Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 197
Y F I R L I T S G R E I N
klukkan sé seinkuð, með þeim afleiðingum að kjörsvefntímanum
seinkar miðað við staðarklukkuna. Þetta gæti hugsanlega tengst
því að staðartími á Íslandi miðast við tímabeltið fyrir austan okk-
ur, en samsvarar ekki landfræðilegri legu landsins. Breytilegt
árstíðabundið birtumagn á norðurhveli jarðar á einnig sinn þátt í
seinkuðum svefntíma.
Þessi klukkuskekkja virðist þó almennt ekki koma niður á
heildarsvefnlengd fullorðinna, en gæti skipt máli hjá börnum og
unglingum.
Tengslum svefnlengdar og heilsu er talsvert haldið á lofti. Eink-
um hefur verið varað við því að sofa of stutt (<6 klukkustundir)
og bent á að stuttur svefn tengist aukinni dánartíðni, hjarta- og
æðasjúkdómum, offitu, slæmum efnaskiptum og minnkaðri vit-
rænni getu og verri andlegri líðan. Ekki ósjaldan er látið að því
liggja að stuttur svefn valdi ofannefndum sjúkdómum og sjúk-
dómseinkennum og fólk því hvatt til að sofa lengi. Vissulega
hafa rannsóknir sýnt fram á tengsl heilsuleysis og að sofa stutt
(<6 klukkustundir),57 en ekki síður því að sofa lengi (8-9 klukku-
stundir).58 Mikilvægt er að hafa í huga að ekki hefur verið sýnt
fram á að stuttur eða langur svefn orsaki heilsubrest.80,81 Svefn-
venjur eru hluti af lífsstíl. Seinir og óreglulegir svefntímar, óreglu-
legar matarvenjur, óhollt fæði og lítil hreyfing fylgjast iðulega að
og eru hluti lífsstíls sem einkennir áhættuhegðun, hegðun sem
oft tengist geðrænni og líkamlegri vanheilsu og stundum vímu-
efnaneyslu. Slíkri áhættuhegðun þarf að bregðast við heildstætt,
ekki síst meðal unglinga.75,76 Í ljósi þessa samspils er varasamt að
einskorða umræðuna við einn þátt – svefn – án umfjöllunar um
heildarmyndina.
Verulegir fjárhagslegir hagsmunir og sölumennska lita um-
ræðu um heilsu og þar er svefn engin undantekning. Einstaklingar
og fyrirtæki nota sér áhuga fólks á svefni í auðgunarskyni, eins
og áberandi auglýsingar í fjölmiðlum um tæki sem mæla svefn,
svefnbætandi efni, bækur, dýnur og loforð um bættan svefn bera
vitni um. Umræðan í fjölmiðlum beinist jafnvel að sárasjaldgæfum
svefnsjúkdómum (til dæmis REMbehaviordisorder, fatal insomnia)
sem vekja óhug. Yfirleitt liggja fáar vísindalegar rannsóknir að
baki þessari sölumennsku þótt framsetning umfjöllunar gefi slíkt
til kynna. Frískt og einkennalaust fólk hefur skiljanlega áhyggjur
af því að svefn þeirra sé ekki eins og skyldi og stefni mögulega
heilsu þeirra í hættu. Því til staðfestingar er algengt að vísað sé
til mælinga úr vinsælum „svefnúrum“ í viðtali við lækni.96 Það
er íhugunarefni hvort aukin sölumennska, alhæfingar um stutta
svefnlengd og staðhæfingar um orsakasamband milli svefnlengd-
ar og vanheilsu, valdi vanlíðan og kvíða og skapi jafnvel ótta með-
al almennings um veikindi. Slíkt gæti mögulega leitt til aukinnar
ásóknar í heilbrigðisþjónustu og til svefnlyfjanotkunar. Einnig er
hún til þess fallin að draga athygli frá heildarmyndinni, lífsstíl þar
sem fara saman óhollar matarvenjur, lítil hreyfing og óreglulegar
svefnvenjur, sem hafa áhrif á heilsu, sem líkt og svefnleysi þarfn-
ast atferlisbreytinga en ekki lyfja.
Samantekt og ályktun
Skilningur okkar á þýðingu þess sem lýtur að svefni grundvall-
ast á langtíma vísindarannsóknum. Ekki eru til staðar vísindaleg
rök fyrir því að svefnvenjur Íslendinga stefni heilsu þjóðarinnar í
voða. Gott er að hafa í huga að lífslíkur Íslendinga (82,4 ár) og líkur
á því að lifa heilbrigðu lífi eru með því hæsta sem gerist í heiminum
samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.97 Í löndunum í kringum
okkur hefur svefnlengd fullorðinna ekki styst undanfarna áratugi.
Eina langtímarannsóknin sem til er um svefnlengd og svefnvenj-
ur Íslendinga sýndi að svefnlengd fullorðinna styttist ekki á ár-
unum 1985-95, en líkt og erlendis styttist svefn íslenskra barna að
16 ára aldri á þessu tímabili. Ekki hefur þó verið sýnt fram á að
þau sofi ekki nóg. Samanburðarrannsóknir sýna að svefnlengd Ís-
lendinga, bæði fullorðinna og unglinga, er sambærileg og jafnvel
lengri en víðast hvar í Evrópu. Svefntímar landans eru á hinn bóg-
inn seinkaðir og skýringa á því má leita í misræmi milli dægur-
klukku og staðarklukku og vegna norðlægrar hnattstöðu landsins.
Mikilvægt er að umræða fagfólks um svefn sé ígrunduð og byggi
á vísindalegum gögnum, en litist ekki af sjúkdómsvæðingu, órök-
studdum staðhæfingum, sölumennsku og fjárhagslegum ávinningi.
Greinin barst til blaðsins 21. nóvember 2021,
samþykkt til birtingar 8. febrúar 2022.
E N G L I S H S U M M A R Y
Bryndís Benediktsdóttir1,2
Tinna Karen Árnadóttir3
Þórarinn Gíslason1,2
Jordan Cunningham1
Björg Þorleifsdóttir1
1Medical Faculty, University of Iceland,
2Department of Sleep, Landspitali University
Hospital Reykjavík, Iceland, 3Primary Care of the
Capital Area.
Correspondence: Bryndís Benediktsdóttir,
brynben@hi.is
Key words: sleep duration, sleep time, circadian
rhythm, sleep and health, sleep of Icelanders.
Is Icelanders' sleep duration getting shorter?
Review on sleep duration and sleeping habits
Sleep health promotion is an ever-increasing subject of public discourse in Iceland. Prominent claims made
include that the duration of sleep among Icelanders is shortening, and that changing sleeping habits constitute
a significant public health risk. Like many aspects of healthcare, commercial interests and sales hype can
skew perception. This review article will seek to shed light on the scientific background of these statements.
International meta-analysis suggests there has been little change in sleep duration in adults over the past
century. The duration of childrens sleep has shortened, but the consequences of this are not yet well established.
Significant shortening of the sleep of adult Icelanders has not been demonstrated. No difference in sleep
duration is found between Icelandic adults and adolescents and comparable groups in neighboring countries.
The measurement methods that are used when comparing sleep studies are variable and can lead to different
results. Associations have been established between sleep duration and adverse health outcomes, both physical
and mental, but causality has not yet been established, and potential important mediators of the relationships are
discussed.
The circadian sleep phase of Icelanders is generally delayed relative to neighbors, likely related to Iceland‘s
diurnal length variation at sub-Arctic latitudes and longitudinal discrepancies between natural light and local
time.
doi 10.17992/lbl.2022.04.687