Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 22

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 HML8000 10.995.- / St. 28-38 HML8000 10.995.- / St. 28-38 Reach 300 9.995.- / St. 26-35 Reach 300 9.995.- / St. 26-35 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE Hummel strigaskór betur. Það er það sem ég gerði þegar ráðuneytið tók til starfa í byrjun þessa árs og mun gera áfram.“ Skýrt hlutverk Hún segir að á fyrstu hundrað dögum ráðuneytisins hafi tekist að ljúka við átta af þeim þrettán að- gerðum sem lagt var upp með, en ráðuneytið fer meðal annars með VIÐTAL Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Stjórnkerfið í heild sinni, bæði stjórnsýslan og stjórnmálamenn, þarf að leggja meira af mörkum til að efla samkeppnishæfni Íslands og auka útflutningstekjur til lengri tíma. Þannig er lagður grunnur að aukinni hag- sæld hér á landi. Þetta segir Lilja D. Alfreðs- dóttir, menning- ar- og viðskipta- ráðherra, í samtali við Morgunblaðið, en hún mun á næstu dögum kynna nánar aðgerðaáætlun ráðuneytis síns fram að áramótum. „Okkur er alvara þegar við segj- um að við viljum skapa aukna hag- sæld og vaxa til meiri velsældar og þeim orðum þurfa að fylgja aðgerð- ir,“ segir Lilja. „Ég lít þannig á að við sem störf- um í stjórnmálum þurfum að setja okkur markmið um að auka gegnsæi og kynna áætlanir okkar málaflokka ferðaþjónustu, fjölmiðla, menningar og viðskipta. „Við settum á fót skrifstofu verð- mætasköpunar og vorum svo hepp- in að fá þar Daníel Svavarsson til að stýra þeirri skrifstofu,“ segir Lilja. „Tækifæri í verðmætasköpun eru gífurleg hér á landi og við ætlum okkur að nýta þau. Við viljum styrkja umgjörð atvinnulífsins og stjórnkerfið þarf að leggja sitt af mörkum og einbeita sér meira að verðmætasköpun, hvort sem það er á sviði viðskipta, lista og menning- ar, nýsköpunar, ferðaþjónustu, auð- lindanýtingar og þannig mætti áfram telja. Þetta er nýr tónn sem stjórnmálamenn slá í dag en það mun gagnast samfélaginu til lengri tíma.“ Kvikmyndir skapa gjaldeyri Hvað auknar gjaldeyristekjur varðar þá segir Lijla að horfa verði til fleiri þátta en ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orkuframleiðslu. Þar nefnir hún hugverkaiðnað og kvikmyndaframleiðslu sem dæmi, en hún lagði nýverið fram frumvarp þar sem lagt er til að stærri kvik- myndaverkefni geti sótt um allt að 35% endurgreiðslu framleiðslu- kostnaðar. „Það mun hvort tveggja í senn bæta samkeppnisstöðu okkar til muna, því það er mikil samkeppni um verkefni sem þessi á milli landa, og skapa auknar gjaldeyristekjur og störf hér á landi,“ segir Lilja. „Það eru nú þegar stór verkefni í burðarliðnum og margir hafa sýnt því áhuga að koma hingað með verkefni á næstu misserum og ár- um. Þá eru einnig ýmis tækifæri til að auka tekjur af sviðslistum og tónlist, svo dæmi séu tekin, en þar eigum við mikið af hæfileikaríku fólki sem mun skapa mikil verð- mæti, bæði í efnahagslegu og fé- lagslegu tilliti.“ Ríkisstjórnin samstíga Hún segir ríkisstjórnina samstíga í þessum málum og vísar meðal annars til þess að Áslaug Arna Sig- urbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hafi talað fyrir því að auka svigrúm erlendra sérfræðinga til að búa og starfa á Íslandi, sem sé mikilvægur liður í verðmætasköpun og muni einnig færa aukna þekkingu til landsins, sem muni gagnast Íslendingum. Aðspurð hvort stjórnmálamenn hafi aðhafst nóg til að styrkja stoðir skapandi greina, segir Lilja að það hafi verið talað um það lengi en ekki sé nóg að gert. „Við erum að breyta því, meðal annars með því að stofna skrifstofu verðmætasköpunar, sem tekur til fjölbreyttra þátta. Það er hins veg- ar rétt að stjórnmálamenn mega gera meira, en hér stígum við mik- ilvæg skref sem munu gagnast hag- kerfinu okkar í framtíðinni og þar með auka lífsgæði hér á