Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Ítalska félagið Roma varð í gær-
kvöld Sambandsdeildarmeistari
karla í fótbolta með því að sigra
Feyenoord frá Hollandi, 1:0, í úr-
slitaleik liðanna sem fram fór á nýj-
um þjóðarleikvangi Albaníu í Tir-
ana. Nicolo Zaniolo skoraði markið
á 32. mínútu eftir sendingu frá Gi-
anluca Mancini. Roma er fyrsti sig-
urvegarinn í þessari nýju Evrópu-
keppni og þetta er fyrsti sigur
félagsins í Evrópukeppni frá því
það vann hina gömlu Borgakeppni
Evrópu árið 1961 en sú keppni varð
síðar að UEFA-bikarnum.
Roma fyrsti
meistarinn
AFP/Gent Shkullaku
Markið Nicolo Zaniolo fagnar
markinu sem færði Roma sigurinn.
Fjórir nýliðar eru í 21 árs landsliði
karla í fótbolta fyrir þrjá heima-
leiki í undankeppni EM, gegn
Liechtenstein, Hvíta-Rússlandi og
Kýpur, sem allir fara fram á Vík-
ingsvelli dagana 3. til 11. júní. Ísak
Snær Þorvaldsson úr Breiðabliki,
Þorleifur Úlfarsson frá Houston
Dynamo, Óli Valur Ómarsson úr
Stjörnunni og Adam Ingi Bene-
diktsson markvörður frá Gauta-
borg fá allir möguleika á að spila
sína fyrstu leiki í þessum aldurs-
flokki. Hópinn í heild sinni má sjá á
mbl.is/sport/fotbolti.
Fjórir nýliðar í
21 árs liðinu
Ljósmynd/Kristinn Steinn
U21 Ísak Snær Þorvaldsson hefur
skorað sjö mörk fyrir Breiðablik.
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Arnar Þór Viðarsson þjálfari karla-
landsliðsins í fótbolta mætir með
reynsluminni hóp í landsleikina fjóra
í júnímánuði en þegar liðið lék vin-
áttulandsleikina við Finna og Spán-
verja á Spáni í mars.
Ísland leikur við Ísrael og Albaníu
í Þjóðadeild UEFA, Ísraelsmenn úti
2. júní og heima 13. júní og Albani
heima 6. júní, og spilar auk þess vin-
áttulandsleik í San Marínó 10. júní.
Tveir af þeim leikjahæstu úr
marsverkefninu, Jón Daði Böðv-
arsson og Arnór Ingvi Traustason,
verða ekki með. Þessir leikir passa
illa fyrir Jón Daða sem hefur verið í
fríi frá því í lok apríl þegar Bolton
lauk keppni á Englandi og Arnór á
leik með New England í bandarísku
MLS-deildinni snemma í júní. Þá er
Hjörtur Hermannsson upptekinn í
umspili með Pisa á Ítalíu.
Sem fyrr er það fyrirliðinn Birkir
Bjarnason sem dregur vagninn hvað
varðar reynsluna og tengingu við
árangur landsliðsins á síðasta ára-
tug. Birkir mun halda áfram að bæta
landsleikjametið og gæti verið kom-
inn með 111 landsleiki að þessum
fjórum leikjum loknum. Albert Guð-
mundsson er orðinn þriðji leikja-
hæstur í hópnum á eftir Birki og
Herði Björgvini Magnússyni.
Fimm breytingar eru alls á hópn-
um frá því í mars og þar er áhuga-
verðast að sjá Skagamanninn unga
Hákon Arnar Haraldsson í A-
landsliðshópi í fyrsta skipti. Hákon
hefur slegið í gegn með FC Köben-
havn og þá átti hann góða innkomu í
21-árs landsliðið síðasta haust þegar
hann skoraði m.a. tvívegis í 2:1-
útisigri gegn Hvít-Rússum.
Davíð Kristján Ólafsson vinstri
bakvörður fær tækifæri í stað Atla
Barkarsonar en Davíð hefur farið
vel af stað með Kalmar í sænsku úr-
valsdeildinni. Davíð lék vináttuleik-
ina gegn Úganda og Suður-Kóreu í
janúar, rétt eins og Valgeir Lunddal
Friðriksson frá Häcken í Svíþjóð
sem einnig kemur inn í hópinn.
Willum Þór Willumsson hefur átt
gott tímabil til þessa með BATE í
Hvíta-Rússlandi og fær nú tækifæri,
og þá er Hólmbert Aron Friðjónsson
með á ný eftir tæplega tveggja ára
fjarveru en hann hefur skorað mik-
ilvæg mörk fyrir Lilleström í norsku
úrvalsdeildinni síðustu vikurnar.
Helst kemur á óvart að sjá Mikael
Egil Ellertsson og Andra Lucas
Guðjohnsen í hópnum. Mikael hefur
ekkert spilað með aðalliði SPAL á
Ítalíu síðan í desember og Andri hef-
ur ekki verið í byrjunarliði varaliðs
Real Madrid í spænsku C-deildinni
síðan í nóvember.
