Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 29
Morgunverður meistaranna Á keppnisferðalagi í Dúbaí. Knut segir Íslend-
inga bera mikla virðingu fyrir kraftasporti, annað en Norðmenn.
náttúrlega þetta sem gerðist í Suður-
Ameríku,“ segir Marte og vísar til
þess þegar hún veiktist nóttina fyrir
Opna Suður-ameríska mótið í body
fitness í Buenos Aires í Argentínu í
desember, spjó næturlangt og endaði
með því að tapa einu kílói í stað þess
að fara kílóinu þyngri á sviðið. Varð
hún að gera sér sjötta sætið að góðu
þar. Þá hefur Knut orðið fyrir
barðinu á matareitrun í keppnisferð
en sé talinu snúið í örlítið jákvæðari
átt eru þau hjón sammála um að
keppnisferðalög til Asíu séu nánast
uppljómun og æðsta stig allrar upp-
lifunar.
„Ég þekki til á Íslandi og ég veit að
þið Íslendingar berið mikla virðingu
fyrir kraftasporti, vaxtarrækt, lyft-
ingum og því sem þetta snýst um.
Norðmenn eru allt öðruvísi, „we
don’t care“ slettir Knut, hérna kemst
maður ekki einu sinni í blöðin. Allt
snýst um skíðagöngu, handbolta og
fótbolta. En þegar þú kemur til
Dúbaí, Kína, Taílands og Japans er
aldeilis annað upp á teningnum, þar
er vaxtarræktin risastór. Við vorum
nánast tekin í guðatölu í Kína, stopp-
uð þar á götu í tíma og ótíma og
kannski 20 manns að taka myndir af
okkur í einu,“ segir Knut frá og þau
Marte rifja upp atvinnumannamótið
„Belt and Road“ í Xian í Kína haustið
2019.
„Ég var í líkamsræktarstöð þarna
að æfa fyrir mótið,“ segir Marte frá.
„Þar kom til mín kona sem talaði
enga ensku og náði að þýða með
hjálp símans síns spurningu um
hvort ég væri að fara að keppa. Ég
játaði að svo væri og þá varð bara allt
vitlaust í salnum, fólk þyrptist að
mér úr öllum áttum og ég vissi ekk-
ert hvaðan á mig stóð veðrið,“ segir
Marte með bros á vör og bætir því
við að mótið í Kína hafi einfaldlega
verið svakaleg upplifun.
„Sviðið var 163 metra langt, þetta
var bara eins og maður væri í sunnu-
dagsgöngutúr. Og öll umgjörðin,
svakaleg tónlist og ljóskastarar, risa-
stórir skjáir alls staðar. Kínverjarnir
gera allt svo stórt, þetta var alveg
ótrúleg upplifun. Þarna lenti ég í
þriðja sæti og verðlaunin voru bara
greidd út í reiðufé, ég fékk afhentan
þvílíkan stafla af seðlum að þurfti
nánast hjólbörur. Ég hélt að þetta
væru milljónir. Svo var þetta nú ekk-
ert eins mikið og það virtist þegar
upp var staðið,“ segir Þrándurinn
glaðhlakkanlega.
„Að sjá Marte koma upp á þetta
svið og heyra allt verða vitlaust í
fagnaðarlátum var ein af mínum
stærstu upplifunum,“ segir Knut af
Kínaförinni, „ég fer nú bara næstum
því að gráta við að hugsa um þetta,“
játar hann og reyndar virðist gljástig
augna kjötfjallsins breytast örlítið
samtímis þeirri yfirlýsingu. Þau hjón
eru alltént sammála um að fátt slái
Asíulöndin út hvað viðkemur áhuga á
vaxtarrækt og umgjörð móta en
Knut tekur þó sérstaklega fram að af
Norðurlöndunum eigi greinin sér
klárlega mest fylgi á Íslandi.
Háði hildina við Magga Bess
Við höldum okkur örlítið við Ísland
áfram, blaðamaður veitti því athygli í
viðtalsundirbúningi að Knut og
Magnús Bess, einn sigursælasti vaxt-
arræktarmaður sem land elds og ísa
hefur uppfóstrað við sitt brjóst, eru
tengdir á Facebook. Hvernig stend-
ur á þessu?
„Við höfum keppt á móti hvor öðr-
um, það var á HM á Spáni 2019, við
vorum þá í sama flokki og hann hafði
mig, tók 6. sætið og ég lenti í 7. Það
var árið áður en ég varð heimsmeist-
ari, líka á Spáni. Svo hef ég hitt
Magga oftar, til dæmis á Oslo Grand
Prix-mótinu, við borðuðum saman
eftir það mót,“ segir Knut af kynnum
þeirra og ber Magnúsi vel söguna.
„Maggi er svakalega flottur vaxtar-
ræktarmaður og mikill kunnáttu-
maður í sportinu svo ekki sé minnst á
hve viðkunnanlegur hann er. Ég ber
mikla virðingu fyrir honum,“ lýkur
Norðmaðurinn frásögninni af þessari
samnorrænu ástríðu þeirra Magn-
úsar, vaxtarræktinni.
Talið berst að fyrirkomulagi æf-
inga og verður Marte þar fyrst fyrir
svörum. „Ég æfi á ferskiptu kerfi,
tek allan líkamann á fjórum dögum
og mínar æfingar eru auðvitað mjög
fitness-miðaðar, þar sem áherslan er
öll á mjög fíngerðan skurð og að
ýmsir smærri vöðvar séu dregnir
mjög vel fram. Þessu fylgir töluvert
mikil þolþjálfun og fitubrennsla og
svo er mataræðið auðvitað það mik-
ilvægasta …“
„Við æfum almennt sex daga í
viku,“ grípur Knut fram í en eigin-
konan er fljót að hrifsa orðið til baka:
„Nei nei, við æfum sjö daga vik-
unnar,“ og þau sættast á sex eða sjö.
