Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 38

Læknablaðið - 01.05.2021, Side 38
254 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 Reginmunur er á því að vinna á háskóla- sjúkrahúsum í Bandaríkjunum og á ís- lenskum heilbrigðisstofnunum. Þetta segir Sigurður Böðvarsson, yfirlæknir göngu- og lyflækningadeildar og nú einnig í starfi framkvæmdastjóra lækninga á Heilbrigð- isstofnun Suðurlands. Hann hefur starfað þar frá því í desember 2018 þegar hann kom heim eftir 8 ár í Bandaríkjunum, eða samtals 14 ára veru ef sérnámsárin í Madi- son Wisconsin talin með. „En það er svo skrýtið að sjúklingarnir eru svipaðir og jafnvel með sömu sjúk- dóma,“ segir hann og hlær. Sigurður lýsir ólíkum starfsháttum þar ytra og hér heima. Tryggt sé að læknar í Bandaríkjun- um nýti krafta sína og þekkingu sem best. „Þeir eru yfirleitt með mjög margt aðstoðarfólk og geta því einbeitt sér að því að sinna sjúklingum,“ segir hann. Algengt er að sérfræðilæknir sé með tvær skoðunarstofur í gangi. Á meðan hann sinni sjúklingi í annarri stofunni sé sá næsti undirbúinn í hinni. „Svo labbaði ég á milli,“ segir hann. Hér taki hins vegar tíma að sækja sjúklinginn fram á biðstofu, leiða inn á stofu og undirbúa. Vill sjá framfarir Samtalið hefur ekki varað lengi þegar ljóst er að Sigurður vill láta til sín taka. Breyta, bæta, sjá framfarir. Við heimför voru Landspítali eða Selfoss í sigtinu. „Selfyssingar höfðu haft samband við mig nokkrum árum áður og boðið mér að koma og byggja upp krabbameinslækn- ingar á Suðurlandi. Það þótti mér svolítið spennandi kostur enda Sunnlendingur,“ segir hann. „Mér fannst í viðtölum mínum á Landspítala að þar hefði lítið breyst og ég hafði ekki áhuga á að koma þangað í gamla starfið mitt sem sérfræðilæknir. Ég vildi verða yfirlæknir og taka aðeins til. Það fannst hins vegar engum góð hugmynd nema mér. Ég ákvað því að fara á Selfoss og sé ekki eftir því. Mér hefur fundist frábærlega skemmtilegt að vera hér.“ Sigurður lýsir því hvernig Heilbrigðis- stofnunin gengur nú í endurnýjun lífdaga. Fé hafi verið veitt til að stækka starfsem- ina og sér hann fram á að ný hæð rísi á spítalanum á næstu fjórum árum. „Það er svo mikið í deiglunni. Það kem- ur til af því að fólki fjölgar hér á svæðinu. Margt fólk flytur hingað, bæði barna- fólk og eftirlaunaþegar sem vilja koma í sveitina, fá meira fyrir peninginn. Þetta eru hópar sem þurfa mikla heilbrigðis- þjónustu.“ Heilbrigðisstofnunin fær þrjá milljarða til að endurnýja sjúkrahúsið. „Það er gam- an að taka þátt í því að rýna í teikningar, fá hugmyndir og breyta skipulagi. Við erum í því núna og stofnunin verður tekin í gegn frá toppi til táar. Það verður byrjað á neðstu hæðinni og svo fikrum við okkur upp á við og byggjum þriðju hæðina.“ Bíður eftir nýju fjárhagslíkani Sigurður horfir til þess hvernig nýtt fjár- hagslíkan sem nú sé verið að innleiða á heilsugæslunni, og svo á sjúkrahúsum landsins á næsta ári, muni efla starfsem- ina. „Það gengur út á að fjármagnið fylgi sjúklingum og að menn fái greitt fyrir það sem þeir gera.“ Sérkennilegt sé að sjúkrastofnanir séu á föstum fjárlögum. „Það er svo skrýtin hugmyndafræði að fá vasapeninga sem eiga að duga út árið,“ segir hann. „Það er miklu skynsam- legra að fá greitt fyrir það sem þú gerir.“ V I Ð T A L Heilbrigðisstofnun Suðurlands verður endurnýjuð frá toppi til táar, eins og Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir lýsir. Forsvarsmenn sjúkrastofnunarinn- ar stefna á að færa heimamönnum aukna þjónustu og hafa rætt leiðir til þess við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Endurnýja sjúkrastofnunina og vilja fleiri sérfræðilækna á Suðurland

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.