Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 29

Morgunblaðið - 26.05.2022, Side 29
Morgunverður meistaranna Á keppnisferðalagi í Dúbaí. Knut segir Íslend- inga bera mikla virðingu fyrir kraftasporti, annað en Norðmenn. náttúrlega þetta sem gerðist í Suður- Ameríku,“ segir Marte og vísar til þess þegar hún veiktist nóttina fyrir Opna Suður-ameríska mótið í body fitness í Buenos Aires í Argentínu í desember, spjó næturlangt og endaði með því að tapa einu kílói í stað þess að fara kílóinu þyngri á sviðið. Varð hún að gera sér sjötta sætið að góðu þar. Þá hefur Knut orðið fyrir barðinu á matareitrun í keppnisferð en sé talinu snúið í örlítið jákvæðari átt eru þau hjón sammála um að keppnisferðalög til Asíu séu nánast uppljómun og æðsta stig allrar upp- lifunar. „Ég þekki til á Íslandi og ég veit að þið Íslendingar berið mikla virðingu fyrir kraftasporti, vaxtarrækt, lyft- ingum og því sem þetta snýst um. Norðmenn eru allt öðruvísi, „we don’t care“ slettir Knut, hérna kemst maður ekki einu sinni í blöðin. Allt snýst um skíðagöngu, handbolta og fótbolta. En þegar þú kemur til Dúbaí, Kína, Taílands og Japans er aldeilis annað upp á teningnum, þar er vaxtarræktin risastór. Við vorum nánast tekin í guðatölu í Kína, stopp- uð þar á götu í tíma og ótíma og kannski 20 manns að taka myndir af okkur í einu,“ segir Knut frá og þau Marte rifja upp atvinnumannamótið „Belt and Road“ í Xian í Kína haustið 2019. „Ég var í líkamsræktarstöð þarna að æfa fyrir mótið,“ segir Marte frá. „Þar kom til mín kona sem talaði enga ensku og náði að þýða með hjálp símans síns spurningu um hvort ég væri að fara að keppa. Ég játaði að svo væri og þá varð bara allt vitlaust í salnum, fólk þyrptist að mér úr öllum áttum og ég vissi ekk- ert hvaðan á mig stóð veðrið,“ segir Marte með bros á vör og bætir því við að mótið í Kína hafi einfaldlega verið svakaleg upplifun. „Sviðið var 163 metra langt, þetta var bara eins og maður væri í sunnu- dagsgöngutúr. Og öll umgjörðin, svakaleg tónlist og ljóskastarar, risa- stórir skjáir alls staðar. Kínverjarnir gera allt svo stórt, þetta var alveg ótrúleg upplifun. Þarna lenti ég í þriðja sæti og verðlaunin voru bara greidd út í reiðufé, ég fékk afhentan þvílíkan stafla af seðlum að þurfti nánast hjólbörur. Ég hélt að þetta væru milljónir. Svo var þetta nú ekk- ert eins mikið og það virtist þegar upp var staðið,“ segir Þrándurinn glaðhlakkanlega. „Að sjá Marte koma upp á þetta svið og heyra allt verða vitlaust í fagnaðarlátum var ein af mínum stærstu upplifunum,“ segir Knut af Kínaförinni, „ég fer nú bara næstum því að gráta við að hugsa um þetta,“ játar hann og reyndar virðist gljástig augna kjötfjallsins breytast örlítið samtímis þeirri yfirlýsingu. Þau hjón eru alltént sammála um að fátt slái Asíulöndin út hvað viðkemur áhuga á vaxtarrækt og umgjörð móta en Knut tekur þó sérstaklega fram að af Norðurlöndunum eigi greinin sér klárlega mest fylgi á Íslandi. Háði hildina við Magga Bess Við höldum okkur örlítið við Ísland áfram, blaðamaður veitti því athygli í viðtalsundirbúningi að Knut og Magnús Bess, einn sigursælasti vaxt- arræktarmaður sem land elds og ísa hefur uppfóstrað við sitt brjóst, eru tengdir á Facebook. Hvernig stend- ur á þessu? „Við höfum keppt á móti hvor öðr- um, það var á HM á Spáni 2019, við vorum þá í sama flokki og hann hafði mig, tók 6. sætið og ég lenti í 7. Það var árið áður en ég varð heimsmeist- ari, líka á Spáni. Svo hef ég hitt Magga oftar, til dæmis á Oslo Grand Prix-mótinu, við borðuðum saman eftir það mót,“ segir Knut af kynnum þeirra og ber Magnúsi vel söguna. „Maggi er svakalega flottur vaxtar- ræktarmaður og mikill kunnáttu- maður í sportinu svo ekki sé minnst á hve viðkunnanlegur hann er. Ég ber mikla virðingu fyrir honum,“ lýkur Norðmaðurinn frásögninni af þessari samnorrænu ástríðu þeirra Magn- úsar, vaxtarræktinni. Talið berst að fyrirkomulagi æf- inga og verður Marte þar fyrst fyrir svörum. „Ég æfi á ferskiptu kerfi, tek allan líkamann á fjórum dögum og mínar æfingar eru auðvitað mjög fitness-miðaðar, þar sem áherslan er öll á mjög fíngerðan skurð og að ýmsir smærri vöðvar séu dregnir mjög vel fram. Þessu fylgir töluvert mikil þolþjálfun og fitubrennsla og svo er mataræðið auðvitað