Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.05.2022, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 Fráfall Ögmundar bróður míns var þungt högg en nokkuð fyr- irsjáanlegt. Við sem eftir stöndum og fylgdumst náið með veikindum hans vorum það raunsæ að sjá að hverju stefndi. En eitt er víst að við erum aldrei tilbúin að kveðja þá sem okkur þykir vænt um og allra síst þá sem maður hefur alist upp með og umgengist náið alla ævi. Það eru tíu ár síðan ég settist við tölvuna til að skrifa minning- arorð um systur okkar Ingveldi og nú snýst þetta um kveðjuorð um eina bróðurinn í hópnum. Við ólumst upp í yndislegu um- hverfi og hlutum gott uppeldi. Ömmi var elstur og síðan komu þrjár systur. Þegar við Inga vor- um fæddar þá var nokkuð þröngt Ögmundur Einarsson ✝ Ögmundur Einarsson fæddist 16. júní 1942. Hann lést 6. maí 2022. Útförin fór fram 23. maí 2022. Eftirfarandi grein átti að birta í Morgunblaðinu 23. maí en fyrir mistök varð það ekki. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. um okkur öll í kjall- aranum í Hóla- brekku svo Ömmi fékk að sofa uppi hjá afa. Þegar við flutt- um síðan yfir „þúf- una“ eins og sagt var þá fékk einka- sonurinn sérher- bergi en við Inga vorum í koju inni hjá pabba og mömmu. Við kölluðum hann nú stundum „prinsinn“ en það var mjög gott á milli okkar alla tíð. Ég man eftir því að það var stundum sagt við mig „hann er nú góður drengur hann bróðir þinn“ og hann stóð svo sannarlega und- ir því nafni. Á uppvaxtarárum okkar tíðk- aðist ekki að karlmenn gengju í heimilisstörf og við systur tókum því sem sjálfsögðum hlut að strauja fyrir Ömma buxur og skyrtu þegar hann var á leið út á lífið og oft bauðst hann til að borga mér nokkrar krónur fyrir að bursta skóna. Ömmi var að sjálfsögðu í fót- bolta og var í Þrótti, þetta var þá þeirra svæði. En rétt vestan við okkar svæði voru flestir í KR. Ég var stundum spurð í skólanum með hverjum ég héldi í fótbolta og ég stóð auðvitað með bróður mínum og sagðist halda með Þrótti. En það var ekkert auðvelt því margir töldu KR miklu flottara lið og litu niður á Þróttarana. Ömmi var alla tíð mjög tónelsk- ur og spilaði á mörg hljóðfæri. Sat líka oft við eldhúsborðið og notaði hnífapörin til að slá taktinn, sem okkur systrum fannst frekar pirr- andi. En þegar hann settist við pí- anóið þurfti hann ekki nótur held- ur spilaði lögin fljótlega bara með því að raula lagið. Ég öfundaði hann mikið af þessari gáfu því ég var á sama tíma að læra á píanó en gat ekkert spilað nema eftir nót- um. Hann var líka oft í hjómsveit- um og okkur systrum fannst það ansi spennandi. Við vorum allar þrjár að fylgjast með myndum sem hann hengdi upp í herberg- inu sínu og giska á hver yrði eða væri kærastan hans. Síðar bættist svo harmónikkan við og það var alltaf gaman um jólin þegar hann spilaði jólalögin og við gengum í hring undir styrkri stjórn pabba. Þegar ég hugsa til baka þá má segja að við höfum lítið sem ekk- ert eytt æskunni saman á sumr- um. Ömmi var farinn snemma vors í sveitina, austur að Hlemmi- skeiði, og þar var hann við snún- ingastörf frá unga aldri og alls í níu sumur. Eftir að framhaldsskólaaldri var náð fór hann í Samvinnuskól- ann á Bifröst og svo til Svíþjóðar og lærði þar tæknifræði. Lengst af