„Við æfum mikið saman,“ segir Knut,
„eini gallinn er að hann æfir svo
hægt, hann er alltaf að taka pásur,“
skýtur Marte inn í og gjóar augunum
glettnislega að eiginmanni sínum.
Knut játar að með aldrinum hafi
hann dregið úr þyngdum og fjölgað
heldur endurtekningum til að draga
úr hættu á meiðslum. „Þegar ég var
53 ára lyfti ég 300 kílóum í réttstöðu-
lyftu, 210 í bekk og fimm sinnum 250
í hnébeygju en nú er ég hættur í
þessum þyngdum, lyfti léttara og er
almennt í átta til 16 endurtekningum
í hverju setti,“ segir hann og bætir
því við að þungar lyftur gagnist vel
yngri lyftingamönnum. „Þetta er
bara orðið of áhættusamt fyrir mig á
þessum aldri.“
Einum kennt – öðrum bent
Knut og Marte eru bæði iðin við að
segja öðru lyftingafólki til og kveðast
fá miklar fyrirspurnir, til dæmis á
Instagram, um æfingar, mataræði og
keppnisundirbúning. „Við höfum
gaman af að hjálpa fólki og gerum
það fyrir smápeninga, ég er hættur
að vinna frítt,“ segir Knut og glottir,
bendir enn fremur á að þegar fólk
þurfi að reiða fram smáupphæð fyrir
leiðsögn taki það henni einfaldlega af
meiri alvöru og Marte samsinnir
honum. „Þetta eru kannski 10 eða 20
manns á mánuði og svo gerist það
alltaf annað slagið að ég fylgi fólki
alla leið á sviðið sem er að fara að
keppa,“ segir Knut.
Skafheiður himinninn og hlý maí-
sólin úti í þjóðhátíðinni norsku freist-
ar óneitanlega í mollunni í bátnum og
hillir undir lokaspurningar. Hvernig
er matseðill margverðlaunaðs lík-
amsræktarfólks sem óhætt er að
kalla á heimsmælikvarða?
„Við borðum eiginlega bara allt
þótt auðvitað sé meginstefið hjá okk-
ur alltaf hollt og staðgott fæði,“ svar-
ar Marte og kveður lífið í stöðugri
líkamsræktarkeppni þó langt frá
einhverju klausturlíferni. „Við eigum
okkar dag í vikunni og fáum okkur
þá sælgæti og snakk, þó það nú væri,
en rétt magn og samsetning fæðu
hefur allt að segja, ég er hiklaust
þeirrar skoðunar að maturinn sé 90
prósent og æfingarnar 10 prósent,“
segir Þrándurinn blákalt.
„Ég borða 4.000 hitaeiningar á
dag, kem ekki í mig 5.000,“ svarar
Knut spurningu blaðamanns um
gamla þumalputtareglu níunda ára-
tugarins um 5.000 hitaeininga dag-
neyslu stálmenna. „Ég byrja daginn
á 100 grömmum af hafragraut, 160
grömmum af eggjahvítum og fjórum
hrökkbrauðssneiðum, það er morg-
unmaturinn. Svo eru það 800 grömm
af kjúklingi og 300 grömm af hrís-
grjónum, sem skiptist niður á þrjár
máltíðir yfir daginn, og 200 grömm
af öðru kjöti að kvöldi með grænmeti
og kartöflum eða hrísgrjónum,“ lýsir
Knut matseðli dagsins og líklega
ekki á hvers manns færi að koma í
sig heilu kílógrammi af kjöti dag-
lega.
Hann játar að vera sólginn í ham-
borgara og leyfa sér þá oft, nema
vikurnar fyrir keppni. Eins eiga
kartöfluflögur vel upp á pallborðið
og fylgja flestum máltíðum hans,
einn poki af þeim gengur til þurrðar
á tveimur dögum, en Marte kveðst
taka mikil vítamín, kasín-prótín, sem
er hreinsað og þurrkað mjólkur-
prótín, auk þess að gæða sér á berja-
hræru, eða „-sjeik“, sættri með súkr-
íni sem hljómar bara nokkuð
freistandi.
Stolt siglir fleyið mitt
Botninn er sleginn í fróðlegar æf-
inga- og keppnisfrásagnir lyftinga-
hjónanna geðþekku með siglinga-
áhuganum. Knut og Marte ferðast
sem fyrr segir töluvert við strendur
Noregs á bátnum og heimsækja þá
líkamsræktarstöðvar í hverri höfn
því engin grið eru gefin þegar kemur
að stálinu. Auk siglinga meðfram
suðurströnd Noregs hafa þau gaman
af að heimsækja Strömstad í Sví-
þjóð, Koster, Smögen og Marstrand,
allt staði sem rómaðir eru fyrir nátt-
úrufegurð. Og þar skellum við níð-
þungum lóðunum niður þennan sól-
ríka 17. maí í Tønsberg og fellum
talið.
Stál í stál Með Magnúsi Bess á HM á Spáni 2019. Knut kveður Magnús
magnaðan vaxtarræktarmann sem auk þess bjóði af sér hinn besta þokka.
Skurðgoð Þessi Þrándur er ekki í götu. Hin geðþekka Marte Øines frá
Þrándheimi helskorin á sviðinu á HM í nóvember í fyrra.
FRÉTTIR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
ÞAR SEM VÍSINDI
OG NÁTTÚRA
KOMA SAMAN
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is