Morgunblaðið - 26.05.2022, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
A
llt alls staðar allt í einu
fylgir Evelyn Wang
(Michelle Yeoh) þegar
hún er þvinguð til að
bjarga fjölheiminum (e. multi-
verse) en svo virðist sem hug-
myndin um fjölheiminn heilli
marga listamenn í dag. Rétt áður
en Evelyn er soguð inn í fjölheim-
inn er henni sagt að draga djúpt
andann, sem er einmitt það sem
áhorfendur þurfa að gera fyrir
þessa kvikmynd enda er hún einn
stór rússíbani. Það má því segja að
þetta ráð sé frekar ætlað áhorf-
endum en persónunni Evelyn. Á
ferð sinni um fjölheiminn berst
hún við margar mismunandi út-
gáfur af þeim sem standa henni
næst en á þá vegu er sýnt hversu
erfið – eða í það minnsta flókin –
fjölskyldubönd geta verið. Um leið
kemst Evelyn að því að hún er
versta mögulega útgáfan af sjálfri
sér. Áhorfendur fá að kynnast mis-
munandi útgáfum af Evelyn; bar-
dagalistastjörnu, kínverskri óp-
erusöngkonu, hibachi-kokki og
jafnvel útgáfu með pylsur fyrir
putta. Af öllum þeim útgáfum er
það hún sem tók verstu ákvarð-
anirnar. Það þýðir hins vegar að
hún er sú eina sem hefur enn
óuppfyllta möguleika og sú eina
sem getur bjargað heiminum.
Kvikmyndin byrjar á því að
kynna áhorfendur fyrir Evelyn en
hún er buguð móðir og fyrirtækis-
rekandi í kappi við tímann. Hún er
að drukkna, verkefnin eru alls
staðar, öll í einu. Hún þarf að reka
fyrirtæki, skrá skatta, þóknast við-
skiptavinum, standast væntingar
föður síns og um leið sinna eig-
inmanni sínum og dóttur. Ljóst er
að Evelyn á í erfiðleikum með að
viðhalda núverandi lífi, sem hún
hefur enga ástríðu fyrir. Eftirsjá
umlykur hana yfir því að hafa ekki
elt drauma sína. Myndheildin og
hljóðheimurinn strax í byrjun
hjálpa áhorfandanum að setja sig í
spor Evelyn. Tifandi klukkan og
pappírsstaflarnir á borðinu gefa til
kynna að líf Evelyn sé í mikilli
óreiðu og áhorfendur langar að
loka augunum og komast út úr
rýminu rétt eins og Evelyn, sem
vill flýja sitt óspennandi líf.
Þó að Allt alls staðar allt í einu
sé fantasía eru vandamálin sem
hún varpar fram mjög raunveru-
leg. Meðal þeirra efna sem eru
rædd eru samband mæðgna, sam-
band hjóna, að vaxa úr grasi, að
koma út úr skápnum og vonbrigðin
sem fylgja óuppfylltum draumum.
Kvikmyndin tekur sig hins vegar
ekki of alvarlega enda ekki við
öðru að búast af Dan Kwan og
Daniel Scheinert, betur þekktum
sem Daníel-bræðrunum. Bræð-
urnir hlutu mikla velgengni í kjöl-
far tónlistarmyndbands síns fyrir
DJ Snake og Lil Jon, Turn Down
for What, þar sem strákur notar
rassinn á sér til að brjótast í gegn-
um nokkrar hæðir á fjölbýlishúsi.
Kvikmyndagerðarmennirnir eru þó
eflaust þekktastir fyrir prumpandi
líkið, en þá á ég við kvikmyndina
Svissneska hermanninn sem þeir
gerðu árið 2016. Líkt og fyrri
dæmi sýna eru Daníel-bræðurnir
óhræddir við aulabrandara en
þrátt fyrir margar bardagasenur
eru fleiri kynlífstæki notuð sem
vopn heldur en alvöruvopn í mynd-
inni.
