Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Ný sending
af Modal
náttfötum frá
Vefverslun
selena.is
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Vigdís Gísladóttir hefur starfað
sem flugfreyja hjá Icelandair und-
anfarin 24 ár. Hún býr ásamt fjöl-
skyldu sinni í fallegu raðhúsi við
Elliðavatn í Kópavogi.
„Við keyptum húsið okkar árið
2011. Það var tilbúið til innrétt-
inga á þessum tíma og gerðum við
lítið við garðinn fyrstu árin fyrir
utan að slá grasið. Fyrir nokkrum
árum réðumst við svo í það stóra
verkefni að taka garðinn í gegn
þar sem fólk var farið að ganga í
gegnum garðinn okkar og var
töluvert ónæði af því,“ segir Vig-
dís.
Garðurinn í kringum húsið er
stór.
„Við ákváðum að byrja á því að
skipta um jarðveg í öllum garð-
inum. Lóðin er í halla og leit þetta
því út fyrir að verða stór hola,“
segir Lovísa og brosir um leið og
hún rifjar upp spurningarnar sem
hún fékk frá nágrönnum sínum á
þessum tíma.
„Þeir spurðu hvort við værum
að setja sundlaug í garðinn en svo
var ekki raunin. Við settum grjót-
hleðslu í hallann á lóðinni og feng-
um smiði til að setja upp skjól-
girðingu hringinn í kringum
garðinn. Ég var einmitt spurð að
því í vinnunni hvort ég hefði keypt
hlut í timburverksmiðju, svo löng
var skjólgirðingin,“ segir Vigdís.
Leið loksins eins og í sérbýli
Það margborgar sig að fjárfesta
í garðinum að mati Vigdísar.
„Maður minn! Hvað húsnæðið
breyttist við þetta. Húsið stækk-
aði og okkur leið loksins eins og
við hefðum keypt sérbýli.
Við elskum að verja tíma í garð-
inum, fyrir utan að reyta illgresi.
Garðurinn er hannaður þannig
að hann nýtist sem best allan dag-
inn þá daga sem sólin kíkir í
heimsókn.
Að framanverðu erum við með
svæði sem dásamlegt er að sitja á
með fyrsta kaffibolla dagsins. Þar
erum við með möl sem við erum
nýbúin að setja og kemur það vel
út. Við erum að reyna að minnka
grasið hjá okkur og var þetta sú
lausn sem við ákváðum að prófa.
Við tekur svo stór pallur við hlið
hússins og skjólgirðingin umlykur
allan garðinn. Við erum með ynd-
islegt steinabeð meðfram pallinum
þar sem lóðin liggur í halla. Á
þessum palli er sól allan daginn og
mjög gott skjól,“ segir Vigdís.
Fyrir aftan húsið er huggulegur
grasflötur.
„Við erum með stórt trampólín
fyrir krakkana og setjum alltaf
upp badmintonnet sem er mikið
notað. Þar eru margar keppnir
háðar og gaman að vera. Á þessu
svæði erum við líka með minni
pall og þar er heiti potturinn sem
við notum mikið allan ársins
hring.
Á pottapallinum höfum við svo
kvöldsólina sem er dásamlegt,“
segir hún.
Garðurinn nýtist
frá morgni til kvölds
Í framtíðinni langar Vigdísi að
láta stækka pallinn fyrir aftan
húsið svo hægt sé að nýta kvöld-
sólina enn þá betur.
„Garðurinn nýtist okkur frá
morgni til kvölds. Við færum okk-
ur bara aðeins um set. Okkur þyk-
ir yndislegt að sitja úti í garðinum
bæði á daginn og á kvöldin og fá
fólk í heimsókn þangað.“
Vigdísi fannst vanta að geta
kveikt á fallegum kertum úti á
palli.
„Kerti sem þola íslenska veðr-
áttu og þá helst rokið.
Ég fann á netinu falleg hand-
gerð kerti frá Belgíu og er í dag
með umboð fyrir þau á Íslandi.
Kertin eru flest handgerð og í
fallegum keramíkpottum. Önnur
eru í steinsteypu og styrkt með
trefjaplasti.
Vaxið er úr svörtu parafíni og
þau eru með hágæðabómullar-
kertaþræði,“ segir hún.
Kertin eru í ýmsum stærðum og
útfærslum. „Stærðirnar eru flest-
ar í þessum klassísku blómapotta-
stærðum svo hægt er að nota
pottana aftur þegar vaxið er búið
og þá undir blóm.“
„Við elskum
að verja tíma
í garðinum“
Vigdís Gísladóttir flugfreyja stofnaði nýverið
heimasíðuna Magnifica þar sem hún selur belgísk
útikerti sem þola íslenskt veðurfar. Hægt er að
nota pottana utan um kertin sem blómapotta þeg-
ar kertin eru brunnin niður.
Vigdís Gísladóttir flugfreyja hefur starfað hjá Icelandair undanfarin 24 ár.
Hægt er að sitja úti bæði á daginn og á kvöldin. Vigdís segir
að með góðum garði þá verði húsið meira eins og sérbýli.
Vigdís valdi möl og pall fyrir stóran hluta garðsins
því almenn garðvinna er ekki í uppáhaldi hjá henni.
Vigdís fann belgíska fyrirtækið Paju Design, sem stofnað var árið 2018,
þegar hún leitaði að kertum að flytja inn sem þola íslenska veðráttu.