Læknablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 42
206 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
„Þetta eru tveir ólíkir heimar en ég er ennþá sami maðurinn,“ segir Doctor Victor. Hann
er læknir á daginn og tónlistarmaður þess á milli – með Sony-samning. Victor skilur ekki
alveg á milli heimanna, því sjúklingarnir þekkja listamanninn þegar hann mætir þeim í
sloppnum. „Já, það gerist reglulega,“ staðfestir hann og hlær
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Markmiðið er að halda jafnvægi
á milli tónlistarinnar og
lækninga
„Ég reyni að halda fagmennskunni í
vinnu en finnst mjög gaman að tala um
tónlistina þegar fólk nefnir hana,“ segir
Victor Guðmundsson læknir sem vinnur
þessa dagana með landsliði tónlistar-
manna. „Mér finnst líka gott þegar fólk
að skemmta sér kemur til mín og þakkar
fyrir að hafa lækni á svæðinu um leið og
ég spila fyrir það.“
Victor vakti athygli á dögunum því
hann samdi með þremur öðrum þemalag
Ólympíuleikanna í ár. Hann á þriðju mín-
útuna, danshlutann, sem spilaður hefur
verið 900 milljón sinnum á kínverskum
samfélagsmiðlum. Læknablaðið hittir hann
á nýjum vinnustað hans hjá Heilsuvernd.
„Mér finnst mjög gaman að vinna hér á
Heilsuvernd og geta gert bæði,“ segir Vict-
or, „læknað og unnið að tónlist.“ Hann
fýkur í hús á sama tíma og blaðamaður á
vindasömum marsmiðvikudegi, frídegi,
en hann finnur fljótt lausa læknastofu.
Glæsilegt útsýnið yfir Elliðaárdalinn gríp-
ur athyglina.
„Starfsemin hér er svo margþætt. Ég
vinn á heilsugæslunni en við erum líka
til að mynda með heilsufarsskoðanir
með hjartaálagsprófum, trúnaðarlækna-
þjónustu, öldrunarvernd og í spennandi
þróunarverkefnum og starfið því fjöl-
breytt.“ Er í 80% starfi hjá Heilsuvernd.
Nýtir miðvikudagana til að semja og
sinna samningum við Sony í Danmörku.
Samningi sem hann landaði fyrir rétt
rúmu ári.
„Aðdragandinn var rosalegur,“ segir
Victor sem segir draumana hafa stækk-
að þegar hann hóf að gera eigin tónlist.
„Þetta var eins og að reyna að halda hesti
rólegum. Ég átti ár eftir af náminu og
tónlistin stækkaði og stækkaði. Ég reyndi
hvað ég gat til að halda jafnvægi,“ segir
Victor sem á ekki langt að sækja læknis-
áhugann. Móðurafi hans, Frosti Sigurjóns-
son skurðlæknir, er fyrirmyndin.
Frosti afi fyrirmynd
„Ég man svo vel eftir afa mínum. Hann
var húmoristi, stór karakter og mikil
fyrirmynd fyrir mig. Hann fór í sérnám
í skurðlækningum í Kiel. Þar fæddist
mamma mín. Síðan fluttist hann til
Braunschweig og var yfirlæknir þar. Hann
var virtur skurðlæknir,“ segir Victor.
„Ég ætlaði að feta í fótspor afa. Síðan
þegar leið á námið fór ég að hafa áhuga
á því hvernig mannslíkaminn virkar og
hvernig hægt er að koma í veg fyrir að
eitthvað klikki í stað þess að laga það sem
aflaga fer,“ segir Victor.
„Ég tala fyrir fyrirbyggjandi læknis-
fræði. Hún snýst um fjóra þætti: Svefn,
hreyfingu, næringu og andlegt jafnvægi.
Hægt er að sjá fyrir sér stól með fjóra
fætur og ef einn brotnar undan fellur
stóllinn.“ Nýta þurfi tæknina betur til
að fylgjast með heilsufarinu og því hafi
hann síðustu misseri einnig unnið með
hlauparanum Arnari Péturssyni og hug-
búnaðarfyrirtækinu Driftline.
„Þeir eru fyrstir í heiminum til að
mæla með einföldum og nákvæmum
hætti þol með því að nota hjartsláttargögn
úr snjallúrum. Þannig fæst fyrsta vís-
indalega mælieiningin á þoli á skalanum
0-100%. Algjör snilld. Breytir leiknum,“
segir Victor sem er einnig að fara af stað
með fyrirlestra á vegum Heilsuverndar
um mikilvægi þess að halda jafnvægi í
lífinu.
Með söguna í stofunni sinni
Bakgrunnur Victors er alþjóðlegur þótt
hann sé Íslendingur. Fæddur í Þýskalandi
eins og mamma hans. Foreldrar hans búa
nú í Noregi þar sem hann bjó einnig um
nokkurra mánaða skeið eftir Versló áður
en hann stökk til Slóvakíu í læknanám.
Mamma hans, Edda Freyja Frostadóttir
fatahönnuður, og pabbi hans, Guðmundur
Rafn Guðmundsson verkfræðingur. Systir
hans, Eva Mey, ætlar líka að verða læknir
og er á fjórða ári af 6 í Slóvaíku.
„Ég byrjaði í tónlist þegar ég var ung-