landi,“ seg- ir Lilja. Setja fókus á verðmætasköpun - Ráðherra segir gífurleg tækifæri í verðmætasköpun hér á landi - Stjórnmálamenn þurfi að setja skýrari markmið og hafa þau aðgengileg - Mikil samkeppni er milli landa um kvikmyndaverkefni Tækifæri Sjónvarpsserían vinsæla Game of Thrones var að hluta tekin upp hér á landi, meðal annars á Þingvöllum, og vakti mikla athygli á landinu. Morgunblaðið/Hari Lilja Alfreðsdóttir Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Mikilvægt er að efla þátttöku barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi, enda ljóst að skipu- lagt starf er mikilvæg félagsleg og heilbrigðisleg forvörn. Þetta sagði Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra meðal annars þegar hann opnaði málþing í gær um þátttöku barna og ung- menna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Málþingið var haldið af ÍSÍ og UMFÍ. Eyða þurfi hangsi úr lífi barna Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari við íþrótta- deild Háskólans í Reykjavík, fór yf- ir niðurstöður kannana sem lagðar eru fyrir grunnskólabörn ár hvert. Sjötíu og fimm prósent af vöku- tíma barna á Íslandi eru frítími, að sögn Margrétar. Þar af leiðandi sé mikilvægt að börn sæki skipulagða starfsemi í umsjón fullorðins fag- aðila, og hangsi sé eytt út úr dag- skránni. „Börnum í íþróttum líður betur, þau sofa meira, eru hamingjusam- ari og gengur betur í námi.“ Þar að auki sé íþróttaiðkun góð leið til að aðlagast samfélaginu. Sjáanlegur munur er á þeim börnum sem koma frá íslenskumæl- andi heimilum, samanborið við börn frá heimilum þar sem önnur tungumál eru töluð. Þau fyrr- nefndu eru ólíklegri til að sækja skipulagt íþróttastarf. Til að mynda taka 82 prósent barna frá íslenskumælandi heim- ilum, í fyrsta til öðrum bekk, þátt í skipulögðu starfi að minnsta kosti einu sinni í viku, en ekki nema 62 prósent af börnum frá heimilum þar sem annað tungumál er talað. Sendiherrar brúa bilið „Það er ekki nóg að opna bara faðminn, við verðum að sækja þessa einstaklinga,“ sagði Jóhannes Guð- laugsson, verkefnastjóri þjónustu- miðstöðvar Breiðholts. Hann hefur að undanförnu stýrt verkefninu „Frístundir í Breiðholti“ þar sem markmiðið er að ná fram aukinni þátttöku, félagslegri virkni og sam- tvinningu íslenskrar tungu inn í frí- stundastarfið. Öflug kynningarmál eru lykilatriði í hans huga. Bæði þarf að ná til barnanna og foreldr- anna, en einnig til annarra umsjón- araðila, svo sem kennara, sem verði að átta sig á sínu hlutverki. Kenn- arar þurfi að koma auga á hvaða börn taki ekki þátt í nokkurri skipulegri íþróttaiðkun. Svokallaðir sendiherrar Breið- holts eru fólk sem Jóhannes hefur fengið til þess að brúa bilið milli kerfisins og innflytjenda. María Sastre er einn af umrædd- um sendiherrum og hún útskýrði hlutverk sitt á málþinginu. „Við erum innflytjendur sem get- um talað íslensku. Við erum með gott tengslanet við aðra innflytj- endur sem tala okkar móðurmál. Okkar hlutverk er að brúa bilið milli ólíkra þjóða og menningar- heima í hverfinu,“ sagði hún. Fjölmenning í íþróttum Kynþáttafordómar og útilokun eru vandamál í íþróttahreyfing- unni, að sögn Semu Erlu Serdar, framkvæmdastýru Æskulýðsvett- vangsins. Á málþinginu kynnti hún stefnu um þátttöku barna af erlend- um uppruna í skipulagðri íþrótta- starfsemi, sem miðar að því að koma í veg fyrir mismunun. Börn af erlendum uppruna sem taki þátt í íþróttastarfsemi þurfi að upplifa að þau séu velkomin, þau séu virkir þátttakendur, tilheyri heild og upp- lifi öryggi. „Verðum að sækja þessa einstaklinga“ - Málþing um þátttöku barna af erlendum uppruna í íþróttastarfi Morgunblaðið/RAX Fótboltaiðkendur Börnum í skipulögðu íþróttastarfi líður betur, þau sofa betur, eru almennt hamingjusamari og gengur betur í námi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.