Leikurinn er einnig til fyrir-
myndar. Ke Huy Quan á skemmti-
lega endurkomu í myndinni en
hasarmeistarinn (og líka litli strák-
urinn í Indiana Jones and the
Temple of Doom) leikur hinn
krúttlega eiginmann Evelyn, Way-
mond Wang sem við höldum öll
með.
Michelle Yeoh tekst einnig ótrú-
lega vel að leika allar hinar mis-
munandi útgáfur af Evelyn og
Stephanie Hsu er dásamleg sem
poppað og krúttlegt illmenni
myndarinnar sem hefur myndað
svarthol úr engu öðru en beyglu.
Kvikmyndatakan er falleg og tón-
listin notuð á markvissan hátt til
að bæta við spennu, húmor eða
öðrum tilfinningum sem atriðinu er
ætlað að framkalla.
Myndin hittir í mark, hún er
djúp en um leið enn einn prumpu-
brandarinn.
Beygla með öllu
Fjölheimur Michelle Yeoh í kungfu-stuði í hlutverki einnar af nokkrum útgáfum af Evelyn.
Háskólabíó og Laugarásbíó
Everything Everywhere All at Once
/Allt alls staðar á sama tíma
bbbbn
Leikstjórn: Dan Kwan og Daniel Schein-
ert. Handrit: Dan Kwan og Daniel
Scheinert. Aðalleikarar: Michelle Yeoh,
Stephanie Hsu og Ke Huy Quan. Banda-
ríkin, 2022. 189 mín,
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Sýning á verkum Sigurjóns Ólafs-
sonar var opnuð í Kaupmannahöfn
á laugardaginn á Norðurbryggju í
Kaupmannahöfn. Ber hún titilinn
Digte i træ (Ljóð skorin í tré) og
samanstendur af skúlptúrum.
Sendiherra Íslands í Danmörku,
Helga Hauksdóttir, opnaði sýning-
una og sagði hún m.a. í ávarpi sínu
að sýningin sýndi úrval af abstrakt-
verkum hins fjölhæfa listamanns og
að verkin væru í einkaeigu. „Hér
gefst, með öðrum orðum, einstakt
tækifæri til að sjá þessi verk, og á
sama tíma að kynnast betur lista-
manni sem hefur skilið eftir sig
mikilvæg spor í listasögunni, bæði á
Íslandi og í Danmörku,“ sagði
Helga.
Sigurjón fæddist árið 1908 á Eyr-
arbakka og hélt tvítugur til Kaup-
mannahafnar þar sem hann stund-
aði nám við Listaháskólann. Hann
varð mikilvægur hluti af hópi fram-
úrstefnulistamanna Dana á þriðja
og fjórða áratug síðustu aldar, áður
en hann sneri aftur til Íslands árið
1946 þar sem hann hafði veruleg
áhrif á þróun íslensks módernisma,
eins og segir í tilkynningu. Hann
lést árið 1982. „Það er eins og að
vinna með tré hafi veitt honum inn-
blástur til frjálsrar tjáningar. Þess
vegna eru viðarskúlptúrarnir mjög
sérstakur og mikilvægur þáttur í
ævistarfi hans,“ sagði Helga í opn-
unarávarpi sínu. Sýningarstjóri er
Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns, sem
árið 1984 stofnaði Listasafn Sig-
urjóns Ólafssonar í Reykjavík og
hefur áratugum saman miðlað list
Sigurjóns og þá bæði hér á landi og
erlendis.
Sýningin stendur fram til 11.
september og má finna upplýsingar
á nordatlantens.dk.
Ljósmynd/Hildur M. Valgarðsdóttir
Á Norðurbryggju Birgitta Spur og Helga
Hauksdóttir við opnun sýningarinnar.
Verk Sigurjóns
á Norðurbryggju
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
“Breathtaking”
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
U S A TO D AY
72%
Empire Rolling StoneLA Times
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com