ævinnar var hann mjög hraustur og á grunnskóla- aldri man ég aldrei eftir að honum yrði misdægurt. Það gekk svo langt að hann öfundaði mig aðeins af því að verða oft lasin og komast ekki í skólann svo einu sinni hristi hann upp í hitamælinum og náði nokkrum kommum en mamma sá við honum svo þetta gekk ekki. En því miður var hann ekki alla tíð svona hraustur. Um mið- bik ævinnar fóru ýmis veikindi að gera vart við sig og er óhætt að segja að hann hafi tekið því öllu með miklu æðruleysi. En hver svo sem máttur ör- lagadísanna er þá er erfitt að sætta sig við að nú sé Ömmi horf- inn úr okkar lífi. Hann var stóri bróðir minn og við vorum miklir vinir. Ég skil það betur í dag en þegar sagt var við mig hér fyrr á árum „hann Ögmundur bróðir þinn er góður drengur“. Síðastliðið ár höfðum við bæði mikla ánægju af því að rifja upp liðna tíma. Hann gat bætt í eyð- urnar og við gert saman grín að ýmsu spaugilegu. Ömmi og Lena hittust í Svíþjóð og hafa arkað saman æviveginn alla tíð síðan. Fjölskyldan stækk- aði og Einar, Kristín og Davíð Jón hafa öll stofnað sínar fjöl- skyldur, eignast börn og barna- börnunum fjölgar. Á þessari sorgarstundu send- um við Júlíus fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur og biðjum þess að allar góðar minn- ingar nái að ylja þeim í framtíð- inni. Blessuð sé minning bróður míns sem ég sakna sárt. Ingibjörg. Elsku amma. Þá er komið að kveðju- stund. Það er mjög skrýtið og óraun- verulegt að hugsa til þess að þú sitjir ekki lengur heima í Lyngmóum 16 að hlusta á fallega sinfóníu eða sögubók. En tíminn er okkar helsti óvinur og veldur því að allt tekur enda. Ég á svo margar yndislegar minningar al- veg frá því að ég var lítil í pössun hjá þér og afa í Hegranesinu. Ég er mjög þakklát fyrir þær minn- ingar frá Hegranesinu og af afa en ég fékk aðeins að eiga fjögur ár með honum. Eftir að afi dó og þú fluttir í Lyngmóana, þá fór ég að vera mikið hjá þér enda bjugg- um við fyrsta árið þitt þar, á hæð- inni fyrir ofan. Þú varst svo dug- leg að brasa eitthvað skemmti- legt með mér. Við fórum í ófáar sundferðirnar í Garðabæjarlaug- ina, þar sem þú þekktir flestalla og elskaðir að kynna mig sem nöfnu þína. Ég var orðin flugsynd aðeins fimm ára gömul þökk sé þér. Við vorum líka duglegar að skreppa saman í strætó, fórum niður í bæ og keyptum brauðhleif í bakaríinu til að gefa öndunum. Þú elskaðir að fá að taka fallegar myndir af mér með blómum í bakgrunninum og þegar ég ég var núna úti á Tenerife við göngu fann ég neríu í blóma og varð hugsað til þín svo að ég tók mynd Gróa Jóelsdóttir ✝ Gróa Jóels- dóttir fæddist 6. janúar 1925. Hún lést 7. maí 2022. Gróa var jarð- sungin 17. maí 2022. af Karítas Björk þefa af blóminu, al- veg eins og myndin sem þú átt af mér en þetta var daginn áð- ur en þú yfirgafst þennan heim. Minn- ingarnar eru enda- lausar, eins og til dæmis að baka pip- arkökur með þér fyrir jólin sem þú skreyttir jólatréð þitt með, eða hvernig þú áttir alltaf fulla skál af ávöxtum sem ég mátti ganga í eins og ég vildi, hvað þú elskaðir að horfa á dýra- lífsmyndir með David Attenbor- ough og talaðir um að fíllinn væri fallegasta dýrið á jarðríki. Á mínum eldri árum þótti mér ómetanlegt að fá að sitja með þér í eldhúshorninu þínu og hlusta á þig tala og