það mik- ilvægasta …“ „Við æfum almennt sex daga í viku,“ grípur Knut fram í en eigin- konan er fljót að hrifsa orðið til baka: „Nei nei, við æfum sjö daga vik- unnar,“ og þau sættast á sex eða sjö. „Við æfum mikið saman,“ segir Knut, „eini gallinn er að hann æfir svo hægt, hann er alltaf að taka pásur,“ skýtur Marte inn í og gjóar augunum glettnislega að eiginmanni sínum. Knut játar að með aldrinum hafi hann dregið úr þyngdum og fjölgað heldur endurtekningum til að draga úr hættu á meiðslum. „Þegar ég var 53 ára lyfti ég 300 kílóum í réttstöðu- lyftu, 210 í bekk og fimm sinnum 250 í hnébeygju en nú er ég hættur í þessum þyngdum, lyfti léttara og er almennt í átta til 16 endurtekningum í hverju setti,“ segir hann og bætir því við að þungar lyftur gagnist vel yngri lyftingamönnum. „Þetta er bara orðið of áhættusamt fyrir mig á þessum aldri.“ Einum kennt – öðrum bent Knut og Marte eru bæði iðin við að segja öðru lyftingafólki til og kveðast fá miklar fyrirspurnir, til dæmis á Instagram, um æfingar, mataræði og keppnisundirbúning. „Við höfum gaman af að hjálpa fólki og gerum það fyrir smápeninga, ég er hættur að vinna frítt,“ segir Knut og glottir, bendir enn fremur á að þegar fólk þurfi að reiða fram smáupphæð fyrir leiðsögn taki það henni einfaldlega af meiri alvöru og Marte samsinnir honum. „Þetta eru kannski 10 eða 20 manns á mánuði og svo gerist það alltaf annað slagið að ég fylgi fólki alla leið á sviðið sem er að fara að keppa,“ segir Knut. Skafheiður himinninn og hlý maí- sólin úti í þjóðhátíðinni norsku freist- ar óneitanlega í mollunni í bátnum og hillir undir lokaspurningar. Hvernig er matseðill margverðlaunaðs lík- amsræktarfólks sem óhætt er að kalla á heimsmælikvarða? „Við borðum eiginlega bara allt þótt auðvitað sé meginstefið hjá okk- ur alltaf hollt og staðgott fæði,“ svar- ar Marte og kveður lífið í stöðugri líkamsræktarkeppni þó langt frá einhverju klausturlíferni. „Við eigum okkar dag í vikunni og fáum okkur þá sælgæti og snakk, þó það nú væri, en rétt magn og samsetning fæðu hefur allt að segja, ég er hiklaust þeirrar skoðunar að maturinn sé 90 prósent og æfingarnar 10 prósent,“ segir Þrándurinn blákalt. „Ég borða 4.000 hitaeiningar á dag, kem ekki í mig 5.000,“ svarar Knut spurningu blaðamanns um gamla þumalputtareglu níunda ára- tugarins um 5.000 hitaeininga dag- neyslu stálmenna. „Ég byrja daginn á 100 grömmum af hafragraut, 160 grömmum af eggjahvítum og fjórum hrökkbrauðssneiðum, það er morg- unmaturinn. Svo eru það 800 grömm af kjúklingi og 300 grömm af hrís- grjónum, sem skiptist niður á þrjár máltíðir yfir daginn, og 200 grömm af öðru kjöti að kvöldi með grænmeti og kartöflum eða hrísgrjónum,“ lýsir Knut matseðli dagsins og líklega ekki á hvers manns færi að koma í sig heilu kílógrammi af kjöti dag- lega. Hann játar að vera sólginn í ham- borgara og leyfa sér þá oft, nema vikurnar fyrir keppni. Eins eiga kartöfluflögur vel upp á pallborðið og fylgja flestum máltíðum hans, einn poki af þeim gengur til þurrðar á tveimur dögum, en Marte kveðst taka mikil vítamín, kasín-prótín, sem er hreinsað og þurrkað mjólkur- prótín, auk þess að gæða sér á berja- hræru, eða „-sjeik“, sættri með súkr- íni sem hljómar bara nokkuð freistandi. Stolt siglir fleyið mitt Botninn er sleginn í fróðlegar æf- inga- og keppnisfrásagnir lyftinga- hjónanna geðþekku með siglinga- áhuganum. Knut og Marte ferðast sem fyrr segir töluvert við strendur Noregs á bátnum og heimsækja þá líkamsræktarstöðvar í hverri höfn því engin grið eru gefin þegar kemur að stálinu. Auk siglinga meðfram suðurströnd Noregs hafa þau gaman af að heimsækja Strömstad í Sví- þjóð, Koster, Smögen og Marstrand, allt staði sem rómaðir eru fyrir nátt- úrufegurð. Og þar skellum við níð- þungum lóðunum niður þennan sól- ríka 17. maí í Tønsberg og fellum talið. Stál í stál Með Magnúsi Bess á HM á Spáni 2019. Knut kveður Magnús magnaðan vaxtarræktarmann sem auk þess bjóði af sér hinn besta þokka. Skurðgoð Þessi Þrándur er ekki í götu. Hin geðþekka Marte Øines frá Þrándheimi helskorin á sviðinu á HM í nóvember í fyrra. FRÉTTIR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 ÞAR SEM VÍSINDI OG NÁTTÚRA KOMA SAMAN Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.