Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 53

Morgunblaðið - 26.05.2022, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2022 megin í opinberu rými mótvægis. Sé verkið hins vegar skoð- að í návígi þá má sjá þar ótal litbrigði auk þess sem eiginleikar mósaík- miðilsins njóta sín í áferðarríki og leik náttúrulegrar birtu á yfirborði verks- ins. Margt smátt gerir svo sannar- lega eitt stórt og verkið fékk feikna- góðar viðtökur við afhjúpun þess 7. september 1973. Sundin og síkin Verkið gjörbreytti götumyndinni og vakti almenna aðdáun. Sumum þótti það ekki fá nægilegt rými – og óneitanlega trufluðu yfirfull bílastæð- in fyrir framan verkið útgeislun þess. Engu að síður hefur það síast inn í menningarvitund borgarbúa og jafn- vel ratað inn í skáldverk. Rithöfund- urinn Álfrún Gunnlaugsdóttir beinir sjónum að veggmynd Gerðar í skáld- sögu sinni Siglingin um síkin (2012) sem gerist skömmu eftir efnahags- hrunið 2008. Í minningunni situr aðalpersónan Gyða í bíl framan við Tollhúsið og þegar honum er bakkað á táknrænan hátt út úr bílastæðinu sýnist henni veggmyndin, sem hún hefur miklar mætur á, vera nýhreins- uð og aftur „hafa fengið fyrri ljóma“. Myndin öðlast jafnframt nýja merk- ingu í huga Gyðu: Ekki hefur verið létt verk að taka þessa mósaíksteina í gegn. Ég las ein- hvers staðar að þeir hefðu verið fluttir alla leið frá Feneyjum. Uppruni stein- anna skiptir í sjálfu sér litlu máli, enda á hin suðræna og sögufræga borg, með sína stórbrotnu bygging- arlist, lítið skylt við höfuðborg Íslands, þar sem fátt er um fína drætti í byggingum, þó að myndinni sé ætlað að bæta úr því. Landið okkar hefur aldrei verið stórveldi á hafinu, jafnvel þótt við höfum ímyndað okkur það, en því er ekki að neita að við höf- um grætt á því. Feneyingar græddu líka á hafinu, rökuðu saman auði. En það var áþreifanlegur auður, hann umbreyttist í sjáanlegar og snertan- legar gersemar og var ekki allt í plati auður eins og hjá okkur Íslendingum. Efniviður verksins, myndefnið og staðsetning þess á tollhúsi verða hér kveikja gagnrýninna þanka sem minna um leið á mikilvægi hins menn- ingarlega auðmagns sem verk Gerðar er sannarlega lýsandi dæmi um. Verkið stendur fyrir sínu, eins og Álf- rún bendir á, og nú þegar bílastæðin sem áður byrgðu sýn á það eru horfin hefur opnast torg, eða svið sem vísar til framtíðar og bjartra vona. Framúrskarandi listakonur Gerður hafði töluverða reynslu af mósaíklist þegar hún var fengin til að skreyta Tollhúsið, og var raunar opin fyrir því að prófa ólík efni og aðferðir í listsköpun sinni. Hún taldist meðal framsæknustu skúlptúrista í París í upphafi 6. áratugarins þegar hún sýndi þar afstraksjónir og svifverk úr svartmáluðu járni. Fáeinum árum áð- ur en hún gerði mósaíkmyndina stóru vann hún meðal annars frumlegar, óhlutbundnar lágmyndir í stein- steyptan vegg flutningafyrirtækis í Dugguvogi og notaði til þess mót sem hún vann með því að skera form bíla- varahluta og undirvagna í frauðplast. Gerður lærði að vinna steint gler á verkstæði Jeans Barillets í París, og fljótlega fóru verkefnin að hrannast upp en fyrstu verkefni hennar hér- lendis voru steindir gluggar fyrir Hallgrímskirkju í Saurbæ og kapellu Elliheimilisins Grundar um miðjan 6. áratuginn. Í þessum miðlum eygði hún í senn möguleika á að skapa metnaðarfull myndverk í anda nútímamyndlistar, að sjá fyrir sér og ef til vill einnig að skapa varanleg listaverk í samtali við aldirnar – og það eru óhlutbundnu, steindu gler- gluggarnir sem hún vann fyrir Skál- holtskirkju glæsilegur vitnisburður um, en kirkjan var vígð 1963. Listmálarinn Nína Tryggvadóttir, einn helsti brautryðjandi afstrakt- málverksins hér á landi, var fengin til að gera kórmynd Skálholtskirkju og þar eiga því verk þessara tveggja framúrskarandi listamanna hátíð- legt stefnumót. Þær höfðu þegar þarna var komið báðar skapað sér nafn erlendis, þar sem þær sýndu verk sín reglulega