Morgunblaðið - 26.05.2022, Page 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Leiksýningin Room 4. 1 Live verður
frumsýnd á Stóra sviði Borgarleik-
hússins í kvöld, 26. maí, og er sam-
starfsverkefni leikfélags Kristjáns
Ingimarssonar, Íslenska dansflokks-
ins og Borgarleikhússins. Leikhús-
listamaðurinn Kristján hefur verið
búsettur í Danmörku síðastliðin
þrjátíu ár en hefur komið nokkuð
reglulega hingað heim með sýningar
sínar. Nú eru þó
liðin níu ár síðan
síðast en þá setti
hann upp verkið
BLAM! í Borg-
arleikhúsinu sem
vakti mikla lukku.
Kristján segist
hafa viðað að sér
mismunandi
tækni og hefðum í
gegnum tíðina.
„Hægt og rólega
þróaði ég minn eigin stíl. Það hefur
alltaf verið þessi meiri myndræni og
líkamlegi stíll, hvort sem það er lát-
bragð, dans eða bara leikhús án orða.
Það hefur líka gert það að það hefur
verið auðveldara fyrir mig að nálgast
þessa alþjóðlegu leiklist. Það þarf
ekkert að vera að þýða texta þegar
maður kemur í eitthvert ákveðið
land. Þannig að markaðurinn er
miklu stærri, miklu fleiri áhorfendur
og þar af leiðandi geta sýningarnar
gengið miklu miklu lengur. Það eru
eiginlega engin takmörk.“
Átti ekki að verða leiksýning
Um tilurð Room 4.1 Live segir
Kristján: „Þetta átti ekkert að vera
leiksýning. Ég ætlaði að gera þætti á
netinu, örþætti, af því ég hafði svo
margar hugmyndir og sumar hug-
myndir passa ekkert við heilkvölds-
sýningu. Þær eru bara stuttar hug-
myndir. Mér fannst leiðinlegt að
henda þeim.“
Þáttaröðin fjallar um mann að
nafni Vincent sem er samkvæmt
Kristjáni „orðinn hundleiður á lífinu,
á kúltúrnum, á fjölskyldunni og vin-
um sínum, bara öllu þessu brölti sem
við erum í, hversdagsleikanum í
rauninni. Hann ímyndar sér að hann
sé að drepast í puttanum og lætur
leggja sig inn á sjúkrahús en það er
ekkert að honum. Það er kannski
bara mest hérna uppi sem er eitt-
hvað að stríða honum,“ segir Krist-
ján og bendir á höfuðið á sér.
Með höfuðið í gegnum vegg
„Þegar hann er kominn á sjúkra-
húsið og búinn að komast að því að
það er ekkert að honum, hleypur
hann í örvæntingu með hausinn í
gegnum vegg og þar byrjar ballið.
Það er eins og hann fari inn í ein-
hverja nýja vídd. Þar hittir hann svo-
lítið sjálfan sig og það er stundum
ekkert gaman að vera einn með sjálf-
um sér þegar raddirnar byrja að
óma.“
Á sjúkraherbergi Vincents fer að-
dráttarafl jarðar skyndilega að
skipta minna máli. „Við byggðum al-
veg sérstaklega sviðsmynd sem er
hjól með þessu herbergi inni í.
Þannig að ef hjólið snýst þá fjar-
lægjum við í rauninni aðdráttarafl
jarðar.“
Verkið er þannig uppfullt af ýms-
um brellum sem Kristján segist
hafa mjög gaman af. „Það var svo
klikkað að búa til þessa þætti, öll
þessi smáatriði, allar þessar hug-
myndir sem maður var að reyna að
fá í gegn, sem voru svolítið fárán-
legar. Maður var bara að reyna að
vera trúr myndunum sem maður
var með í hausnum í staðinn fyrir að
vera að búa til einhverja nákvæma
sögu. Þannig að maður fékk mikið
frelsi í þessu og allt í einu var maður
kominn í einhverjar undarlegar
stellingar og senur.“
Þannig varð hugmyndin að leik-
sýningunni til: „Mér fannst lífið í
kringum þessar upptökur svo bilað.
Ég var sjálfur að reyna að leika
þennan gaur á meðan ég var að leik-
stýra og það virkaði bara ekkert. Ég
var með hausinn í gegnum gat og
með skjá að reyna að leikstýra leik-
urunum sem voru inni í herberginu
þar sem rassinn á mér var. Mér
fannst þetta pínu fyndið og ákvað að
gera sýningu sem fjallar um upptök-
urnar á þessum þáttum. Ég hélt
kannski ekkert endilega að þetta
myndi virka neitt voðalega vel en
alltaf gaman að taka áhættu. Þannig
að ég gerði það og þetta vakti mikla
lukku í Kaupmannahöfn.“
Nú er sviðsmyndin komin til
landsins og samstarf Kristjáns og fé-
laga við Borgarleikhúsið og Íslenska
dansflokkinn hafið. „Það er æðislegt
að vinna með þessu fólki. Við erum í
rauninni bara ein fjölskylda þegar
kemur að leiklist. Það koma allir með
sína áhugahvöt og kunnáttu inn í
þetta.“
Leikstjórinn leikur leikstjóra
Áhorfendur koma í raun inn í rými
þar sem verið er að taka upp kvik-
myndina Room 4.1. og upplifa sviðið í
Borgarleikhúsinu sem tökustað.
