Læknablaðið - 01.05.2021, Side 3
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 219
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Ólafur Árni Sveinsson
Theódór Skúli Sigurðsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Sólveig Jóhannsdóttir
solveig@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1900
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem
á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda
gagnagrunna: Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science Edition, Scop-
us og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Sænskir straumar á nýju
Brjóstamiðstöðinni
Ný kynslóð sérfræðinga í brjóstaskurðlækningum hefur hreiðrað um sig í
glænýrri Brjóstamiðstöð á Landspítala sem opnuð var í apríl.
Allt nýtt. Aðstaðan til fyrirmyndar og þau ánægð
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Við ætlum að gera konum auðveldara að leita til
okkar vegna allra vandamála frá brjóstum,“ seg-
ir Svanheiður Lóa Rafnsdóttir sem ásamt þeim
Eyrúnu Valsdóttur og Hafsteini Inga Péturssyni
eru í 100% stöðu sem brjóstaskurðlæknar á
Landspítala.
Öll eru þau komin heim frá Svíþjóð, Svanheið-
ur fyrir þremur árum, Eyrún í mars í fyrra og
Hafsteinn Ingi nú í október. Kóvíd? „Já, bæði og,“
svarar hann. „Það var kominn tími. Ég var tilbú-
inn að koma heim.“ Eyrún tekur undir: „Já, ég sé
ekki eftir því að hafa komið heim. Alls ekki.“
Öll voru þau deildarlæknar á svipuðum tíma
fyrir sérnámið. Nú aftur sameinuð ná þau rétt í
skottið á skurðlæknunum Þorvaldi Jónssyni og
Höskuldi Kristvinssyni sem hafa verið með hníf-
ana á lofti og haldið uppi þjónustu Landspítala í
brjóstaskurðlækningum í áratugi. Þorvaldur enn í
50% starfi.
„Það er tómlegt án Höskuldar og við höldum
dauðahaldi í Þorvald,“ segir Eyrún. „Þeir búa yfir
svo mikilli þekkingu og margt hægt að læra af
þeim.“
Öll þrjú lærðu þau til læknis hvert á sínum
staðnum. Eyrún í Danmörku, Svanheiður í
Þýskalandi og Hafsteinn hér heima. Sérnámið
stunduðu þau í Svíþjóð og ber framtíðarsýn
Brjóstamiðstöðvarinnar merki þess.
„Við stefnum að því fyrirkomulagi sem þar
var,“ segir Svanheiður sem kom að uppsetningu
brjóstamiðstöðvar í Svíþjóð en á Brjóstamiðstöð-
inni hér sameinast á einn stað þjónusta skurð-
lækna, krabbameinslækna, röntgenlækna og
hjúkrunarfræðinga frá 10E og 11B við Hringbraut.
Þau eru sammála um að með sænsku áhrif-
unum takist að að bjóða persónulegri og einstak-
lingsmiðaðri þjónustu hér. „Nándin er meiri, sem
er af hinu góða,“ segir Svanheiður. Aðgengi að
sérfræðingum sé mikið. „Ég er ekki frá því að við
tökum fram úr miðstöðvum annars staðar. Við
höfum allar forsendur til þess.“
Hafsteinn bendir einnig á að fókusinn sé
víðari hér. Í Svíþjóð hafi áherslan helst ver-
ið á illkynja mein og þeim góðkynja sé sinnt
á einkastofum. Svanheiður bendir á að nýja
Brjóstamiðstöðin sinni einnig erfðaráðgjöf og
áhættuminnkandi þjónustu fyrir konur með
BRCA-gen og aðrar hááhættustökkbreytingar,
ásamt þeim sem þurfi lagfæringar á brjóstum af
ýmsum ástæðum. „Hér bjóðum við heildræna
lausn.“
Þau eru öll sammála um að Brjóstamiðstöðin
sé mikil framför í þjónustu við konur. „Í sjálfu
sér skiptir ekki máli hvar skimað er, svo framar-
lega sem það er framkvæmt og því fylgt eftir af
fagmennsku eins og hér hefur verið gert. En und-
ir einu þaki næst betri samvinna milli sérgreina,“
segir Svanheiður.
„Kosturinn við einn stað er líka meiri fyrir
konurnar sem tékka sig inn, fara í myndatöku og
hitta lækna á einum stað, þarfnist þær meðferðar.“
Spurð um aldurstakmörk í skimanir, sem var
mikið þrætuepli í vetur, segja þau þá umræðu
eiga eftir að þróast mikið. Í framtíðinni verði sú
þjónusta einstaklingsmiðuð enn frekar, til dæmis
út frá ættarsögu og áhættuþáttum. Mikilvægast
sé að konur mæti í skimun en um 240 konur
greinast árlega með brjóstakrabbamein.
„Konur á Íslandi þurfa að bæta sig þar,“ segja
þau. Eyrún slær lokatóninn. „Þær mega heldur
ekki gleyma að skoða brjóst sín, fínt í sturtunni –
einu sinni í mánuði.“
Svanheiður Lóa Rafnsdóttir,
Hafsteinn Ingi Pétursson og
Eyrún Valsdóttir á skurðstofu
nýju Brjóstamiðstöðvarinnar
við Eiríksgötu.
Mynd/gag