Læknablaðið - 01.05.2021, Side 39
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 255
Sigurður segir að þetta þýði að sumar
heilsugæslustöðvar, eins og sú á Selfossi,
fái aukið fjármagn en Vík í Mýrdal og
Kirkjubæjarklaustur, sem séu 700 manna
heilsugæslustofnanir, gætu fengið minna
og lent í fjárhagserfiðleikum vegna óhag-
kvæmni rekstursins.
„Þetta verður öðruvísi landslag en mér
finnst breytingin spennandi. Hún gefur
okkur tækifæri til að byggja upp sérfræði-
þjónustu á svæðinu.“ Hann sér fyrir sér
öflugri göngudeildarstarfsemi og að til
þeirra komi læknar úr flestum sérgreinum
til að þjónusta íbúa. Forsvarsmenn stofn-
unarinnar hafi þegar fundað bæði með
Sjúkratryggingum Íslands og heilbrigðis-
ráðuneytinu.
„Þetta er allt í vinnslu. Það er verið að
búa til gjaldskrár fyrir þessa þjónustu,“
segir hann, því bæta verði læknum upp
þann tíma sem taki þá að koma á svæðið.
Það sé samfélagslegur sparnaður af því
að læknar mæti á svæðið í stað þess að
tugir sjúklinga ferðist af svæðinu til að
hitta lækna. Sérfræðilæknarnir muni svo
blanda þjónustu sinni saman við fjarlækn-
ingar.
Kominn aftur á heimaslóðir
„Ég er náttúrulega sveitamaður,“ svarar
Sigurður spurður hvort skoðun hans
hafi þróast á þessum árum sem hann
hefur varið á Selfossi. Hann þekki frá
Wisconsin að ferðast frá „móðursjúkra-
húsinu“ á minni héraðssjúkrahús. „Allir
sérfræðingar þurftu að fara í outreach einu
sinni í viku og vera þar með móttöku. Það
gat tekið einn til tvo tíma að keyra fram
og til baka.“
Það er ljóst á spjalli okkar að Sigurður
horfir á skipulagið, vinnuafköstin og í
kostnaðinn. Hann vill miklu breyta, segir
mönnun ágæta á Suðurlandi en hann vilji
sjá lækna fastráðna í heilsugæslunni í stað
verktakasamninga.
„Svo vantar okkur unglækna og að-
stoðarlækna. Við höfum byggt upp mjög
gott samband við íslenska læknanema í
Slóvakíu og Ungverjalandi sem eru afar
duglegir. Þau hafa fengið verknám og við
aðstoðarlækna. Það hefur því verið ávinn-
ingur á báða bóga,“ segir hann.
„Við viljum einnig rækta sambandið
við læknadeild og Landspítala til að fá
hingað kandídata, læknanema og sér-
námslækna í lyflækningar sem og fólk í
öðru heilbrigðisnámi, því hér er hægt að
læra góða hluti á öllum sviðum.“
Endurnýjuð sjúkrastofnun
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands starfa
600 manns og er stefnt að því að hún
standi endurnýjuð að fjórum árum
liðnum. En nægja þrír milljarðar? Þarf
ekki meira til? „Örugglega.“ Spítalinn
fékk einnig leyfi í september til að opna
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands starfa 600 manns og
er stefnt að því að hún standi endurnýjuð að fjórum
árum liðnum, segir Sigurður Böðvarsson.