Ekki hægt að velja Aron
Í aðdraganda landsliðsvalsins var
rætt um mögulega endurkomu
Arons Einars Gunnarssonar í hóp-
inn. Arnar Þór staðfesti í gær að
hann félli undir nýútgefna við-
bragðsáætlun stjórnar KSÍ, en sam-
kvæmt henni er ekki hægt að velja
leikmenn sem eru með meint brot til
meðferðar hjá rannsóknar- eða
ákæruvaldi. Fram kom að kona sem
kærði Aron og Eggert Gunnþór
Jónsson um nauðgun hefur ákveðið
að kæra niðurstöðu héraðssaksókn-
ara um niðurfellingu málsins.
Sverrir Ingi Ingason og Rúnar
Már Sigurjónsson gefa ekki kost á
sér, heldur ekki Guðlaugur Victor
Pálsson af persónulegum ástæðum,
og þeir Jóhann Berg Guðmundsson
og Elías Rafn Ólafsson markvörður
eru úr leik vegna meiðsla.
Hópurinn er
reynslulítill
- Arnar valdi 25 fyrir fjóra landsleiki
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Albert Guðmundsson er þriðji leikjahæstur í hópnum og Birkir
Bjarnason er sá langleikjahæsti með 107 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
MARKVERÐIR:
Rúnar Alex Rúnarsson, OH Leuven (Belgíu) 14/0
Ingvar Jónsson, Víkingi R. 8/0
Patrik Sigurður Gunnarsson, Viking Stavanger (Noregi) 0/0
VARNARMENN:
Hörður Björgvin Magnússon, CSKA Moskva (Rússlandi) 38/2
Brynjar Ingi Bjarnason, Vålerenga (Noregi) 12/2
Alfons Sampsted, Bodö/Glimt (Noregi) 10/0
Daníel Leó Grétarsson, Slask Wroclaw (Póllandi) 7/0
Davíð Kristján Ólafsson, Kalmar (Svíþjóð) 4/0
Ari Leifsson, Strömsgodset (Noregi) 3/0
Valgeir Lunddal Friðriksson, Häcken (Svíþjóð) 2/0
MIÐJUMENN:
Birkir Bjarnason, Adana Demirspor (Tyrklandi) 107/15
Arnór Sigurðsson, Venezia (Ítalíu) 18/1
Ísak Bergmann Jóhannesson, FC Köbenhavn (Danmörku) 11/1
Aron Elís Þrándarson, OB (Danmörku) 10/0
Þórir Jóhann Helgason, Lecce (Ítalíu) 9/0
Stefán Teitur Þórðarson, Silkeborg (Danmörku) 9/1
Willum Þór Willumsson, BATE Borisov (Hvíta-Rússlandi) 1/0
Hákon Arnar Haraldsson, FC Köbenhavn (Danmörku) 0/0
SÓKNARMENN:
Albert Guðmundsson, Genoa (Ítalíu) 30/6
Jón Dagur Þorsteinsson, AGF (Danmörku) 18/2
Sveinn Aron Guðjohnsen, Elfsborg (Svíþjóð) 12/1
Mikael Anderson, AGF (Danmörku) 11/1
Hólmbert Aron Friðjónsson, Lilleström (Noregi) 6/2
Andri Lucas Guðjohnsen, Real Madrid (Spáni) 6/2
Mikael Egill Ellertsson, SPAL (Ítalíu) 4/0
Hópurinn fyrir landsleikina
Lengjudeild kvenna
HK – Augnablik........................................ 1:0
Fjölnir – FH.............................................. 0:0
Tindastóll – Haukar ................................. 1:0
Staðan:
HK 4 4 0 0 9:3 12
FH 4 3 1 0 9:3 10
Víkingur R. 4 3 0 1 12:5 9
Tindastóll 4 3 0 1 4:1 9
Fjarð/Hött/Leikn. 3 2 0 1 9:3 6
Augnablik 4 1 0 3 4:7 3
Grindavík 3 1 0 2 2:5 3
Haukar 4 1 0 3 3:8 3
Fjölnir 4 0 1 3 4:12 1
Fylkir 4 0 0 4 2:11 0
Mjólkurbikar karla
32ja liða úrslit:
Fylkir – ÍBV.............................................. 2:1
FH – Kári .................................................. 3:0
Keflavík – Njarðvík.................................. 1:4
Stjarnan – KR ........................................ (0:2)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöld.
Sambandsdeild karla
Úrslitaleikur í Tirana
Roma – Feyenoord................................... 1:0
Noregur
Bodö/Glimt – Strömsgodset .................. 2:2
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
- Ari Leifsson lék allan leikinn með
Strömsgodset.
Lilleström – Vålerenga........................... 2:0
- Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á
hjá Lilleström á 83. mínútu.