„Ekkert er falið þannig að það er
þarna tæknifólk, sminkur og bún-
ingafólk. Allir eru á sviðinu. Þú upp-
lifir leikhús á allt annan hátt en þú
átt von á.“
Í þessari sýningu er Kristján í
hlutverki höfundar og framleiðanda,
leikara og leikstjóra. Spurður hvern-
ig það gangi að sameina þessi hlut-
verk segir hann: „Það er vonlaust.
Það er hræðilegt. Hræðilegt bara
fyrir fólkið sem er að vinna með mér.
Ég er að leikstýra leiksýningu þar
sem ég er að leika leikstjóra og leik-
stjórinn er í rauninni að leikstýra
náunga sem einhvern veginn er
„hliðar-egó“ leikstjórans. Fólk sem
er að vinna með mér veit stundum
ekki alveg hvor leikstjórinn ég er;
þessi sem er með stjórn á öllu, eða
þykist vera það, eða hinn leikni leik-
stjóri sem þvælist um sviðið, tekur
þátt í öllu og er að skipa fyrir. Þann-
ig að þetta er mikið ævintýri.“
Spurður út í markhóp verksins
segir Kristján: „Ég geri alltaf sýn-
ingar fyrir alla og þó að þetta sé nýtt,
nýstárlegt, fyrir suma þá er þetta
alltaf fyndið líka um leið og þetta
getur verið alvarlegt.“ Kristján bæt-
ir við að það sé mikil í gangi á sviðinu
og verkið sé skemmtilegt. „Þetta er
leikhús og ég er hér til þess að
skemmta fólki. Og það sem mestu
máli skiptir er að áhorfendur fá að
vera frjóir. Þeir fá að fatta hlutina
svolítið sjálfir.“
Kristján var gestur Dagmála,
frétta- og dægurmálaþáttar Morg-
unblaðsins, þriðjudaginn 24. maí og
ræddi þar sýninguna Room 4.1 Live
og fleira. Þáttinn má finna á mbl.is.
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Sviðsverkið „Maður fékk mikið frelsi í þessu og allt í einu var maður kominn í einhverjar undarlegar stellingar og
senur,“ segir Kristján Ingimarsson um framleiðslu örþáttaraðarinnar sem leiksýningin Room 4.1 Live byggist á.
„Ég er hér til að skemmta fólki“
- Sviðsverkið Room 4.1 Live frumsýnt í Borgarleikhúsinu - Stóra sviðið breytist í kvikmyndaver
- Kristján Ingimarsson, leikari, leikstjóri og höfundur verksins, hefur þróað sinn eigin leikhússtíl
Kristján
Ingimarsson
James Rielly opnar sýningu í dag
kl. 17-19 í Ganginum, galleríi
myndlistarmannsins Helga Þorgils
Friðjónssonar, í Brautarholti 8 í
Reykjavík sem er jafnframt heimili
listamannsins. Rielly er þekktur
enskur listamaður og var einn
þeirra sem sýndu á hinni sögu-
frægu Sensation-sýningu í Royal
Academy í London árið 1997 sem
Damien Hirst skipulagði. Vakti
sýningin mikla athygli og öðluðust
margir myndlistarmannanna
frægð í kjölfar hennar, einkum þó
Hirst.
Helgi hefur rekið galleríið á
heimilum sínum til fjölda ára, m.a.
á Hofsósi í eitt ár. Rielly sýndi
olíumálverk á Sensation en sýnir
vatnslitamyndir í Ganginum, nokk-
uð stórar og fimmtán talsins. Helgi
er spurður út í myndefni Riellys og
segir hann verk hans snúast um að
breyta sjónarhorni á fólk. Á með-
fylgjandi mynd af verki eftir Rielly
má t.d. sjá dreng sem blæðir úr
augunum á og í öðru verki blæðir
úr nefi drengs. Í enn öðru verki má
sjá drengi með svínstrýni og enn
öðru stúlku uppi í rúmi með sígar-
ettu í munninum. Og þannig mætti
áfram halda.
Helgi segir einhvers konar sál-
rænan undirtón í verkum Riellys
og bendir á verk Birgis Snæbjörns
til samanburðar. Þau láti lítið yfir
sér en séu þó einhvern veginn á
skjön tilvistarlega.
Sjón er auðvitað sögu ríkari og
forvitnum bent á að koma við í
Ganginum í dag milli kl. 17 og 19.
Rielly verður viðstaddur opnunina.
helgisnaer@mbl.is
Rielly í Ganginum
Drengur Eitt af verkum Riellys sýn-
ir dreng sem virðist gráta blóði.
- Var í hópi listamanna Sensation-
sýningarinnar víðfrægu í London 1997