segja frá gömlu dög- unum. Ég man að ég gat setið og þagað tímunum saman og bara hlustað, það var eins og að hlusta á skemmtilega sögu. Þú lifðir vissulega viðburðaríku og skemmtilegu lífi og þar sem ég var aðeins partur af þeim hluta lífs þíns þegar þú varst orðin ekkja er ég svo þakklát því hvað þú varst dugleg að segja mér frá lífi þínu áður, hvernig þið afi ferð- uðust saman um heiminn og lent- uð í alls konar ævintýrum. Þú varst alltaf í góðu skapi og gast alltaf fundið jákvæðu hliðina á öllu og talaðir oft um það hversu mikilvægt það væri að vera bara hamingjusöm og njóta lífsins. Ég er svo þakklát fyrir það að Kar- ítas og Jóel fengu að kynnast þér og þið Karítas áttuð vissulega einstakt samband. Ég mun svo sjá til þess að vera dugleg að halda minningu þinni hátt á lofti og segja krökkunum frá þér. Það er sárt að hugsa til þess að ég fái aldrei að hlusta á þig segja mér frá gömlu dögunum í eldhús- horninu á Lyngmóunum aftur en ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem ömmu í all- an þennan tíma. Núna ertu kom- in til hans elsku afa og ég sé ykk- ur fyrir mér leiðast einhvers staðar á fallegum stað. Þangað til næst elsku amma mín, hvíldu í friði. Þín nafna, Gróa Sif. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.isVesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. RAFN JÚLÍUS JÓHANNSSON var jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 6. maí. Við aðstandendur viljum senda þakkir til allra sem fylgdu honum til enda, bæði í kirkjunni og í streymi. Sérstakar þakkir viljum við færa öllu því góða fólki sem annaðist hann síðustu dægrin á St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi og á HVE á Akranesi. Birna Guðríður Pétursdóttir Anna María Rafnsdóttir Davíð Sveinsson Jóhann Kr. Rafnsson Þórunn Sigurðardóttir Pétur Árni Rafnsson Júlía Lobanova Björn Arnar Rafnsson Margrét Bjarman Rafn Júlíus Rafnsson Erla Friðriksdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, fyrrverandi eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, JÓN ÁGÚSTSSON þroskaþjálfi, lést fimmtudaginn 19. maí umvafinn fjölskyldu sinni. Jarðarförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 30. maí klukkan 13. Guðrún Sigríður Ólafsdóttir Brynhildur Guðmundsdóttir Þengill Fannar Jónsson Elín Jónsdóttir Þorgils Máni Jónsson Ingileif Valdís Jónsdóttir Rannveig Pálmadóttir Ólafur Leifsson Pálmi Ágústsson Guðrún Fema Ágústsdóttir Gunnar Valur Sveinsson Sigurður Már Ólafsson Elskulegur sonur, faðir og bróðir okkar, AXEL SKÚLASON flugstjóri, andaðist á sjúkrahúsi í Lúxemborg miðvikudaginn 11. maí. Vildís Garðarsdóttir Sara Axelsdóttir Skúli Axelsson Matthildur Skúladóttir Guðrún Skúladóttir og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, BJÖRN BJÖRNSSON, Lágseylu 25, Njarðvík, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, fimmtudaginn 19. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 30. maí klukkan 13. Steinunn Ása Björnsdóttir Gunnar Magnússon Björn Björnsson Þórdís Kristinsdóttir Sigríður Björnsdóttir Þorsteinn Valur Baldvinsson Magnús Sigurður Björnsson Bryndís Skúladóttir Salbjörg Björnsdóttir Jón Snævar Jónsson Stefanía Helga Björnsdóttir Arnbjörn Arnbjörnsson barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.