- Brynjar Ingi Bjarnason lék allan leikinn
með Vålerenga og Viðar Örn Kjartansson
kom inn á sem varamaður á 66. mínútu.
Viking – HamKam................................... 1:1
- Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark
Viking og Samúel Kári Friðjónsson lék
fyrstu 87 mínúturnar.
Staðan:
Lillestrøm 9 7 2 0 19:5 23
Viking 10 6 3 1 19:8 21
Molde 8 5 1 2 15:8 16
Strømsgodset 9 4 2 3 13:13 14
Aalesund 9 4 2 3 10:11 14
Bodø/Glimt 8 3 4 1 17:11 13
Sarpsborg 7 3 1 3 11:9 10
Rosenborg 7 2 4 1 8:7 10
Tromsø 8 2 4 2 10:13 10
Vålerenga 9 3 1 5 10:15 10
HamKam 8 1 6 1 11:9 9
Sandefjord 8 3 0 5 12:16 9
Odd 9 3 0 6 7:14 9
Jerv 8 2 1 5 4:12 7
Haugesund 8 2 0 6 10:16 6
Kristiansund 7 0 1 6 5:14 1
Brann – Röa.............................................. 2:0
- Svava Rós Guðmundsdóttir fór meidd af
velli á 26. mínútu hjá Brann en Berglind
Björg Þorvaldsdóttir er frá keppni vegna
meiðsla.
Rosenborg – Lilleström .......................... 1:0
- Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 69
mínúturnar með Rosenborg.
Stabæk – Vålerenga................................ 1:4
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
Staðan:
Brann 11 10 1 0 36:7 31
Vålerenga 10 9 1 0 36:4 28
Rosenborg 11 8 1 2 24:7 25
Lyn 10 4 3 3 13:14 15
Stabæk 11 4 2 5 13:15 14
Lilleström 10 3 3 4 9:10 12
Kolbotn 10 3 1 6 13:15 10
Avaldsnes 11 2 1 8 10:36 7
Arna-Bjørnar 10 2 0 8 8:34 6
Røa 10 0 1 9 3:23 1
Ítalía
C-deild, umspil, fyrri leikur:
Catanzaro – Padova ................................ 0:0
- Bjarki Steinn Bjarkason var allan tím-
ann á varamannabekk Catanzaro.
4.$--3795.$
Danmörk
Undanúrslit, fyrsti leikur:
GOG – Skjern ....................................... 33:23
- Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður
kom ekkert inn á hjá GOG.
Aalborg – Bjerringbro-Silkeborg ..... 24:22
- Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg
vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoðar-
þjálfari liðsins.
Frakkland
B-deild, umspil, fyrri leikur:
Séléstat – Nice ..................................... 25:25
- Grétar Ari Guðjónsson varði 4 skot í
marki Nice, 22% markvarsla.
Sviss
Fjórði úrslitaleikur:
Spono Eagles – Zug............................. 34:33
- Harpa Rut Jónsdóttir lék ekki með Zug
sem á oddaleik á heimavelli en staðan í ein-
víginu er 2:2.
Þýskaland
B-deild:
Emsdetten – Dessauer........................ 35:34
- Örn Vésteinsson skoraði 11 mörk fyrir
Emsdetten og Anton Rúnarsson 3.
%$.62)0-#
HK er eitt á toppi 1. deildar kvenna
í knattspyrnu, Lengjudeildinni, eft-
ir að hafa sigrað nágranna sína í
Augnabliki, 1:0, í Kórnum í gær-
kvöld.
Sigurmarkið var sjálfsmark sem
var skorað strax á 8. mínútu, eftir
að María Lena Ásgeirsdóttir skaut
að marki Augnabliks.
HK hefur þar með unnið fjóra
fyrstu leiki sína í deildinni og er
eina liðið sem hefur ekki tapað
stigi.
FH hafði einnig unnið fyrstu þrjá
leiki sína en varð að sætta sig við
markalaust jafntefli við Fjölni í
Grafarvogi í gærkvöld. Nýliðar
Fjölnis náðu þar með í sitt fyrsta
stig á tímabilinu.
Tindastóll, sem féll úr úrvals-
deildinni síðasta haust, vann Hauka
1:0 á Sauðárkróki og hefur þar með
unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum
sínum.
Í fyrrakvöld vann Víkingur stór-
sigur á Fylki í Árbænum, 4:0.
Emma Steinsen Jónsdóttir, Kiley
Norkus, Hulda Ösp Ágústsdóttir og
Sigdís Eva Bárðardóttir skoruðu
mörkin.
Morgunblaðið/Eggert
Sigruðu Isabella Eva Aradóttir, fyrirliði HK, með boltann í leiknum við
Augnablik í Kórnum í gærkvöld. HK hefur unnið alla fjóra leiki sína.
HK er eitt á toppn-
um í 1. deildinni