Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 24

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 24
240 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 Fituæxli í hjarta Sjúkratilfelli Á G R I P Fituæxli í hjarta eru góðkynja hægvaxandi æxli sem oftast eru ein- kennalaus og greinast gjarnan fyrir tilviljun við læknisfræðilega mynd- greiningu. Hér er lýst tilfelli 82 ára gamallar konu með sykursýki sem leitaði á sjúkrahús vegna lélegrar sykurstjórnunar. Við hjartaómun vegna takttruflana og vægrar hjartabilunar kom í ljós fyrirferð í hægri gátt hjartans sem þrýsti verulega á efri holæð. Hún hafði þó engin ein- kenni eða teikn efri holæðarheilkennis. Staðsetning og útlit fyrirferðar á hjartaómun og tölvusneiðmynd samræmdist stóru fituæxli. Ása Unnur Bergmann1 læknir Helga Þórunn Óttarsdóttir1 læknir Björn Flygenring1,3 læknir Helgi Már Jónsson2 læknir Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir1,3 læknir 1Hjartadeild, 2röntgendeild Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnum svarar Ása Unnur Bergmann, asaunnur@gmail.com Tilfelli 82 ára kona með sögu um sykursýki og minnisskerðingu var send af heimahjúkrun á bráðamóttöku Landspítala vegna lélegrar sykurstjórnunar með of háum blóðsykri. Hún var einkennalaus við komu en með blóðsykur 31 mmól/L. Daginn eftir innlögn fékk hún tíð aukaslög frá gáttum og tímabundið gáttatif og fór að sýna einkenni hjartabilunar með mæði og lækkaðri súrefnismettun. Því var fengin hjartaómun þar sem sást að hægri gátt var í víðara lagi með um þriggja sentimetra, nokkuð hreyfanlegri, kúlulaga fyrir- ferð sem virtist vaxin frá gáttarþakinu. Vinstri slegill var þykkn- aður en með varðveittan samdrátt, útstreymisbrot 55% (mynd 1 a og b). Sjúklingurinn fór þá í tölvusneiðmynd af hjarta til frekari uppvinnslu sem sýndi stækkandi fyrirferð í hægri gátt samanbor- ið við rannsókn frá árinu 2014. Fyrirferðin mældist allt að 3,9 senti- metrar og fyllti að miklu leyti upp í hægri gátt og þrengdi verulega að efri holæð, en væg skuggaefnisfylling sást í efri holæðinni en ekki veruleg víkkun. Árið 2014 var talið að um væri að ræða fituofstækkun milli- Höfundar fengu samþykki sjúklingsins fyrir þessari umfjöllun og birtingu.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.