Læknablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 175
R A N N S Ó K N
1. Sundhedsstyrelsen.dk. Treatment of primary osteoporosis in general practice, 22.01.2021. 2. Samantekt á eiginleikum Prolia, www.serlyfjaskra.is.
3. Cummings SR et al, N Engl J Med (2009) 361:756-765. 4. Bone H G et al, Lancet Diabetes Endocrinol (2017) 5(7):513-523.
Prolia (denosumab) dregur úr hættu á brotum í hryggjarlið,
öðrum beinbrotum og mjaðmarbrotum3
Prolia er gefið með inndælingu undir húð á 6 mánaða fresti2
Meðferðin þolist enn vel eftir 10 ára meðhöndlun4
IS
-D
K
-P
R
O
-2
00
00
21
-0
2-
O
K
T2
02
1
FYRIRBYGGJUM BROT
ÍHUGAÐU PROLIA
FYRIR SJÚKLINGA
MEÐ BEINÞYNNINGU
ÞEGAR TÖFLUMEÐFERÐ
HEFUR EKKI SKILAÐ
TILÆTLUÐUM ÁRANGRI*1
* Sökum frábendingar, lélegrar meðferðarheldni eða meðferðarbrests.
Vistor/Amgen á Íslandi
Hörgatúni 2 · 210 Garðabæ
sími 535 7000 · atli@vistor.is
Inngangur
Fæðingar þungbura fela í sér aukna hættu á fylgikvillum eins og
tepptum framgangi fæðingar og bráðakeisaraskurði.1-3 Einnig eykst
áhættan á axlarklemmu í fæðingu og fæðingar áverkum nýbura.3,4
Skilgreina má þungbura sem barn sem vegur meira en fjögur og
hálft kílógramm (kg) við fæðingu,5 en það er yfir 97. percentíli við
40 vikna meðgöngu miðað við nýleg alþjóðleg vaxtarrit.6 Þannig
er hlutfall þungbura af öllum fæðingum að jafnaði kringum 2%
í flestum löndum.7,8 Síðasta áratug hefur tíðni þungburafæðinga
á Íslandi verið yfir 4% af öllum fæðingum árlega, en tíðnin var
heldur lægri á hinum Norðurlöndunum, eða 2-4%.9 Meðganga sem
verður lengri en 42 vikur eykur líkurnar á fæðingarþyngd sem er
yfir fjórum og hálfu kg, óháð öðrum áhættuþáttum.10 Áður fyrr
biðu konur þess að fæðing færi sjálfkrafa af stað þar til 42 vikna
meðgöngu var náð. Frá árinu 2009 hefur framköllun fæðingar
hins vegar verið ráðlögð milli 41. og 42. viku meðgöngu og þar
með hefur framköllunum fjölgað á Íslandi jafnt sem erlendis.11-13
Það er vel þekkt að hættan á þungburafæðingu eykst einnig við
sykursýki.14,15 Greiningum meðgöngusykursýki hefur fjölgað hér-
lendis, sem að hluta má rekja til breytinga á greiningarskilmerkj-
um árið 2012.16,17 Síðastliðinn áratug hefur íslenskum konum með
meðgöngusykursýki verið boðin framköllun fæðingar áður en 41.
viku meðgöngu er náð. Ætla má að aukin tíðni framkallana gæti
almennt leitt til fækkunar þungbura og því er áhugavert að kanna
það með hliðsjón af ofangreindum breytingum á verklagi.11,17 Hins
vegar er óljóst hve mikil áhrif þess gætu hafa verið þar sem tíðni
áhættuþátta eins og sykursýki og offitu hefur aukist á sama tíma.18-
20 Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni þungburafæðinga
Jóhanna Gunnarsdóttir1,2 læknir
Jónína Rún Ragnarsdóttir3
læknanemi
Matthildur Sigurðardóttir2
læknir
Kristjana Einarsdóttir1
faraldsfræðingur
1Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands, 2kvennadeild
Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands.
Fyrirspurnum svarar Jóhanna Gunnarsdóttir, johagunn@hi.is
Á G R I P
TILGANGUR
Þekkt er að konur sem ganga fram yfir áætlaðan fæðingardag og konur
með sykursýki eru líklegri til að fæða þungbura en aðrar konur. Markmið
rannsóknarinnar var að kanna tíðni þungburafæðinga á Íslandi með hliðsjón
af fjölgun framkallana fæðinga. Tíðni þungburafæðinga var skoðuð eftir
meðgöngulengd og hættan á þungburafæðingum við framköllun fæðinga
borin saman við biðmeðferð.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Gögn Fæðingaskrár frá 92.424 fæðingum einbura á tímabilinu 1997 til
2018 voru nýtt í þessa ferilrannsókn. Barn með fæðingarþyngd yfir fjórum
og hálfu kg var skilgreint sem þungburi. Meðaltíðni þungburafæðinga var
reiknuð fyrir þrjú tímabil, 1997-2004, 2005-2011 og 2012-2018, lagskipt
eftir meðgöngulengd. Hlutfallsleg áhættulækkun þungburafæðinga var
reiknuð með tvíkosta aðhvarfsgreiningu og seinni tvö tímabilin borin saman
við það fyrsta. Hættan á þungburafæðingu við framköllun fæðinga miðað
við biðmeðferð var einnig metin. Hlutfallsleg áhættulækkun var reiknuð og
leiðrétt fyrir sykursýki.
NIÐURSTÖÐUR
Fjöldi þungbura sem fæddust á rannsóknartímabilinu var 5110 og af
þeim áttu einungis 313 mæður með sykursýki. Tíðni þungburafæðinga var
6,5% tímabilið 1997-2004 en 4,6% 2012-2018. Hlutfallsleg áhættulækkun
þungburafæðinga yfir rannsóknartímann sást meðal fæðinga frá og með
áætluðum fæðingardegi. Þegar framköllun fæðinga var borin saman við
biðmeðferð mátti sjá áhættulækkun á þungburafæðingum, en áhrifin voru til
staðar jafnvel þó leiðrétt væri fyrir sykursýki.
ÁLYKTANIR
Tíðni þungburafæðinga fór lækkandi síðastliðna tvo áratugi, en aðeins
lítill hluti þungburanna átti mæður með sykursýki. Framköllun fæðinga
minnkaði líkur á þungburafæðingum en slík verndandi áhrif virtust óháð
sykursýkigreiningu.
Lækkandi tíðni
þungburafæðinga á Íslandi
– skoðuð með hliðsjón af breyttu verklagi um framköllun fæðinga