Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 26

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC 2 fyrir1 af margskiptum glerjum TILBOÐ þúsund aðgöngumiðar verið seldir. Venjulega koma margir gestir er- lendis frá. Magnús segir að víða sé enn verið að glíma við kórónuveiru- faraldurinn og því erfitt að átta sig á því hvort hestaáhugafólk ákveði að sitja heima eða skella sér á lands- mót. Hann hefur þó orðið var við áhuga þar sem erlendir gestir hafi verið að leita eftir aðstoð við að finna gistingu. Fólk sé að ákveða þetta um þessar mundir. Telur hann að allir eigi að geta fundið gistingu við hæfi, þótt líklega sé þétt bókað í næsta nágrenni mótsstaðar. Velja hesta og knapa Um þessar mundir og næstu daga og vikur verða kynbótahross og gæðingar valdir inn á mótið. Það fer fram á sérstökum mótum úti í hér- uðum. Sömuleiðis kappreiðahross. Meðal nýmæla á landsmótinu á Hellu er að þar verður efnt til íþróttakeppni. Magnús tekur fram að íþróttakeppni hafi verið áður á landsmótum en nú sé hún tekin með beinum hætti inn í dagskrána. „Landsmót er stærsti viðburð- urinn í Íslandshestamennskunni í heiminum. Okkur finnst að þar eigi allir bestu knaparnir og hestarnir heima,“ segir Magnús. Nefnir hann sem dæmir að besti fjórgangari landsins árið 2018, Flaumur frá Sól- vangi, hafi verið inni í hesthúsi allt síðasta landsmót vegna þess að eng- in grein var fyrir hann. Hann hafi síðan keppt á Heimsleikum íslenska hestsins. Alltaf er keppt í tölti en nú er bætt við fjórgangi, fimmgangi, gæðingaskeiði og slaktaumatölti. Tuttugu efstu hestar á stöðulista í hverri grein vinna sér rétt til þátt- töku en þrjátíu í töltinu eins og verið hefur. Tekur Magnús fram að gæðinga- keppnin verði eigi að síður aðalgrein landsmótsins, eins og alltaf hefur verið. Risatjöld fyrir þjónustu Mótssvæðið á Rangárbökkum er þekkt stærð og það hefur lítið breyst nema hvað gróðurinn tekur sífellt betur við sér. Hann veitir visst skjól. Tveir vellir verða notaðir en þeir eru beggja vegna við gras- brekkuna. Brekkurnar geta tekið við miklum fjölda gesta, eins og reynslan sýnir. Risatjald verður fyrir veitinga- sölu, 90 metra langt og 15 metra breitt. Þar að auki verður markaðs- tjald og útimathöll. Þessi þjónusta verður öll í hjarta mótssvæðisins. Kvöldskemmtanir og dansleikir verða á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldi. Páll Óskar, Helgi Björns og Paparnir eru meðal þeirra sem skemmta gestum. Skipuleggj- endur búa svo vel að hafa tvö lands- mótslög. Landsmótsnefndin fékk af- not af lagi sem Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans í handknatt- leik, samdi. Þá samdi Fríða Hansen frá Leirubakka landsmótslag með Hreimi úr Landi og sonum. Til við- bótar má nefna að samið var lands- mótslag fyrir mótið 2020 sem aldrei var haldið. Magnús segir að lögin séu ólík og á von á því að þau verði öll flutt á mótinu. Lýkur á laugardagskvöldi Ákveðið hefur verið að reiðhöllin og nýtt svæði sem skipulagt hefur verið fyrir hesthús Hellubúa verði girt af. Það svæði verði tekið frá fyr- ir knapana og þeirra nánustu að- stoðarmenn. Magnús sagði mikil- vægt að veita knöpunum næði til að undirbúa sig og hesta sína fyrir keppni. Það sé forsenda góðs móts. Mótið hefst sunnudaginn 3. júlí. Eins og venjulega fer það hægt af stað með forkeppnum í ýmsum greinum en spennan fer stígandi eft- ir því sem líður á vikuna. Mótið verður formlega