, fari svo að Almar og Valdimar verði bæjarstjórar á sama tíma eins og lagt er upp með. Guðmundur Baldur Sigur- geirsson, faðir Almars, og Jón Eggert Sigurgeirsson, afi Valdi- mars, voru bræður og ólust upp í Bolungarvík. Frændur verða bæjarstjórar ÆTTFRÆÐI STJÓRNMÁLAMANNA Almar Guðmundsson Valdimar Víðisson Eigendur 19,64% hlutar í Hrað- frystihúsinu Gunnvör í Hnífs- dal hafa selt hlut sinn í félaginu. Kaupandi er Jak- ob Valgeir ehf., sem rekur hundr- að manna útgerð- ar- og fiskvinnslu- fyrirtæki í Bolungarvík. Söluverð hlutarins er trúnaðarmál, segir í tilkynningu. Hraðfrystihúsið Gunnvör rekur frystitogara, ísfiskskip, innfjarð- arrækjubáta, fiskvinnslu í landi og fiskeldisstarfsemi gegnum dótt- urfélag. Um 130 manns starfa hjá fyrirtækinu. Seljendur hlutarins eru systkinin Guðmundur, Kristinn Þórir, Ólöf Jóna og Steinar Örn Kristjánsbörn. Hluturinn hefur verið í eigu fjöl- skyldunnar í áratugi. Jakob Valgeir Flosason segist þakklátur fyrir að vera treyst fyrir stórum hlut í „einu mikilvægasta fyrirtæki Vestfjarða“. Jakob kaupir í Gunnvöru - 20% hlutur skiptir um eigendur Jakob Valgeir Flosason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.