Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Ný sending af Modal náttfötum frá Vefverslun selena.is Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Elínrós Líndal elinros@mbl.is Vigdís Gísladóttir hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair und- anfarin 24 ár. Hún býr ásamt fjöl- skyldu sinni í fallegu raðhúsi við Elliðavatn í Kópavogi. „Við keyptum húsið okkar árið 2011. Það var tilbúið til innrétt- inga á þessum tíma og gerðum við lítið við garðinn fyrstu árin fyrir utan að slá grasið. Fyrir nokkrum árum réðumst við svo í það stóra verkefni að taka garðinn í gegn þar sem fólk var farið að ganga í gegnum garðinn okkar og var töluvert ónæði af því,“ segir Vig- dís. Garðurinn í kringum húsið er stór. „Við ákváðum að byrja á því að skipta um jarðveg í öllum garð- inum. Lóðin er í halla og leit þetta því út fyrir að verða stór hola,“ segir Lovísa og brosir um leið og hún rifjar upp spurningarnar sem hún fékk frá nágrönnum sínum á þessum tíma. „Þeir spurðu hvort við værum að setja sundlaug í garðinn en svo var ekki raunin. Við settum grjót- hleðslu í hallann á lóðinni og feng- um smiði til að setja upp skjól- girðingu hringinn í kringum garðinn. Ég var einmitt spurð að því í vinnunni hvort ég hefði keypt hlut í timburverksmiðju, svo löng var skjólgirðingin,“ segir Vigdís. Leið loksins eins og í sérbýli Það margborgar sig að fjárfesta í garðinum að mati Vigdísar. „Maður minn! Hvað húsnæðið breyttist við þetta. Húsið stækk- aði og okkur leið loksins eins og við hefðum keypt sérbýli. Við elskum að verja tíma í garð- inum, fyrir utan að reyta illgresi. Garðurinn er hannaður þannig að hann nýtist sem best allan dag- inn þá daga sem sólin kíkir í heimsókn. Að framanverðu erum við með svæði sem dásamlegt er að sitja á með fyrsta kaffibolla dagsins. Þar erum við með möl sem við erum nýbúin að setja og kemur það vel út. Við erum að reyna að minnka grasið hjá okkur og var þetta sú lausn sem við ákváðum að prófa. Við tekur svo stór pallur við hlið hússins og skjólgirðingin umlykur allan garðinn. Við erum með ynd- islegt steinabeð meðfram pallinum þar sem lóðin liggur í halla. Á þessum palli er sól allan daginn og mjög gott skjól,“ segir Vigdís. Fyrir aftan húsið er huggulegur grasflötur. „Við erum með stórt trampólín fyrir krakkana og setjum alltaf upp badmintonnet sem er mikið notað. Þar eru margar keppnir háðar og gaman að vera. Á þessu svæði erum við líka með minni pall og þar er heiti potturinn sem við notum mikið allan ársins hring. Á pottapallinum höfum við svo kvöldsólina sem er dásamlegt,“ segir hún. Garðurinn nýtist frá morgni til kvölds Í framtíðinni langar Vigdísi að láta stækka pallinn fyrir aftan húsið svo hægt sé að nýta kvöld- sólina enn þá betur. „Garðurinn nýtist okkur frá morgni til kvölds. Við færum okk- ur bara aðeins um set. Okkur þyk- ir yndislegt að sitja úti í garðinum bæði á daginn og á kvöldin og fá fólk í heimsókn þangað.“ Vigdísi fannst vanta að geta kveikt á fallegum kertum úti á palli. „Kerti sem þola íslenska veðr- áttu og þá helst rokið. Ég fann á netinu falleg hand- gerð kerti frá Belgíu og er í dag með umboð fyrir þau á Íslandi. Kertin eru flest handgerð og í fallegum keramíkpottum. Önnur eru í steinsteypu og styrkt með trefjaplasti. Vaxið er úr svörtu parafíni og þau eru með hágæðabómullar- kertaþræði,“ segir hún. Kertin eru í ýmsum stærðum og útfærslum. „Stærðirnar eru flest- ar í þessum klassísku blómapotta- stærðum svo hægt er að nota pottana aftur þegar vaxið er búið og þá undir blóm.“ „Við elskum að verja tíma í garðinum“ Vigdís Gísladóttir flugfreyja stofnaði nýverið heimasíðuna Magnifica þar sem hún selur belgísk útikerti sem þola íslenskt veðurfar. Hægt er að nota pottana utan um kertin sem blómapotta þeg- ar kertin eru brunnin niður. Vigdís Gísladóttir flugfreyja hefur starfað hjá Icelandair undanfarin 24 ár. Hægt er að sitja úti bæði á daginn og á kvöldin. Vigdís segir að með góðum garði þá verði húsið meira eins og sérbýli. Vigdís valdi möl og pall fyrir stóran hluta garðsins því almenn garðvinna er ekki í uppáhaldi hjá henni. Vigdís fann belgíska fyrirtækið Paju Design, sem stofnað var árið 2018, þegar hún leitaði að kertum að flytja inn sem þola íslenska veðráttu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.