Læknablaðið - 01.04.2022, Page 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 205
Sveinn Rúnar og María kusu að hitta
Læknablaðið á kaffihúsi því erillinn heima er nú
meiri en þar, með foreldra, mágkonu, vinkonu
mágkonunnar og börnin þeirra á heimilinu –
flóttamenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu.
Mynd/gag
V I Ð T A L
og nágrenni, nálægt Zhytomyr-héraði.
„Foreldrar mínir þrá ekkert heitar en að
komast aftur heim,“ segir hún og að þau
Svein dreymi um að sonurinn fái að kynn-
ast rótum sínum, móðurmálinu og menn-
ingunni. Þau hugsa til sumarhússins,
griðastaðarins þar sem ávextir vaxa ómælt
á trjánum.
„Sólblómabreiðurnar eru endalausar
í Úkraínu og jörðin frjósöm. Á örlitlum
landskika við sumarhús pabba er hægt
að gæða sér á ferskum melónum, jarðar-
berjum, rifsberjum, bláberjum, eplum og
perum, eins og maður getur í sig látið,“
segir María.
Þau eru þreytt, harmi slegin og reið
vegna stríðsins. „Umræða hefur gjarnan
skapast um viðbragð Íslands gagnvart
öðrum áföllum og komu flóttamanna.
Fjöldinn nú verður meiri en nokkru sinni
áður,“ segir hann.
„Það vantar ekki samtakamátt einstak-
linga og fyrirtækja en það er nauðsynlegt
að hið opinbera og stjórnsýslan bretti upp
ermar sem aldrei fyrr og láti verkin tala.
Það skiptir máli að við getum litið stolt
um öxl."
Þjóðinni fjölgi með flóttafólkinu
María segir að hún sé þegar stolt af hugar-
farinu. „Þótt Ísland sé lítið og herlaust er
ég stolt af því að vera hér og heyra fólk
fordæma árásina á Úkraínu. Ég er stolt
að sjá Ísland á lista yfir óvinalönd Rúss-
lands.“
Sveinn segir að barátta og dugnaður
úkraínsku þjóðarinnar hafi hreyft við
heimsbyggðinni. „Það kemur því ekki á
óvart að fyrsta spurning þeirra sem hing-
að flýja sé ekki hvort að hér sé hægt að
borða eða fá þak yfir höfuðið, heldur hvort
hér megi vinna,“ segir hann og leggur
mat á stöðuna.
„Við höfum nú val um það hvort þessi
hópur verði á framfærslu eða hvort hann
verði öflugur þátttakandi í þeirri efna-
hagslegu viðspyrnu sem þörf er á. Við
verðum að virkja hópinn og um leið draga
úr líkum þess að undan halli, ekki síst
heilsufarslega séð.“
Góðgerðasamtök sem nefnast Flotta-
fólk, ekki flóttafólk, verði því stofnuð.
„Þetta er ekki fólk í leit að ölmusu. Þetta
er fólk í leit að friði og tækifærum í
skemmri tíma.“
María og Sveinn benda á að hér á landi
séu í það minnsta 7 rússneskumælandi
læknar. „Öll tilbúin að hjálpa. Viðbrögð
heilbrigðiskerfisins þurfi að vera traust og
samtaka. Rússneskumælandi læknar þurfi
að fá hlutverk. Sálfræðingar og geðlæknar
þurfi að koma að. „Við vitum að læknar
vilja hjálpa og kerfið þarf að vinna á sama
hraða og þeir,“ segir hann. „Við þurfum
að vinna hraðar.“
Par gengur að borðinu á kaffihúsinu:
„Ert þú ekki Sveinn Rúnar?“ Hann jánkar
og hún segir þeim að þau séu með fjórar
úkraínskar konur hjá sér, flóttamenn.
Hann bendir þeim á Guðrúnartún frá
mánudegi til fimmtudags. Þar fái þær að
borða, geti hitt aðra landa sína, fengið
áheyrn og samtal; stuðning.
„Fólk verður að fá andrými til að gráta
og koma börnum í var,“ segir hann við
parið. Hann bendir á helpukraine.is og á
mikilvægi þess að fólkið fái tækifæri til að
dreifa huganum. Bendir á að mestmegnis
sé um að ræða brotnar fjölskyldur. Synir,
eiginmenn og bræður séu fastir í Úkraínu.
„Takið fólk í faðminn og hlúið að
því,“ segir hann. Um 250 sjálfboðaliðar
standi nú að baki Guðrúnartúni sem hafi
sprottið út frá hjálparbeiðni hans á Face-
book fyrir tveimur vikum. Grunnsálgæsla
sé á staðnum af hálfu rússneskumælandi
sálfræðinga auk fræðslufunda um íslenskt
samfélag.
„Þar eru framreiddar 150 máltíðir á dag
í samvinnu við íslensk fyrirtæki. Fólkið
getur þar fengið kort í líkamsrækt, sund,
strætó, ný föt á börnin og neyðarleikskóli
opnar tímabundið í húsi Fíladelfíu í sam-
starfi við þjóðkirkjuna,“ segir hann.
María vill nú komast heim úr hávaða
kaffihússins og í faðm fjölskyldunnar. „Já,
sjá son minn. Knúsa mömmu og pabba.
Hvílast.“ Dagarnir langir. Framhaldið
óvíst. En er ekki erfitt að hjálpa öðrum
þegar þau eru sjálf í sárum?
„Jú,“ segir Sveinn Rúnar. „En allt þetta
fólk er í sárum. Við erum í sárum. Staðan
í heiminum er þannig að ef ég myndi ekki
sinna þessu þegar ég á lausa stund er ég
ólíklegri til þess að geta klárað daginn.
Ég yrði óvinnufær. Það er nauðsynlegt að
dreifa huganum og vera að frá morgni til
miðnættis,“ segir hann.
„Ekki má gleyma því að sú sem stend-
ur erfiðustu vaktina í Guðrúnartúni er
sjálf flóttamaður, að hjálpa flóttamönnum,
ekki orðin tvítug og hefur ekki heyrt frá
pabba sínum frá 1. mars. Hún kýs að vera
að frá morgni til miðnættis, til að dreifa
huganum sömuleiðis og draga úr líkum
þess að brotna.“