Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 14

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 14
230 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N virðist aukið í yngri aldurshópunum árið 2018 borið saman við 2005, einkum hjá konum. Mynd 2 sýnir þróun í fjölda fólks með sykursýki á aldrinum 18- 79 ára á tímabilinu frá 2005 til 2018 og spár fyrir fjölda fólks með sykursýki á Íslandi árin 2030 og 2040. Ljósari hluti súlnanna sýnir fjöldann ef áætlaður er fjöldi einstaklinga með ógreinda sykur- sýki í sama hlutfalli og sést í rannsóknum Hjartaverndar (29% hjá körlum og konum). Annars vegar er gert ráð fyrir óbreyttri algeng- isprósentu sykursýki miðað við árið 2018 en að fjölgun fólks með sykursýki fylgi mannfjöldaspá fram til 2030 og 2040 (appelsínu- gular súlur). Hins vegar er gert ráð fyrir að þróun í algengi sykur- sýki verði með svipuðum hætti og var á tímabilinu frá 2005 til 2018 (rauðar súlur). Samkvæmt síðari spánni fjölgar fólki með sykur- sýki næstu tvo áratugi mjög mikið, eða úr 13.000 árið 2018 í um 24.000 árið 2040 (18-79 ára). Mynd 3 sýnir nýgengi sykursýki 2 á árunum 2005-2018 fyrir 50-69 ára karla annars vegar (blátt) og konur hins vegar (rautt) (samkvæmt fyrstu ávísun á hvern einstakling af sykursýkilyfjum í Lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis). Á mynd 3 sést einnig hvert nýgengi sykursýki 2 var í Áhættuþáttakönnun Hjartavernd- ar árið 2011 (tíglar) (samkvæmt ávísunum sykursýkilyfja, blóð- sykurmælingum og spurningalista). Niðurstöður Áhættuþátta- könnunarinnar sýna að nýgengið var 6,4 árið 2011 hjá konum en 11,1 hjá körlum (á hverja 1000 íbúa 50-69 ára). Þá var nýgengið sam- kvæmt Lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis (samkvæmt ávís- un sýkursýkilyfja eingöngu) 5,6 hjá konum en 8,7 hjá körlum eða um 22% lægra hjá körlum og 12% lægra hjá konum en niðurstöður Áhættuþáttakönnunarinnar gefa til kynna. Árleg prósentubreyting (APC) árin 2005-2015 var 0,4% aukn- ing (95%CI -1,5;2,3), p-gildi=0,6. Árleg prósentubreyting (APC) árin 2015-2018 var 11,3% (95% -1,4;25,7, p-gildi=0,1. Samkvæmt Joinpoint-líkani varð breyting í leitni nýgengi sykursýki árið 2015 p=0,006. Í heild var marktæk hækkun í meðaltals árlegri prósentu- breytingu (AAPC) yfir allt tímabilið, eða 2,8% aukning á ári (95% 0,1;5,7) p-gildi<0,001. Samanburður við bandaríska rannsókn Í tímaritinu British Medical Journal Open Diabetes Research & Care birtist árið 2019 grein um þróun á algengi og nýgengi sykursýki í Bandaríkjunum fyrir konur og karla á aldrinum 18-79 ára á árun- um 1980-2016.9 Algengi sykursýki jókst þar frá 1990 til 2009 en stóð svo í stað frá 2009 til 2016. Nýgengi fór að aukast á sama tíma (um 1990) en svo fór að draga úr nýgengi 2007.9 Á mynd 4 sést nýgengi og algengi í Bandaríkjunum frá 1980 til 2016 (bláir hringir). Á myndinni eru einnig sýndar tölur um al- gengi sykursýki 2 hjá báðum kynjum 18-79 ára á Íslandi á árunum 2005-2018 (appelsínugul X), borið saman við jafnlangt árabil (árin 1984-1997) í Bandaríkjunum. Nýgengi sykursýki á Íslandi árið 2005 var svipað og nýgengi sykursýki árið 1984 í Bandaríkjunum og aukning í nýgenginu var svipuð næstu 14 árin. Sama má segja um algengi sykursýki 2 á Íslandi sem var árið 2005 svipað og algengi í Bandaríkjunum árið 1984 og jókst með svipuðum hraða næstu 14 árin. 0 5000 10000 15000 20000 25000 Fj öl di m eð s yk ur sý ki 2005 2018 2030 2040 Óbreytt algengi Áframhaldandi hækkun á algengi Mynd 2. Áætlaður fjöldi einstaklinga með sykursýki 2 á Íslandi árin 2005 og 2018, metið með algengisprósentu samkvæmt Lyfjagagnagrunni og mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands (grænir dálkar). Miðgildis-mannfjöldaspá Hagstofunnar var notuð til að meta þróun í fjölda einstaklinga með sykursýki árin 2030 og 2040. Spáð var annars vegar út frá óbreyttri algengisprósentu (appelsínugulir dálkar) og hins vegar út frá áframhaldandi hækkun á algengi (rauðir dálkar). Ljósari hluti á súlum sýnir leiðréttingu fyrir hlutfalli ógreindrar sykursýki eins og það var metið í Áhættuþáttakönnun Hjarta- verndar (REFINE). 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 N ýg en gi \ 10 00 íb úa á á ri 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 20 15 20 16 20 17 20 18 Ár Karlar Konur Mynd 3. Aldursstaðlað nýgengi sykursýki samkvæmt Lyfjagagnagrunni, fyrir karla og konur í aldurshópnum 50-69 ára yfir tímabilið 2005-2018. Opnir tíglar eru nýgengi í Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (REFINE) árið 2011. /

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.