sett á fimmd- agskvöldi og keppni lýkur laug- ardagskvöldið 9. júlí með úrslitum í A-flokki gæðinga og Papa-balli. Það er nýjung á Hellu því áður hafa síð- ustu úrslit verið á sunnudegi. Magn- ús segir að þetta sé gert til þess að dreifa umferðarálagi. Sunnudaginn 10. júlí skipuleggur verkefnið Hor- ses of Iceland opið hús hjá hrossa- ræktarbúum í nágrenninu. Reiknar Magnús með að margir gestir muni nýta sér það. Hlakka til að sjá sem flesta Magnús tekur fram að sveitar- félögin á svæðinu hafi verið ákaflega velviljuð, sérstaklega Rangárþing ytra, og það hjálpi mikið. Nú eru skipuleggjendur að púsla saman síð- ustu kubbunum. Magnús tekur fram að stór hópur af samstilltu fólki standi að verkefninu. „Ég er viss um að þetta verður stórkostlegt mót og ég hlakka til að sjá sem flesta gesti,“ segir hann. Eftirvænting í hestasamfélaginu - Skipuleggjendur Landsmóts hestamanna á Hellu búa sig undir að taka við mörgum gestum - Hestamenn vilja hittast eftir langt hlé - Meiri áhersla lögð á íþróttagreinar en á fyrri landsmótum Morgunblaðið/Eva Björk Stemmning Áætlað er að um 10 þúsund gestir hafi sótt Rangárbakka heim í júlí 2014, síðast þegar Landsmót hestamanna fór fram á Hellu. Morgunblaðið/Ómar Breiðfylking Hefðbundið er að forystumenn og sérstakir gestir ríði með íslenska fánann í fararbroddi hópreiðar hestamanna við setningu landsmóts. SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skipuleggjendur Landsmóts hesta- manna sem haldið verður á Rangár- bökkum á Hellu í júlí vonast eftir góðu móti og góðri aðsókn. Finna þeir fyrir þörf hestamanna til að koma saman og taka þátt í eða fylgj- ast með góðu móti eftir langt hlé vegna heimsfaraldurs. Landsmót var skipulagt á Hellu á árinu 2020 en því var frestað vegna kórónuveiru- faraldursins. Magnús Bene- diktsson fram- kvæmdastjóri segir að þótt mót- ið hafi verið lengi í undirbúningi hafi óvissa lengi verið uppi og því tími til að ganga frá samningum og vinna að raun- verulegum undirbúningi ekki verið langur. Hann segir að fyrir löngu hafi verið ákveðið að halda mótið en óvissan hafi verið um það hvernig mót. Hvort það yrði mót í beinni út- sendingu án áhorfenda, mót með takmörkuðum fjölda áhorfenda í samræmi við gildandi samkomu- takmarkanir eða stórt mót eins og nú verður haldið. Stór hluti af skipu- lagningunni felist í þjónustu við gesti og ekki hægt að skipuleggja þá þætti fyrr en ljóst varð hvernig mót ætti að halda. „Það fór loks allt í gang upp úr áramótum,“ segir Magnús. „Loksins landsmót“ Mótið á Hellu verður haldið dag- ana 3. til 10. júlí. Magnús segir mót- ið langþráð og að það ríki mikil eftir- vænting í hestasamfélaginu. „Það ætla allir á landsmót enda fannst okkur vel við hæfi að hafa kjörorð mótsins: „Loksins landsmót,“ eftir þessa löngu bið,“ segir Magnús. Landsmót á Hellu hafa oft verið fjölsótt og í ljósi þess og aðstæðna nú gera skipuleggjendur sér vonir um fjölmenni. „Við vitum að það koma frábærir hestar og bestu knapar landsins, auk tuga keppenda í barna- og unglingaflokkum. Við vitum hins vegar ekki hvernig veðrið verður, það er alltaf stóri óvissuþátt- urinn í landsmótshaldi. Við horfum ákveðið til þess að mótið verði í blíðu veðri og miðum okkur við það. Ef það gengur eftir er frábært lands- mót fram undan,“ segir Magnús. Miðasala gengur vel, að sögn Magnúsar, þegar hafa tæplega þrjú Magnús Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.