og unnu að list- skreytingum. Nína hóf að vinna verkefni á sviði glerlistar á Oidt- mann-verkstæðinu snemma á 6. ára- tugnum en helsta verkefni hennar hérlendis á því sviði eru steindir gluggar í Þjóðminjasafninu við Suð- urgötu frá 1962. Kórmyndin í Skál- holtskirkju er um sex metra há mósaíkmynd sem áhugavert er að bera saman við formfast verk Gerð- ar á Tollhúsinu. Verk Nínu er Kristsmynd – geislabauginn um- hverfis höfuð hans ber við sjónbaug í bakgrunni og handleggir hans teygja sig eins og geislar mót áhorf- andanum. Mjúk hreyfingin í verkinu er sköpuð með lifandi línuspili og til- finningu fyrir gagnsæi. Myndin er ekki skýrt afmörkuð á veggnum, hún virðist vaxa út úr honum, líkt og veggurinn leysist upp og ímynd Krists birtist eins og andi úti í nátt- úrunni. Sú ríka tilfinning fyrir dul- magni náttúrunnar sem einkennir málverk Nínu frá sama tíma skilar sér einnig hér. Nínu varð ekki langra lífdaga auðið, og eftir lát hennar 1968 var annað stórt mósaík- verk hennar, sem kallast ekki síður á við myndheim málverkanna, sett upp í borgarlandinu en það var hið óhlutbundna verk „Flug“ á bygg- ingu Loftleiða í Vatnsmýrinni. Ars longa, vita brevis Því má velta fyrir sér hvernig íslensk listasaga hefði þróast ef þessar hæfileikamanneskjur og frumkvöðlar hefðu átt lengri starfs- ævi. Árið 1977, tveimur árum eftir andlát Gerðar og Barböru, lauk Ásgerður Búadóttir (1920-2014), sem var mikilvirk á sviði nútíma- textíllistar, við verkið „Sjö lífsfletir“ sem tileinkað er jafnmörgum starfssystrum er allar létust fyrir aldur fram; Nínu, Barböru, Gerði, Áslaugu frá Heygum, Eyborgu Guðmundsdóttur, Ragnheiði Ream og Maríu Ólafsdóttur. Í samtali við Morgunblaðið löngu síðar segir hún verkið hafa sérstaka merkingu fyrir sig: „Þetta var á kvennaáratugnum þegar miklar listakonur voru áber- andi innan FÍM, Félags íslenskra myndlistarmanna […] Þetta var svo sorglegt. Þær voru allar á besta aldri og á sínu blómaskeiði þegar þær féllu frá. Þetta var mikil blóð- taka.“ Margar þessara kvenna settu þó mark sitt á samtíðina svo um munaði – og verkin lifa. Hönnun nýs mannlífstorgs við stórvirki Gerðar Helgadóttur í Tryggvagötu, sem og viðgerð lista- verkanna í Skálholtskirkju fyrir skömmu, staðfesta þau verðmæti sem fólgin eru í slíkum „sjáanlegum og snertanlegum gersemum“. Jafn- framt eru þær vitnisburður merki- legs tímabils í íslenskri menningar- sögu sem njóta má á opinberum vettvangi, á listasöfnum, í kirkjum, á förnum vegi. Listamenn eins og Gerður, Nína, Barbara og fleiri voru einnig mikilvægir þátttakendur og fyrirmyndir sem veittu kynsystrum sínum innblástur. Við hæfi er að ljúka þessari grein með tilvitnun í bréf sem Gerði barst skömmu eftir afhjúpun Tollhúsmyndarinnar, eins og fram kemur í áðurnefndri bók Elínar Pálmadóttur. Bréfritarinn, Fríða að nafni, segist heilluð af mósaíkmyndinni sem leiti sífellt á hugann; „og ég verð helmingi fljótari að vinna mín hversdagslegu störf fyrir þá uppljómun sem hún gerir í kringum mig. […] Mig langar aðeins til að tjá þér þakklæti mitt fyrir þá fegurð sem þú stráir á vegi fólks.“ Morgunblaðið/Hákon Mannlíf Stórbrotið mósaíklistaverk Gerðar Helgadóttur á suðurvegg Tollhússins fær notið sín til fulls við nýtt mannlífstorg sem þar hefur verið útbúið. Verkið sést ekki í heild sinni á myndinni. Undirbúningur Tillaga Gerðar Helgadóttur að veggmynd á Tollstöðvarhúsið í Reykjavík (1972). Um er að ræða vatnslit á pappír, 29 x 128 cm. Skissur og undirbúningsteikningar fyrir Tollhúsið verða meðal verka á stórri sýningu á verkum Gerðar sem fyrirhuguð er í Gerðarsafni árið 2024. Ljósmynd/Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn Vígsla Frá vígslu verks Gerðar Helgadóttur á Tollhúsinu árið 1973. Ljósmynd/Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn Í vinnslu Gerður í stúdíói 1972 að undirbúa mósaíkmyndina á Tollhúsinu. Ljósmynd/Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.